Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR * Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkumætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. Fæst í öllum helstu apótekum landsins. Sýning á myndasögum úr samkeppni var Sigraði Erna Mist Pétursdóttir er sigurvegari myndasögukeppninnar. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Næstkomandi föstudag munu út- skriftarnemendur frá leikarabraut sviðslistadeildar LHÍ frumsýna loka- verkefni sitt í Kassanum í Þjóðleik- húsinu, leikritið Aðfaranótt eftir Kristján Þórð Hrafnsson í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Verk Kristjáns bar sigur úr býtum í leikritasamkeppni sem sviðs- listadeild LHÍ hélt í samstarfi við Félag leikskálda og handritshöfunda en áður hefur Kristján látið að sér kveða sem leikskáld, ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og þýðandi. Hann hlaut Grímutilnefningar fyrir leikritin Böndin á milli okkar og Fyr- ir framan annað fólk en á síðarnefnda verkinu byggði Óskar Jónasson leik- stjóri samnefnda kvikmynd sína. Kristján er með mörg járn í eldinum og vinnur núna að því að þýða Rík- harð III eftir Shakespeare, en verkið verður sett á fjalirnar í Borgarleik- húsinu næstu jól í leikstjórn Bryn- hildar Guðjónsdóttur. Kristján segir að þegar hann sá leikritasamkeppnina auglýsta í lok árs 2016 hafi hann átt í fórum sínum hugmynd að leikriti sem hann taldi að gæti fallið vel að kröfum keppn- innar. Hann segir það hafa verið skemmtilegt framtak hjá Listahá- skólanum að halda samkeppni af þessu tagi og til þess fallið að efla ís- lenska leikritun. Að fá sérsamið verk þýðir líka að nemendurnir geta spreytt sig á leikriti þar sem ákveðið jafnvægi er á milli hlutverka. „Í keppninni var höfundum uppálagt að hafa jafnmörg hlutverk og nemendur í útskriftarárganginum eru, og skrifa hlutverkin þannig að allir fengju tækifæri til að láta ljós sitt skína,“ segir Kristján. „Í þessum form- kröfum var fólgin ákveðin áskorun, enda algengast að leikrit séu með fáum aðalhlutverkum og svo nokkr- um minni hlutverkum sem fá ekki sama vægi á sviðinu.“ Rannsakar mannlegt eðli Í Aðfaranótt er sagt frá því þegar leiðir nokkurra ungra manneskna liggja saman á skemmtistað í Reykjavík eitt laugardagskvöld. „Sumar persónurnar þekkjast, aðrar ekki. Það er ákveðin spenna í loftinu, vissar væntingar, en líka innibyrgð reiði og ákveðin mál sem eru óupp- gerð. Áður en nóttin er á enda er ein af þessum manneskjum látin, og önn- ur er með mannslíf á samviskunni.“ Að sögn Kristjáns langaði hann að rannsaka í verkinu hvernig innri sársauki og vanlíðan geta magnast upp og brotist út í árásargirni. „Það er áhugavert hvað árásargirnin get- ur tekið á sig breytilegar myndir: hún getur verið líkamleg eða komið fram í orðum; hún getur birst í ókurteisi, ákveðinni tegund af húm- or, yfirlýsingagleði, öfgafullum skoð- unum og ögrunum.“ Þessi forvitni um árásargirnina tengist áhuga Kristjáns á því hvernig manneskjur reyna stundum að ná valdi hver yfir annarri. „Fólk beitir til þess ólíkum vopnum, og beitir of- beldi sem getur verið líkamlegt eða andlegt, en þegar ofbeldið er andlegs eðlis þá getur það orðið svo lúmskt, og jafnvel virkað sakleysislegt á yf- irborðinu. Sumt fólk hefur tilhneig- ingu til að reyna að ná valdi á tilfinn- ingum annarra, nýta sér veikleika þeirra eða viðkvæmni, og jafnvel misnota vináttu þeirra, góðvild og ást,“ segir Kristján og bætir því við að þótt leikrit hans fjalli um átök fólks þá sé líka alltaf í þeim ákveðinn húmor. „En Aðfaranótt er kannski harkalegasta skáldverkið sem ég hef sent frá mér, og það verk sem kemst næst því að vera harmleikur.“ Talandi um harmleiki, þá er það Ríkharður III hertogi af Gloucester sem á allan hug Kristjáns um þessar mundir. Borgarleikhúsið bað Krist- ján að þýða verkið fyrir jólasýn- inguna í ár en áður hefur hann þýtt fjölda verka fyrir Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, Útvarpsleikhúsið, Ís- lensku óperuna og ýmsa sjálfstæða leikhópa. Má þar nefna Mannsrödd- ina eftir Jean Cocteau, Föðurinn eft- ir Florian Zeller og Eldraunina eftir Arthur Miller. Listrænir eiginleikar hins bundna máls Ríkharður III er samt fyrsta Shakespeare-verkið sem Kristján spreytir sig á, og raunar í fyrsta sinn sem hann þýðir leikrit sem er ekki 20. aldar verk. Kristján segir mögu- lega skýringu á því að honum var fal- ið þetta verkefni vera að í ljóðabók- um sínum sé hann vanur að yrkja háttbundið, og nýtist það vel þegar glímt er við texta Shakespeare. En er ekki úr tísku að yrkja hátt- bundið? Hvers vegna semur Kristján ekki frekar óhlutbundin atómljóð? Ástæðan er ást hans á braglistinni. „Braglistin verður til við glímu skáldsins við að mæta kröfum hins háttbundna ljóðforms, og orða hugs- anir innan þeirra skorða sem formið setur. Bundið mál setur skáldum óhjákvæmilega skorður, og reynir einmitt þess vegna á hugkvæmni þeirra, orðfimi og hagmælsku. Bund- ið mál getur þannig öðlast ákveðna listræna eiginleika sem frjálsa form- ið býður ekki upp á. Þó skáldið fórni ákveðnu frelsi þá skapar formið ákveðinn kraft,“ segir hann. „Það heillar mig líka að í bundnu máli er fólginn seiður, sem hlýst af hljómi setninganna og tónlistinni sem verð- ur til í tungumálinu.“ Kristján gerir samt ekki upp á milli háttbundinna og óháttbundinna ljóða. „Mér finnst ánægjulegt að það viðhorf virðist ríkjandi í dag, ólíkt því sem var t.d. um miðja síðustu öld, að hið háttbundna ljóðform sé hvorki hið eina rétta ljóðform né úrelt form Árásargirnin tekur á sig breyti  Í nýju leikriti Kristjáns Þórðar Hrafnssonar skoðar hann m.a. samband innri sársauka og árásargirni  Kristján þýðir núna Ríkharð III fyrir jólasýningu Borgarleikhússins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.