Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 9
Í dag
Þórlindur
Kjartansson
Það getur farið óskaplega í taug-arnar á mér að sjá á Facebook hversu fyrirhafnarlítið það er hjá sumu fólki að lifa ham-ingju- og árangursríku lífi. Hver
einasta fletting er skerandi sönnun þess
að nánast allir sem ég þekki eru fallegri,
hraustari, glaðari og gáfaðri heldur en
ég og þurfa þar að auki ekkert að hafa
fyrir lífinu. Þetta fólk sprettur á fætur á
morgnana, smokrar sér í latex hlaupa-
eða hjólaföt, brunar svo tugi kílómetra
á fótum eða hjólum á öskrandi hraða,
kemur svo fallega rjótt og ósveitt aftur
heim, skellir sér í sturtu og birtist þaðan
út með fullkomna og flekklausa húð
tilbúið til þess að vinna fleiri stórsigra
á vettvangi atvinnulífs, stjórnmála eða
fjölskyldulífs.
Stærstu sigrarnir í glæsileikakeppninni
vinnast þó yfirleitt í sumarfríum; ýmist í
hasarferðum um hálendið eða sæluferð-
um á sólarströnd. Á fjöllum geislar fólk af
fegurð, hreysti og lífskrafti í óaðfinnan-
lega litasjatteruðum hátæknilegum
útivistarfatnaði, og á sólarströndinni
flatmagar það á sólbekkjum með óátekið
frissandi ferskt kampavínsglas við hönd-
ina, gáfulega flugvallarbók í kjöltunni og
vöðvastælt glansandi sólbrún læri sem
vísa út að heiðblárri sundlaug og ský-
lausum himni. Svona einhvern veginn
er líf allra; nema auðvitað mitt eigið og
minna allra nánustu.
Fyrirhafnarlitlu ritverkin
Fyrir utan þessar hreysti- og hamingju-
myndir fara einna mest í taugarnar á mér
færslur þar sem fólk sýnir að það hafi
lokið við einhvers konar stórvirki; hvort
sem það er að setja upp veggi í íbúðinni
sinn, fúaverja palla, elda ómótstæði-
legar kræsingar eða—sem er það versta
af öllu—að senda frá sér einhvers konar
ritverk eins og lokaritgerð í námi eða
viðlíka.
Þegar ég sé að einhver hefur skilað
langri ritgerð geri ég mér umsvifalaust í
hugarlund að höfundurinn hafi unnið
það jafnt og þétt af fullkomnum aga og
eftir fyrirframákveðnu skipulagi, þannig
að stundirnar við lyklaborðið hafi verið
afslappaðar og huggulegar—hugsan-
lega með klassískri tónlist, kamillutei og
kertaljósi—og svo hafi hin endanlega
afurð runnið mótþróalaust út úr prentar-
anum löngu áður en skilafrestur rann út.
Það er alveg sama hvað hver segir mér,
í hjarta mínu trúi ég því einlæglega að
þetta sé svona hjá öllum öðrum.
Verkferlar í molum
Þetta er nefnilega ekki svona hjá mér.
Um daginn ætlaði ég til dæmis að byrja
að skrifa klukkan 23.30 um kvöld því
enginn annar tími var mögulegur. Þá
gerist þetta:
Klukkan er 23.20. Ég sit í stól í stofunni
og les bók um það hvernig hægt er að
auka einbeitingarhæfileika sína. Klukkan
23.24 fer ég aðeins að vafra á netinu og
skoða Facebook og ég hugsa með mér
að ég þurfi að fara fram á gang með gler-
augnahlustrið og ganga frá sólgleraug-
unum svo ég þurfi ekki að leita í panikki
daginn eftir. Svo ætti ég að drífa í að setja
upp vinnudótið og þá get ég verið byrj-
aður að skrifa fyrir hálf tólf. Nægur tími,
hugsa ég, þannig að ég geri hvorugt en
slæpist aðeins lengur og ég sé að klukkan
er orðin 23.28 og ég hugsa að nú þurfi ég
að haska mér af stað. Ég geri það ekki.
Ég skoða aðeins meira á Facebook og
klukkan er orðin 23.30. Damn. En ég
stend samt ekki upp. Kíki á eitthvað eitt
í viðbót. Klukkan er 23.32. Þetta er ekki
svo slæmt ef ég byrja núna hugsa ég, en
geri það ekki heldur týni mér í nokkrar
sekúndur og klukkan er skyndilega orðin
23.38. Ansans.
Ég stend loksins upp til þess að sækja
heyrnartólin inn í sjónvarpsherbergi
því án þeirra get ég ekkert skrifað. Þegar
þangað er komið man ég ekki lengur af
hverju ég fór þangað inn þannig að ég
rápa aftur út. Best að fylla á sódavatns-
flöskur.
Ráp og ráðleysi
Svo fer ég á klósettið frammi í forstofu og
heyri þá að annað barnið er að tala upp
úr svefni. Ég klára klósettferðina og fer
inn í sjónvarpsherbergi og sæki heyrnar-
tólin og set þau fram á stofuborðið. Þá
mundi ég að ég ætlaði að athuga með
barnið sem var talandi upp úr svefni. Fer
þangað og geng úr skugga um að allt sé í
lagi. Ég labba aftur fram og man þá eftir
að ég ætlaði að sækja heyrnartólin mín
inni í sjónvarpsherbergi og fer þangað.
Þau eru ekki þar.
Ég labba aftur fram og sé að þau liggja á
stofuborðinu. Þau eru batteríslaus.
Ég set notaða batteríið í afskornu kók-
flöskuna sem er full af ónýtum batteríum
síðustu fimm ára. Svo opna ég alltmögu-
legtskúffuna og finn réttu týpuna af
batteríi. Ég finn til töskuna mína og set
hana á stól við eldhúsborðið og stilli upp
lyklaborði og tölvu. Klukkan er 23.48 og
ég set á mig heyrnartólin tilbúinn til að
skrifa. En heyrnartólin virka ekki.
Ég skoða þau og það kemur í ljós
að lokið fyrir batteríið er opið og þar
inni er ekkert batterí. Ég held ennþá á
batteríinu. Ég set batteríið í heyrnartólin
og man þá að ég á eftir að skoða hvort ég
hafi fengið tölvupóst vegna fundar sem
ég á morguninn eftir. Ég geri það og fer á
Facebook.
Þá er ég tilbúinn og get byrjað að
skrifa. Klukkan er 23.53. Allt í einu man
ég að ég á eftir að stilla vekjaraklukkuna
fyrir morgundaginn svo ég geri það. Og
enn ég veit ég ekki um hvað ég ætla að
skrifa og klukkan orðin 23.58. Kannski
skrifa ég bara um ekki neitt eða fer aftur
að lesa bókina um einbeitinguna. Ekkert
kamillute, engin klassísk tónlist, engin
kerti.
Raunveruleikinn bítur
Þrátt fyrir allar glansmyndirnar sem
mann langar oft að trúa um aðra, og
skapa um sjálfan sig þá er raunveruleik-
inn líklega svipaður hjá okkur flestum.
Jafnvel hörðustu hlaupahetjur þurfa oft
að taka á honum stóra sínum til þess
að komast af stað, sumir dagar í bestu
fjölskyldufríum eru markaðir af streitu,
pirringi og mótþróa en ekki eintómri
hamingju og ævintýraþrá. Og jafnvel þeir
sem hafa hundrað sinnum áður þurft að
skila af sér skrifum sitja ekki afslappaðir
og yfirvegaðir heldur eirðarlausir en
angistarfullir við lyklaborðið langt fram
á nótt og geta ekki fyrir sitt litla líf kreist
fram hálft orð af viti. En maður setur það
auðvitað ekki á Facebook.
Pistill um ekkert
Stærstu sigrarnir í glæsileika-
keppninni vinnast þó yfirleitt
í sumarfríum; ýmist í hasar-
ferðum um hálendið eða sælu-
ferðum á sólarströnd.
ramisland.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500. NÝ SENDING VAR AÐ LENDA.
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT,
LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 5.960.000 ÁN VSK.
KR. 7.390.400 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED
40” BREYTTUR
RAM 3500 fæst með og án Aisin skiptingar og RAM boxa.
Bjóðum upp á 37” til 40” breytingar. 35” dekk fara beint undir án breytinga.
Bjóðum upp á ýmsar gerðir húsa og aukahluta.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9F Ö S T u d a g u R 1 0 . á g ú S T 2 0 1 8
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
D
-A
3
0
C
2
0
8
D
-A
1
D
0
2
0
8
D
-A
0
9
4
2
0
8
D
-9
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K