Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Qupperneq 28
FERÐALÖG Það er mikilvægt að muna eftir sólarvörninni, sér-staklega þegar dvalið er nálægt sjó eða sundlaug því endurkastið af vatninu ýtir undir áhrif sólarinnar. Ekki gleyma sólarvörn 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.5. 2018 Sætir strandbæir Íslendingar sækja gjarnan í sólríka staði á sumrin og ekki er verra ef þeir eru við sjóinn. Hér eru taldir um sjö skemmtilegir strandbæir í Suður-Evrópu sem vel eru þess virði að sækja heim. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Suðvesturströnd Frakklands er vinsæl hjá brimbrettafólki en bærinn Saint-Jean-de-Luz er með rólegri vík þar sem ferða- menn geta baðað sig á sand- strönd í vari fyrir stórum öldum. Ströndin er nokkuð stór og er því yfirleitt hægt að finna róleg- an stað. Fyrir þá sem vilja elta öld- urnar er síðan stutt í frægar brimbrettastrendur á borð við Erromardie, Lafiténia og Cénitz. Bærinn er mjög nálægt landa- mærunum við Spán þannig að þar gætir mikilla baskneskra áhrifa. Baskneskar pönnukökur sem kallast taloas eru vinsælar hjá baðgestum en þær eru gerð- ar bæði með maísmjöli og hveiti og gjarnan bornar fram með ís úr sauðamjólk. Maturinn í bæn- um þykir almennt góður og arki- tektúrinn er líka á meðal þess sem dregur fólk að honum. Bærinn hefur lengi notið vin- sælda sem sumardvalarstaður. Hann er líka þekktur fyrir að þar fór fram brúðkaup sólkonungs- ins Loðvíks 14. og Maríu Teresu Spánarprinsessu. GettyImages/iStockphoto SAINT-JEAN-DE-LUZ Basknesk stemning Sanlúcar á Spáni hefur lengi verið vinsæll bær hjá hefðar- fólki frá Sevilla, sem er í rúm- lega hundrað kílómetra fjar- lægð. Bærinn tilheyrir Anda- lúsíu og hefur verið í byggð síðan fyrir Krist. Nú búa þar í kringum 70.000 manns. Stað- setning bæjarins var mikilvæg í Ameríkuferðum Spánverja á 15.-17. öld. Sanlúcar er nú vinsæll sum- arleyfisstaður og er staðurinn þekktur fyrir matargerð sína, ekki síst manzanilla-sérrí og sjávarrétti. Hann er líka þekkt- ur fyrir flamencódans og kapp- reiðar á ströndinni. Kappreið- arnar fara í ár fram dagana 8.-10. ágúst og 22.-24. ágúst. Þarna er gott að baða sig en alls eru sex kílómetrar af sandstrandlengju við bæinn, sem er við ósa Guadalquivir- árinnar og við Doñana- þjóðgarðinn. SANLÚCAR DE BARRAMEDA GettyImages/iStockphoto Kappreiðar og flamencódans Hvítar byggingar og mjúkar hæð- irnar þykja minna á Grikkland en San José í Almería á Spáni er samt sem áður alveg ekta spænskur sumardvalarstaður. Hægt er að leigja sólhlífar og sól- stóla, hjólabáta og kajaka til að skemmta sér á ströndinni. Aðalströndin er breið og þakin hvítum sandi en einnig er að finna þarna nálægt minni strandir sem hægt er að fara til með strætó. Fjöldi veitingastaða er við aðalströndina. GettyImages/iStockphoto SAN JOSÉ Flottur stað- ur fyrir alla fjölskylduna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.