Fréttablaðið - 10.08.2018, Side 40

Fréttablaðið - 10.08.2018, Side 40
V ið köllum þetta tón-leikhússýningu. Í a ð a l h l u t v e r k u m eru þær Jóhanna Halldórsdóttir alt-söngkona og Þórey Sigþórsdóttir leikkona,“ segir Diljá Sigursveinsdóttir tónlistarkona um margþætta dagskrá í Hóladóm- kirkju á sunnudaginn sem kammer- hópurinn ReykjavíkBarokk stendur fyrir. „Efniviður dagskrárinnar er, í fyrsta lagi, stórmerkilegt bréf sem Halldóra Guðbrandsdóttir, biskups- dóttir og bústýra á Hólum, skrifaði danska kónginum 29. ágúst árið 1625 og varðveitt er á Þjóðskjala- safninu. Út frá því bréfi höfum við spunnið texta, ásamt Þóreyju sem er leikstjóri og handritshöfundur,“ segir Diljá og tekur fram að bréfið sé með elstu varðveittu undirskrift konu hér á landi. „Halldóra á Hólum var stór- brotin kona sem lét ekki Ara í Ögri eða aðra höfðingja vaða yfir sig. Hún missti móður sína ellefu ára, var elst af sínum systkinum og virðist hafa tekið ábyrgð snemma. Hún giftist aldrei og var alltaf hægri hönd og nánasti samstarfsmaður föður síns, Guðbrands biskups Þor- lákssonar.“ Guðbrandur var, eins og alþjóð veit, ekki aðeins biskup heldur einnig frumkvöðull í prentsmiðju- rekstri og útgáfu. En út á hvað gekk þetta merkilega bréf dóttur hans til danskra stjórnvalda? „Hún biður um að fá öll staðar- forráð á Hólum í veikindum föður síns. Ari í Ögri sýslumaður er mágur hennar og bréfið er meðal ann- ars skrifað til að bægja honum frá Hólastað, það er eiginlega beiðni um nálgunarbann. Henni er svarað ári síðar og hún fær uppfylltar óskir sínar, sem er merkilegt á þessum tímum. Það sem hún afrekar meðal annars í stjórnartíð sinni er að end- urreisa kirkju á Hólum eftir að sú gamla fauk í aftakaveðri. Hún sendi systurson sinn til Danmerkur til að ná í kirkjuviði, byggingin tók tvö ár og það voru þó harðindaár.“ Diljá tekur fram að Steinunn Jóhannesdóttir leikkona geri Hall- dóru góð skil í bók sinni Heiman- fylgju, sem fjallar um uppvöxt Hall- gríms Péturssonar og þar eigi áhugi listafólksins á biskupsdótturinni sínar rætur. Tónlistin sem flutt verður er að hluta til úr óperunni La Liberat ione di Ruggiero dall isola di Alcina, sem ítalska kventónskáldið Fran- cesca Caccini samdi 1625, sama ár og Halldóra á Hólum var að biðla til danskra stjórnvalda um yfirráð á Hólum, að sögn Diljár. „Sú er talin fyrsta ópera eftir kventónskáld, að minnsta kosti sem til er í hand- riti,“ segir hún og fræðir mig meira. „Caccini var vel menntuð kona, söngdíva, lútuleikari, ljóðskáld og ekki síst afkastamikið tónskáld. Hún fæddist inn í tón listarfjölskyldu í Flórens, faðir hennar var Giulio Caccini, velþekkt ítalskt tónskáld en þó eru heimildir til fyrir því frá árinu 1614 að Franc esca sé á þeim tíma hæst launaði tónlistarmaður ættarinnar.“ Þessar tvær merkiskonur, Hall- dóra og Caccini, eru sem sagt látnar kallast á í dagskránni á Hólum, hvor úr sinni áttinni. „Fyrir utan að vera samtímakonur áttu þær það sameiginlegt að feður þeirra voru þekkt mikilmenni,“ bendir Diljá á. Þar með er ekki öll sagan sögð því einnig verða sungnir sálmar úr Grallaranum, messusöngbók Guð- brands biskups, frá árinu 1594. Flytjendur tónlistarinnar eru ReykjavíkBarokk sem sérhæfir sig í upprunaflutningi. En einnig koma fram í sýningunni sex ungar söng- konur úr Dömukórnum Auroru. Þær hafa allar fengið sitt tónlistar- uppeldi í smiðju Margrétar Pálma- dóttur, söngkonu og kórstjóra, að því er Diljá upplýsir. „Það eru margir þræðir í þessu verkefni og eitt elementið er raf- tónlist eftir Kristínu Lárusdóttur, sem kallar sig Sellóstínu og er í ReykjavíkBarokk. Hún spinnur eins konar raftónmyndir kringum textann,“ útskýrir Diljá og bætir við. „Við hugleiðum bréfið og hugarheim biskupsdótturinnar, svo gefur óperan okkur kvenlegan kraft frá Ítalíu og grallarasöngurinn eykur á stemninguna.“ Diljá kveðst hlakka mikið til að koma að Hólum, þar sem graf- steinar Halldóru og hennar fólks séu í kirkjugólfinu og altaristaflan sé sú sama og var bjargað úr kirkj- unni sem fauk. „Það er gaman að tengjast staðnum og fá að taka þátt í að beina ljósi að konum í mann- kynssögunni.“ Dagskráin sem hér er lýst er liður í Hólahátíð 11. og 12. ágúst og einnig hluti af fullveld- isafmælishaldi þjóðarinnar. Hún verður frumflutt í Hóladómkirkju klukkan 11 á sunnudaginn og endurtekin í Hjallakirkju í Kópa- vogi á þriðjudaginn, 14. ágúst, klukkan 20. Beina ljósi að konum í mannkynssögunni Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – 1625 – tvær konur – er yfirskrift listviðburðar í Hóladómkirkju nú á sunnudaginn, 12. ágúst. Þar tvinnast saman barokk, raftónlist, texti og leikræn tjáning. Frumsýningin er liður í Hólahátíð og líka hluti fullveldisafmælishalds. Diljá er fiðluleikari og fiðlukennari. Hún á líka sex strengja gömbu og byrjaði með kammerhópnum ReykjavíkBarokk sem gömbuleikari. FRéttaBlaðið/ÞóRsteinn Á æfingu með dömukórnum auroru, ásamt altsöngkonunni Jóhönnu Hall- dórsdóttur. Við hljóðfærið er erla Rut Kára- dóttir. FRéttaBlaðið/ sigtRygguR aRi Bréf Halldóru guðbrandsdóttur frá 29. ágúst 1625 er með elstu varðveittu undirskrift konu á Íslandi. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Það eru margir Þræðir í Þessu verkefni og eitt ele­ mentið er raftónlist eftir kristínu lárus­ dóttur, sem kallar sig sellóstínu og er í reykjavíkBarokk. Hún spinnur eins konar raftónmyndir kringum textann. 1 0 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R20 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð menning 1 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 8 D -A 3 0 C 2 0 8 D -A 1 D 0 2 0 8 D -A 0 9 4 2 0 8 D -9 F 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.