Morgunblaðið - 07.05.2018, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018
Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum
ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA
Vilhjálmur Bjarnason
fv. alþingismaður
Stefán Svavarsson
endurskoðandi
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Aukið álag á sveitarstjórnarfólk með
fleiri og flóknari verkefnum gæti átt
þátt í því að tæp 60% þeirra snúa
ekki aftur að loknum kosningum
hverju sinni. Hlutfallið hefur farið
vaxandi á síðustu árum.
Eva Marín Hlynsdóttir, stjórn-
málafræðingur og lektor við Háskóla
Íslands, gerði
könnun í fyrra á
vinnuaðstæðum
sveitarstjórnar-
fólks hér á landi
og kom þar í ljós
að endurnýjun í
sveitarstjórnum
er mikil, sérstak-
lega hjá smærri
sveitarfélögum,
og að konur sitja
skemur en karlar.
Spurð hvers vegna hún ákvað að
kanna þetta svarar Eva að hún hafi
orðið vör við mikið brottfall í kosn-
ingunum fyrir fjórum árum. „Fólk
virtist endast í skamman tíma og ég
var búin að heyra marga segja að lík-
legasta lausnin við því væri að
hækka laun sveitarstjórnarfólks.
Mig langaði að sjá hvort ég sæi eitt-
hvert mynstur í þessu og hvort ég
gæti greint einhverja áhrifavalda."
Könnunin var send til allra þeirra
504 sem voru kjörnir 2014, svarhlut-
fall var 60%.
Hraðari endurnýjun en áður
40% þeirra sem svöruðu voru
ákveðnir í að gefa ekki aftur kost á
sér í kosningunum í ár. „Þar ofan á
átti eftir að koma breytileikinn sem
kemur í kosningunum þannig að við
erum að sjá tæpa 60% endurnýjun.
Upp úr 1990 vorum við með heildar-
endurnýjun upp á um 40% þannig að
við erum að missa fólk miklu hraðar
út heldur en var áður. Það kom líka í
ljós að endurnýjunin virðist að ein-
hverju leyti tengd stærð. Eftir því
sem sveitarfélögin eru minni var lík-
legra að fólk væri að hætta, í stóru
sveitarfélögunum var ástandið ekki
gott heldur en þó aðeins skárra. En
þessi hraða endurnýjun er augljós-
lega tengd stærð,“ segir Eva Marín
sem telur álag, fremur en laun, spila
þar stóra rullu.
„Álagið á sveitarstjórnarfólk hef-
ur verið að aukast gríðarlega. Í
minni sveitarfélögum er seta í sveit-
arstjórn aukaverkefni fólks sem er
oft í fullri vinnu. Verkefni sveitar-
stjórna eru orðin fleiri og flóknari og
kannski hefur stjórnsýslan ekkert
stækkað mikið í minni sveitarfélög-
unum sem gerir það að verkum að
þar þarf sveitarstjórnarfólk að setja
sig inn í fleiri verkefni og reiða sig
meira á sjálft sig.“
Konur sitja skemur
Það kom líka í ljós í könnun Evu
Marínar að konur eru líklegri til að
hætta í sveitarstjórnum en karlar
eftir skamma setu. „Í síðustu kosn-
ingum sáum við um 60% endurnýjun
hjá konum en um 50% hjá körlunum.
Þar kemur álagið líklega líka inn í en
í rannsókninni var spurt hversu
miklum tíma fólk eyddi í ólaunuð
störf t.d. tengd fjölskyldu og þá kom
sérstaklega fram að konur eyddu
umtalsvert meiri tíma í ólaunuð
verkefni. Áhugi fólks á félagsstörf-
um er kannski líka að breytast, þetta
er í eðli sínu sjálfboðaliðastarf og þó
fólk fái greitt fyrir er það að sinna
því í sínum frítíma. Það þarf að fórna
einhverju til að taka þátt í því og
konur virðast oftar meta það sem svo
að þær séu ekki að fá það út úr þess-
um verkefnum sem geri það þess
virði að vera í þeim.“
Til að hægt sé að snúa þessari þró-
un við segir Eva Marín að það þurfi
að byrja að skoða vinnuumhverfi
sveitarstjórnarfólks. „Það þarf að
skoða starfsumhverfi sveitarfélaga
bæði sveitarstjórnina, samband
hennar við bæjar- eða sveitarstjóra
og stjórnsýsluna."
Reynsla og þekking hverfur
Ekki hefur skort á að fólk bjóði sig
fram í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum og segist Eva Marín bíða
spennt eftir að sjá hver endurnýj-
unin verður. „Ég hef líka áhuga á að
sjá hvað gerist eftir fjögur ár, hvort
við náum að halda þessu fólki inni.
Þegar flestir fara út eftir eitt kjör-
tímabil verður hætta á of mikilli end-
urnýjun, þá hverfur heilmikil
reynsla og þekking og fólk er alltaf
að byrja upp á nýtt. Það er eðlilegt
að það séu einhver útskipti en það er
vont ef það eru allir í einu.“
Mikil endurnýjun í sveitarstjórnum
Um 60% sveitarstjórnarfólks snúa ekki aftur að loknum kosningum Fulltrúar í minni sveitarfélögum
og konur líklegri til að hætta eftir skamma setu Mikið álag áhrifaþáttur að sögn stjórnmálafræðings
Hlutfall kjörinna fulltrúa og fjöldi kjörtímabila
50%
40%
30%
20%
10%
0%
1 kjörtímabil 2 kjörtímabil 3 kjörtímabil 4 kjörtímabil 5 kjörtímabil
Heimild: Dutiful citizen or a pragmatic
professional? Voluntary retirement of Icelandic
local councillors. Eva Marín Hlynsdóttir, 2017.
50%
26%
12%
6% 6%
Í könnun árið 2017 var
helmingur kjörinna fulltrúa
á sínu fyrsta kjörtímabili
76% kjörinna fulltrúa höfðu
verið tvö kjörtímabil eða skemur
Sveitarstjórnir
» Í könnuninni svöruðu rúm
40% þeirra sem sitja í sveit-
arstjórnum að þau væru
ákveðin að hætta, tæp 30%
voru enn að hugsa málið og
30% stefndu á að halda áfram.
» Í síðustu þrennum sveitar-
stjórnarkosninum hafa um sex
af hverjum tíu fulltrúum í
sveitarstjórnum verið nýir. Er
það hærra hlutfall en í ná-
grannalöndunum þar sem þrír
eða fjórir af hverjum tíu eru
nýir.
» Aukið álag á sveitarstjórn-
arfólk með fleiri og flóknari
verkefnum gæti átt þátt í mik-
illi endurnýjun.
» Fjöldi sveitarstjórna hefur
farið úr 204 árið 1990 niður í
74 árið 2017. Kjörnir fulltrúar í
sveitarstjórnum eru nú 504
m.v. 1116 árið 1990.
» Meðalaldur sveitarstjórn-
arfólks á Íslandi árið 2014 var
45,8 ár.
» Að meðaltali eyðir sveit-
arstjórnarfólk 40,9 klukku-
stundum á mánuði í vinnu
tengda starfinu, samkvæmt
könnun Evu Marínar.
Eva Marín
Hlynsdóttir
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Sumarbústaður við Elliðavatn brann
til grunna í fyrrinótt. Eldur og reyk-
ur sást víða að og bárust slökkvilið-
inu nokkrar tilkynningar um eldinn.
Þegar á staðinn var komið var bú-
staðurinn alelda og „að falli kominn“
að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu
á höfuðborgarsvæðinu.
Ákveðið var að láta bústaðinn
brenna og leggja frekar áherslu á að
vernda gróðurinn í kring enda væri
vettvangurinn innan vatnsverndar-
svæðis. Slökkvistarfi lauk um klukk-
an hálfsjö í gærmorgun, en eldsupp-
tök eru enn ókunn.
Á laugardagskvöld barst slökkvi-
liðinu tilkynning um eld í íbúð í Vest-
urbæ Reykjavíkur. Reyndist hann
minniháttar og þegar slökkviliðs-
menn komu á vettvang hafði þegar
tekist að ráða niðurlögum eldsins.
Íbúðina þurfti þó að reykræsta.
Maður á gangi með exi
Lögreglu var á laugardag tilkynnt
um mann á gangi í hverfi 104, vopn-
aðan exi. Var hann handtekinn fljót-
lega og reyndist vera í annarlegu
ástandi vegna fíkniefnaneyslu. Á
manninum fundust engin efni sem
talið er að séu fíkniefni.
Aðfaranótt sunnudags var mikill
erill í miðborg Reykjavíkur, svo mik-
ill að fangageymslur lögreglu fyllt-
ust. Vista þurfti einstaklinga tíma-
bundið í fangageymslu
lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði.
Að mestu var um ölvunar- og fíkni-
efnamál að ræða, auk slagsmála, en
þrjú innbrot voru þó einnig tilkynnt.
Sumarbústaður
brann til grunna
Mikill erill hjá lögreglu um helgina
Morgunblaðið/Eggert
Eldur Áhersla var lögð á að bjarga
gróðri í nágrenni bústaðarins.
Umsóknarfrestur um embætti for-
stjóra Vegagerðarinnar hefur verið
framlengdur.
Samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra auglýsti upphaflega
embættið 6. apríl með umsókn-
arfresti til 23. apríl. Á föstudaginn
birtist auglýsing frá samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu, þar sem
umsóknarfresturinn er tilgreindur
19. maí n.k.
Ákveðið var að framlengja um-
sóknarfrestinn þar sem, að athug-
uðu máli, hann þótti hafa verið
ákvarðaður of stuttur í upphafi,
samkvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu.
Ráðherrann, Sigurður Ingi Jó-
hansson, skipar forstjóra Vegagerð-
arinnar til fimm ára frá 1. júlí nk. Þá
lætur Hreinn Haraldsson af embætti
vegamálastjóra fyrir aldurs sakir.
Þá verður jafnframt hætt að nota
embættisheitið vegamálastjóri og
forstjóraheitið tekið upp í staðinn.
sisi@mbl.is
Umsóknarfrestur um embætti forstjóra
Vegagerðarinnar framlengdur