Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Side 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.5. 2018 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2018 GMC Sierra SLT 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. Litur: Silver, svartur að innan. Einnig til Stone Blue, Dark Slate og Red Quartz VERÐ 9.590.000 m.vsk 2018 GMC Denali 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, Nýr 2018 Denali (nýja útlitið). Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, geymsluhólf undir aftur- sæti, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 9.990.000 m.vsk 2018 GMC Sierra SLT Q6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. Litur: Stone blue, svartur að innan. Einnig til Dark Slate, Silver og Red Quartz VERÐ 9.590.000 m.vsk 2018 GMC Denali - 35” breyttur 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, geymsluhólf undir aftursæti, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. 35” breyttur með brettakanta, 35” dekk og krómfelgur. Öll standsetning innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 10.690.000 m.vsk Það gætti ýmissa grasa á sam- félagsmiðlunum í vikunni. Flestir voru að spá í fótbolta, launa- málum í Hörpu eða Eurovision. Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur með meiru, tísti: „Merkilegt. Mað- ur skynjar ein- hvern veginn tak- markaða stemmingu fyrir almennri símakosningu um val í landsliðið.“ Steingrímur Sævarr Ólafs- son kom aftur á móti með pæl- ingar um tungu- málið og tísti: „Hvaða kvikindi ákvað að hafa bókstafinn s í orðinu smámæltur? Sama kvikindi og ákvað að hafa r í skroll?“ Edda Sif Pálsdóttir íþrótta- fréttamaður sagði ekki farir sínar sléttar af net- verslun og tísti: „Keypti voða fín- an sumarkjól á Asos sem reyndist vera viðbjóður. Heppilegt að það sem kom næst upp úr kassanum var annað ein- tak af sömu flík.“ Tónlistarkonan Salka Sól Ey- feld tísti um gjaf- ir: „Bað foreldra mína um góðan hníf í eldhúsið í afmælisgjöf. Þau harðneituðu, því maður á víst ekki að gefa hnífa í gjafir.“ Kamilla Einarsdóttir bóka- vörður tísti: „Ég elska kisur og finnst kisukaffi- húsið frábært, en er ekki líka pláss fyrir hundakaffi- hús? Ég væri oft til í að geta sest niður með latte og sagt einum öldruðum labrador frá öllu sem hefur gengið á í mínu lífi.“ Og tónlistarmaðurinn og skáld- ið Atli Sigþórs- son, eða Kött Grá Pje, tísti: „Smám saman hef ég hætt að trúa nokkrum sköp- uðum hlut sem ég les eða heyri. Allt er lygi, þar til annað kemur í ljós. Allt er plat, stundum með stöku sannleiks- korni. Aðeins skemmtanagildi blíf- ur. Hafa skal það sem sniðugra reynist.“ AF NETINU Undirritaður er stjórnmála-fræðingur með tilskilinnstimpil frá háskólanum í Edinborg. Reyndar er ég fyrst og fremst sagnfræðingur ef út í það er farið en þessa stjórnmálagráðu hef ég engu að síður líka upp á vasann. En hvers vegna að vekja máls á því? Ástæðan er sú að mig langaði að deila með ykkur óbærilegri frá- hvarfstilfinningu sem ég stundum fæ frá þessari háskóla- gráðu. Hún leitar á mig þegar vitnað er í þessa samferðamenn mína á menntabrautinni og þá fyrst og fremst þegar þeir eru gerðir að eins konar handhöfum sann- leikans. Stundum má nefnilega skilja það sem svo að í reynd viti stjórnmálamenn af- skaplega lítið um það sjálfir sem þeir eru að reyna að segja; hvað þeir raunverulega meini. Fagmenn þurfi til að greina hugsanir þeirra. Sama gildi um örlagasögu stjórn- málaflokka. Mat stjórnmálafræð- ingsins hljóti þar einnig að vera sjálfur sannleikurinn enda byggt á vísindalegri athugun hans. Þess vegna fáum við fréttir á borð við þessa ímynduðu frásögn í fréttahelsti útvarpsstöðva: „Sjálf- stæðisflokkurinn er að hruni kom- inn!“ Stórfrétt að sjálfsögðu ef sönn væri, sem vel gæti verið að sjálfsögðu. Minna fer fyrir botn- inum, „… segir stjórnmálafræð- ingur“. Fréttin fengi allt aðra ásýnd og vægi ef hún væri umorð- uð: „Stjórnmálafræðingur telur að Sjálfstæðisflokkurinn sé að hruni kominn.“ Við gætum haldið þessum leik áfram. „Það var hinn íhaldssami armur VG sem var í uppreisn gegn ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur,“ staðhæfir stjórnmálafræð- ingur í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Og þetta er ekki skáld- aður texti, heldur raunverulegur. Þetta eru hins vegar nýjar fréttir fyrir okkur sum hver. En svo rýn- um við betur í textann og sjáum að stjórnmálafræðingurinn er ekki bara stjórnmálafræðingur, heldur líka fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar. Nú verður allt skiljanlegra. And- staða við að undirgangast frekari miðstýringu frá Brüssel og mark- aðsvæðingartilskipanir þaðan er náttúrlega íhaldssöm afstaða í huga slíks manns. Flestir á róttækari kanti stjórn- málanna myndu greina ágreining- inn með þveröfugum formerkjum; að þau sem stóðu harðast gegn einkaframkvæmd og verstu tilskip- unum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði varla skilgreind með þessum hætti. Samkvæmt formúlu vara- þingmannsins fyrrverandi er Tony Blair þannig fulltrúi róttækni en Jeremy Corbyn íhald eins og Ber- nie Sanders en Hillary Clinton svo aftur róttæk, þrátt fyrir alla sína þræði inn í Wall Street. Þannig getur hjálpað að segja deili á stjórnmálafræðingnum sem talar. Stjórnmálafræðingarnir Baldur Þórhallsson og Ögmundur Jónasson komast þannig að ger- ólíkri niðurstöðu. Í umræddri umfjöllun sem bar yfirskriftina „Af villiköttum“, eru vangaveltur, eflaust mjög fræði- legar, um „hegðun“ þeirra sem rákust ekki eins og sauðir í eftir- hruns-ríkisstjórnarsamstarfinu og hve erfitt hlutskipti það hljóti að hafa verið fyrir Jóhönnu og Stein- grím, formenn stjórnarflokkanna, að hafa fólk innanborðs sem „hag- aði sér“ á þá lund sem við gerðum sum, villikettirnir. Nú hef ég þá prívatkenningu að vangaveltur af þessu tagi muni verða innlegg í stjórnmálafræði- kennslu í framtíðinni þeg- ar leita þarf dæma um þá tíð þegar háskólaprófess- orar skilgreindu góðan stjórnmálamann sem leiðitaman og meðfæri- legan, handhægt verk- færi, en ekki einstakling með sjálfstæða dóm- greind. Í þeirri framtíð sem ég er að hugsa til munu for- ingjar stöðugt þurfa að standa frammi fyrir því að máta gjörðir sínar við gefin fyrirheit og stefnu – gerólíkt viðfangsefni hins pólitíska sauðahirðis á 20. öldinni og önd- verðri hinni 21. Trúverðugleikinn verður þá það sem máli skiptir og sömuleiðis sú tegund lýðræðis sem byggist á því að virða rétt hvers og eins til að fylgja samvisku sinni. Við gætum byrjað að hugsa á þennan veg þeg- ar í stað. Það er meira að segja bráðnauðsynlegt, leyfi ég mér að fullyrða. Og þar höfum við það: „Að vanrækja þessa hugsun er ekki bara íhaldssemi heldur skað- legt afturhald … segir stjórnmála- fræðingur.“ „ … segir stjórnmálafræðingur“ ’Nú hef ég þá prívatkenningu aðvangaveltur af þessu tagi muni verðainnlegg í stjórnmálafræðikennslu í fram-tíðinni þegar leita þarf dæma um þá tíð þegar háskólaprófessorar skilgreindu góð- an stjórnmálamann sem leiðitaman og meðfærilegan, handhægt verkfæri, en ekki einstakling með sjálfstæða dómgreind. Morgunblaðið/Ómar Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is SMARTLAND

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.