Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 40
V ið köllum þetta tón-leikhússýningu. Í a ð a l h l u t v e r k u m eru þær Jóhanna Halldórsdóttir alt-söngkona og Þórey
Sigþórsdóttir leikkona,“ segir Diljá
Sigursveinsdóttir tónlistarkona
um margþætta dagskrá í Hóladóm-
kirkju á sunnudaginn sem kammer-
hópurinn ReykjavíkBarokk stendur
fyrir.
„Efniviður dagskrárinnar er, í
fyrsta lagi, stórmerkilegt bréf sem
Halldóra Guðbrandsdóttir, biskups-
dóttir og bústýra á Hólum, skrifaði
danska kónginum 29. ágúst árið
1625 og varðveitt er á Þjóðskjala-
safninu. Út frá því bréfi höfum við
spunnið texta, ásamt Þóreyju sem
er leikstjóri og handritshöfundur,“
segir Diljá og tekur fram að bréfið
sé með elstu varðveittu undirskrift
konu hér á landi.
„Halldóra á Hólum var stór-
brotin kona sem lét ekki Ara í
Ögri eða aðra höfðingja vaða yfir
sig. Hún missti móður sína ellefu
ára, var elst af sínum systkinum og
virðist hafa tekið ábyrgð snemma.
Hún giftist aldrei og var alltaf hægri
hönd og nánasti samstarfsmaður
föður síns, Guðbrands biskups Þor-
lákssonar.“
Guðbrandur var, eins og alþjóð
veit, ekki aðeins biskup heldur
einnig frumkvöðull í prentsmiðju-
rekstri og útgáfu. En út á hvað gekk
þetta merkilega bréf dóttur hans til
danskra stjórnvalda?
„Hún biður um að fá öll staðar-
forráð á Hólum í veikindum föður
síns. Ari í Ögri sýslumaður er mágur
hennar og bréfið er meðal ann-
ars skrifað til að bægja honum frá
Hólastað, það er eiginlega beiðni
um nálgunarbann. Henni er svarað
ári síðar og hún fær uppfylltar óskir
sínar, sem er merkilegt á þessum
tímum. Það sem hún afrekar meðal
annars í stjórnartíð sinni er að end-
urreisa kirkju á Hólum eftir að sú
gamla fauk í aftakaveðri. Hún sendi
systurson sinn til Danmerkur til að
ná í kirkjuviði, byggingin tók tvö ár
og það voru þó harðindaár.“
Diljá tekur fram að Steinunn
Jóhannesdóttir leikkona geri Hall-
dóru góð skil í bók sinni Heiman-
fylgju, sem fjallar um uppvöxt Hall-
gríms Péturssonar og þar eigi áhugi
listafólksins á biskupsdótturinni
sínar rætur.
Tónlistin sem flutt verður er að
hluta til úr óperunni La Liberat ione
di Ruggiero dall isola di Alcina,
sem ítalska kventónskáldið Fran-
cesca Caccini samdi 1625, sama ár
og Halldóra á Hólum var að biðla
til danskra stjórnvalda um yfirráð á
Hólum, að sögn Diljár. „Sú er talin
fyrsta ópera eftir kventónskáld,
að minnsta kosti sem til er í hand-
riti,“ segir hún og fræðir mig meira.
„Caccini var vel menntuð kona,
söngdíva, lútuleikari, ljóðskáld og
ekki síst afkastamikið tónskáld. Hún
fæddist inn í tón listarfjölskyldu
í Flórens, faðir hennar var Giulio
Caccini, velþekkt ítalskt tónskáld
en þó eru heimildir til fyrir því frá
árinu 1614 að Franc esca sé á þeim
tíma hæst launaði tónlistarmaður
ættarinnar.“
Þessar tvær merkiskonur, Hall-
dóra og Caccini, eru sem sagt látnar
kallast á í dagskránni á Hólum,
hvor úr sinni áttinni. „Fyrir utan að
vera samtímakonur áttu þær það
sameiginlegt að feður þeirra voru
þekkt mikilmenni,“ bendir Diljá á.
Þar með er ekki öll sagan sögð
því einnig verða sungnir sálmar úr
Grallaranum, messusöngbók Guð-
brands biskups, frá árinu 1594.
Flytjendur tónlistarinnar eru
ReykjavíkBarokk sem sérhæfir sig
í upprunaflutningi. En einnig koma
fram í sýningunni sex ungar söng-
konur úr Dömukórnum Auroru.
Þær hafa allar fengið sitt tónlistar-
uppeldi í smiðju Margrétar Pálma-
dóttur, söngkonu og kórstjóra, að
því er Diljá upplýsir.
„Það eru margir þræðir í þessu
verkefni og eitt elementið er raf-
tónlist eftir Kristínu Lárusdóttur,
sem kallar sig Sellóstínu og er í
ReykjavíkBarokk. Hún spinnur
eins konar raftónmyndir kringum
textann,“ útskýrir Diljá og bætir
við. „Við hugleiðum bréfið og
hugarheim biskupsdótturinnar,
svo gefur óperan okkur kvenlegan
kraft frá Ítalíu og grallarasöngurinn
eykur á stemninguna.“
Diljá kveðst hlakka mikið til
að koma að Hólum, þar sem graf-
steinar Halldóru og hennar fólks
séu í kirkjugólfinu og altaristaflan
sé sú sama og var bjargað úr kirkj-
unni sem fauk. „Það er gaman að
tengjast staðnum og fá að taka þátt
í að beina ljósi að konum í mann-
kynssögunni.“
Dagskráin sem hér er lýst
er liður í Hólahátíð 11. og 12.
ágúst og einnig hluti af fullveld-
isafmælishaldi þjóðarinnar. Hún
verður frumflutt í Hóladómkirkju
klukkan 11 á sunnudaginn og
endurtekin í Hjallakirkju í Kópa-
vogi á þriðjudaginn, 14. ágúst,
klukkan 20.
Beina ljósi að konum í mannkynssögunni
Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – 1625 – tvær konur – er yfirskrift listviðburðar í Hóladómkirkju nú á sunnudaginn, 12. ágúst. Þar
tvinnast saman barokk, raftónlist, texti og leikræn tjáning. Frumsýningin er liður í Hólahátíð og líka hluti fullveldisafmælishalds.
Diljá er fiðluleikari og fiðlukennari. Hún á líka sex strengja gömbu og byrjaði með kammerhópnum ReykjavíkBarokk sem gömbuleikari. FRéttaBlaðið/ÞóRsteinn
Á æfingu með
dömukórnum
auroru, ásamt
altsöngkonunni
Jóhönnu Hall-
dórsdóttur. Við
hljóðfærið er
erla Rut Kára-
dóttir.
FRéttaBlaðið/
sigtRygguR aRi
Bréf Halldóru guðbrandsdóttur frá 29. ágúst
1625 er með elstu varðveittu undirskrift konu á Íslandi.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Það eru margir
Þræðir í Þessu
verkefni og eitt ele
mentið er raftónlist
eftir kristínu lárus
dóttur, sem kallar sig
sellóstínu og er í
reykjavíkBarokk. Hún
spinnur eins konar
raftónmyndir kringum
textann.
1 0 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R20 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð
menning
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
D
-A
3
0
C
2
0
8
D
-A
1
D
0
2
0
8
D
-A
0
9
4
2
0
8
D
-9
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K