Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 20
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
Aron Einar Gunnarsson endurnýjar kynni sín við ensku úrvalsdeildina með
liði sínu, Cardiff City, en félagið
tryggði sér sæti í deildinni í vor
eftir fjögurra ára veru í B-deildinni.
Aron Einar var í nokkuð stóru
hlutverki síðast þegar liðið var í
deild þeirra bestu, en hann spilaði
þá 23 leiki og skoraði eitt mark í
þeim leikjum.
Aron Einar spilaði með íslenska
landsliðinu á heimsmeistara-
mótinu í Rússlandi í sumar, án
þess að hafa jafnað sig að fullu
eftir aðgerð sem hann fór í vegna
ökklameiðsla sinna. Því er líklegt
að hann verði vafinn inn í bómull
í fyrstu leikjum liðsins og hlutverk
hans í liðinu muni svo verða stærra
þegar hausta fer.
Hann fékk samkeppni um stöðu
sína inni á miðsvæðinu þegar
spænski miðvallarleikmaðurinn
Victor Cam arasa kom til liðsins
frá Real Betis og Harry Arter frá
Bournemouth, en annars hefur
Neil Warnock leitað til fyrrverandi
keppinauta sinna í B-deildinni
í leit sinni að styrkingu á leik-
mannahópnum.
Búast má við því að Aron Einar
og liðsfélagar hans muni berjast í
bökkum deildarinnar og mark-
miðið verði að verða nær miðj-
unni en fallsvæðinu. Liðið er með
reyndan knattspyrnustjóra sem
þekkir deildina vel og þá kúnst að
sleppa við falldrauginn. Stundum
hefur það tekist og stundum ekki
og vonum við að það heppnist að
þessu sinni.
Barátta við að forðast fallið
Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract,
öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum.
Virkar vel gegn þynnku
2 töflur fyrir fyrsta drykk
2 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana
www.artasan.is
Morgundagurinn
verður betri með
After Party
Náttúruleg lausn við timburmönnum
Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff fyrr í sumar. NordiCpHotoS/GEtty
Gylfi Þór Sigurðsson er að hefja sitt sjöunda heila tíma-bil í ensku úrvalsdeildinni
á morgun þegar Everton mætir
nýliðum Úlfanna í erfiðum útileik
strax í fyrstu umferð. Er hann að
hefja annað ár sitt í herbúðum
Everton eftir að hafa áður leikið
með liðum Swansea og Tottenham.
Mun Gylfi eflaust hagnast á því að
hafa náð að fá undirbúningstíma-
bilið með liðsfélögum sínum til
að komast betur í takt í stað þess
að koma inn þegar tímabilið er að
hefjast.
Það er ferskur blær yfir Goodi-
son Park þessa dagana eftir að
Marco Silva tók við liðinu á dög-
unum og er honum ætlað að brjóta
Everton leið inn í hóp sex efstu
liðanna. Stuðningsmenn Everton
voru fegnir að sjá á eftir Sam Allar-
dyce á vordögum og fengu inn
stjóra sem félagið var að eltast við
en fékk ekki að semja við síðasta
haust.
Hefur Silva sótt tvo brasilíska
kantmenn í sumar, Bernard og
Richarlison ásamt þríeyki frá
Barcelona: Yerry Mina, André
Gomes og Lucas Digne, og ætti það
að henta Gylfa vel. Með Bernard,
Richarlison og Digne ætti að koma
meiri breidd í spilamennskuna og
liðið, sem ekki var til staðar í fyrra
þegar Gylfa var oft ýtt út á kantinn
til að koma fyrir leikmönnum eins
og Wayne Rooney. Þá lék hann
ýmist sem kantmaður, miðju-
maður eða fékk að spreyta sig sem
framherji undir stjórn Allardyce.
Sagan ætti ekki að endurtaka
sig undir stjórn Silva sem vill spila
4-3-3 leikkerfi og gæti Gylfi þar
fengið stórt hlutverk sem annar
miðjumannanna sem hafa frelsi
til að sækja. Þá reiðir lið Silva sig
mikið á fljóta kantmenn sem geta
sprengt upp leikinn og eru fáir
betri í deildinni en Íslendingurinn
í að finna plássið fyrir aftan bak-
verðina sem fljótir kantmenn geta
leitað í.
Sjálfur sagðist Gylfi í samtali
við staðarblaðið í Liverpool vera
feginn að fá að spila sína stöðu inni
á vellinum, á miðri miðjunni, eins
og hann hefur gert með góðum
árangri fyrir íslenska landsliðið
undanfarin ár.
„Þjálfarinn vill hafa mig á
miðjunni sem er jákvætt, það eru
komnir mjög fljótir kantmenn sem
teygja á vellinum og vonandi fæ
ég að spila á miðjunni og hlutverk
mitt verði að finna þá í svæðinu
fyrir aftan varnir andstæðinganna.
Ég lærði margt af tímabilinu í
fyrra, sérstaklega við að spila sem
sóknarmaður en það var erfitt,“
sagði Gylfi og hélt áfram:
„Það var engin óskastaða og ég
var færður meira til en ég bjóst við
en ég var tilbúinn að gera hvað sem
var fyrir liðið.“
Þegar Rooney er farinn frá
félaginu er ljóst að Gylfi verður
spyrnusérfræðingur liðsins og
ætti það að hjálpa honum að skila
betri tölfræði, bæði í markaskorun
og stoðsendingum. Pressan sem
dýrasti leikmaðurinn í sögu félags-
ins, ætti að minnka með kaupunum
á Richarlison sem kostaði svipaða
upphæð og Gylfi.
Draumatímabil hjá Gylfa og Ever-
ton væri að allt myndi smella strax
undir stjórn Silva og að þeir myndu
gera atlögu að sæti í Meistaradeild
Evrópu á næsta ári. Gylfi væri í
lykilhlutverkinu sem hann fær hjá
íslenska landsliðinu og þrífst á með
landsliðinu. Það verður krefjandi
og erfitt fyrir Everton sem hefur
aðeins einu sinni á síðustu þrjátíu
árum endað meðal fjögurra efstu en
kannski er komið að Gylfa að taka
liðið á herðar sér og bera það upp á
næsta stig, rétt eins og hann hefur
gert með landsliðinu.
taka Gylfi Þór og
Everton framförum
undir stjórn Silva?
Everton skipti um
knattspyrnustjóra
og styrkti sig með
færri en sterkari
leikmönnum
en í fyrra. Silva
hefur unnið gott
starf með öðrum
liðum en tekst
honum að koma
Everton í barátt-
una um efstu sex
sætin?
Þjálfarinn vill hafa
mig á miðjunni sem
er jákvætt, það eru
komnir mjög fljótir
kantmenn sem teygja vel
á vellinum og vonandi fæ
ég að spila á miðjunnni.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sem hann lagði upp fyrir Michael Keane í
vináttuleik Everton á undirbúningstímabilinu í sumar. NordiCpHotoS/GEtty
2 KyNNiNGArBLAÐ 1 0 . ÁG Ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RENSKi BoLtiNN
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-B
B
B
C
2
0
8
D
-B
A
8
0
2
0
8
D
-B
9
4
4
2
0
8
D
-B
8
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K