Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 20
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 Aron Einar Gunnarsson endurnýjar kynni sín við ensku úrvalsdeildina með liði sínu, Cardiff City, en félagið tryggði sér sæti í deildinni í vor eftir fjögurra ára veru í B-deildinni. Aron Einar var í nokkuð stóru hlutverki síðast þegar liðið var í deild þeirra bestu, en hann spilaði þá 23 leiki og skoraði eitt mark í þeim leikjum. Aron Einar spilaði með íslenska landsliðinu á heimsmeistara- mótinu í Rússlandi í sumar, án þess að hafa jafnað sig að fullu eftir aðgerð sem hann fór í vegna ökklameiðsla sinna. Því er líklegt að hann verði vafinn inn í bómull í fyrstu leikjum liðsins og hlutverk hans í liðinu muni svo verða stærra þegar hausta fer. Hann fékk samkeppni um stöðu sína inni á miðsvæðinu þegar spænski miðvallarleikmaðurinn Victor Cam arasa kom til liðsins frá Real Betis og Harry Arter frá Bournemouth, en annars hefur Neil Warnock leitað til fyrrverandi keppinauta sinna í B-deildinni í leit sinni að styrkingu á leik- mannahópnum. Búast má við því að Aron Einar og liðsfélagar hans muni berjast í bökkum deildarinnar og mark- miðið verði að verða nær miðj- unni en fallsvæðinu. Liðið er með reyndan knattspyrnustjóra sem þekkir deildina vel og þá kúnst að sleppa við falldrauginn. Stundum hefur það tekist og stundum ekki og vonum við að það heppnist að þessu sinni. Barátta við að forðast fallið Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum. Virkar vel gegn þynnku 2 töflur fyrir fyrsta drykk 2 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana www.artasan.is Morgundagurinn verður betri með After Party Náttúruleg lausn við timburmönnum Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff fyrr í sumar. NordiCpHotoS/GEtty Gylfi Þór Sigurðsson er að hefja sitt sjöunda heila tíma-bil í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Everton mætir nýliðum Úlfanna í erfiðum útileik strax í fyrstu umferð. Er hann að hefja annað ár sitt í herbúðum Everton eftir að hafa áður leikið með liðum Swansea og Tottenham. Mun Gylfi eflaust hagnast á því að hafa náð að fá undirbúningstíma- bilið með liðsfélögum sínum til að komast betur í takt í stað þess að koma inn þegar tímabilið er að hefjast. Það er ferskur blær yfir Goodi- son Park þessa dagana eftir að Marco Silva tók við liðinu á dög- unum og er honum ætlað að brjóta Everton leið inn í hóp sex efstu liðanna. Stuðningsmenn Everton voru fegnir að sjá á eftir Sam Allar- dyce á vordögum og fengu inn stjóra sem félagið var að eltast við en fékk ekki að semja við síðasta haust. Hefur Silva sótt tvo brasilíska kantmenn í sumar, Bernard og Richarlison ásamt þríeyki frá Barcelona: Yerry Mina, André Gomes og Lucas Digne, og ætti það að henta Gylfa vel. Með Bernard, Richarlison og Digne ætti að koma meiri breidd í spilamennskuna og liðið, sem ekki var til staðar í fyrra þegar Gylfa var oft ýtt út á kantinn til að koma fyrir leikmönnum eins og Wayne Rooney. Þá lék hann ýmist sem kantmaður, miðju- maður eða fékk að spreyta sig sem framherji undir stjórn Allardyce. Sagan ætti ekki að endurtaka sig undir stjórn Silva sem vill spila 4-3-3 leikkerfi og gæti Gylfi þar fengið stórt hlutverk sem annar miðjumannanna sem hafa frelsi til að sækja. Þá reiðir lið Silva sig mikið á fljóta kantmenn sem geta sprengt upp leikinn og eru fáir betri í deildinni en Íslendingurinn í að finna plássið fyrir aftan bak- verðina sem fljótir kantmenn geta leitað í. Sjálfur sagðist Gylfi í samtali við staðarblaðið í Liverpool vera feginn að fá að spila sína stöðu inni á vellinum, á miðri miðjunni, eins og hann hefur gert með góðum árangri fyrir íslenska landsliðið undanfarin ár. „Þjálfarinn vill hafa mig á miðjunni sem er jákvætt, það eru komnir mjög fljótir kantmenn sem teygja á vellinum og vonandi fæ ég að spila á miðjunni og hlutverk mitt verði að finna þá í svæðinu fyrir aftan varnir andstæðinganna. Ég lærði margt af tímabilinu í fyrra, sérstaklega við að spila sem sóknarmaður en það var erfitt,“ sagði Gylfi og hélt áfram: „Það var engin óskastaða og ég var færður meira til en ég bjóst við en ég var tilbúinn að gera hvað sem var fyrir liðið.“ Þegar Rooney er farinn frá félaginu er ljóst að Gylfi verður spyrnusérfræðingur liðsins og ætti það að hjálpa honum að skila betri tölfræði, bæði í markaskorun og stoðsendingum. Pressan sem dýrasti leikmaðurinn í sögu félags- ins, ætti að minnka með kaupunum á Richarlison sem kostaði svipaða upphæð og Gylfi. Draumatímabil hjá Gylfa og Ever- ton væri að allt myndi smella strax undir stjórn Silva og að þeir myndu gera atlögu að sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári. Gylfi væri í lykilhlutverkinu sem hann fær hjá íslenska landsliðinu og þrífst á með landsliðinu. Það verður krefjandi og erfitt fyrir Everton sem hefur aðeins einu sinni á síðustu þrjátíu árum endað meðal fjögurra efstu en kannski er komið að Gylfa að taka liðið á herðar sér og bera það upp á næsta stig, rétt eins og hann hefur gert með landsliðinu. taka Gylfi Þór og Everton framförum undir stjórn Silva? Everton skipti um knattspyrnustjóra og styrkti sig með færri en sterkari leikmönnum en í fyrra. Silva hefur unnið gott starf með öðrum liðum en tekst honum að koma Everton í barátt- una um efstu sex sætin? Þjálfarinn vill hafa mig á miðjunni sem er jákvætt, það eru komnir mjög fljótir kantmenn sem teygja vel á vellinum og vonandi fæ ég að spila á miðjunnni. Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sem hann lagði upp fyrir Michael Keane í vináttuleik Everton á undirbúningstímabilinu í sumar. NordiCpHotoS/GEtty 2 KyNNiNGArBLAÐ 1 0 . ÁG Ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RENSKi BoLtiNN 1 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 D -B B B C 2 0 8 D -B A 8 0 2 0 8 D -B 9 4 4 2 0 8 D -B 8 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.