Fréttablaðið - 31.08.2018, Page 9
að gera aldrei svona aftur.
Og þar sem skömmin er svona
sterk tilfinning, sem jafnvel hel-
tekur huga fólks, þá hafa óprúttnir
menn í gegnum tíðina gjarnan
komist upp á lag með að afbaka
tilfinninguna og beita henni í
þveröfugum tilgangi. Þá er reynt
að fá fólk til að skammast sín,
ekki bara út af því hvað það gerir
heldur fyrir hvað það er. Holl-
usta fólks við sturlaða leiðtoga í
sértrúarsöfnuðum er til að mynda
oftast grundvölluð á því að brjóta
fórnarlömbin niður með skömm.
Bæling og feluleikir
Börn er látin skammast sín fyrir að
finnast gott að borða hor úr nef-
inu, þótt allir fullorðnir viti að það
sé ekki endilega slæmt á bragðið.
Strákar og stelpur skammast sín
og fara í felur með sitthvað í eðli-
legri líkamsstarfsemi á unglings-
árum. Og víða er skömmin notuð
til að kúga konur. Þær eiga að
skammast sín yfir útliti sínu, nátt-
úru og líkama. Samkynhneigðir
áttu að skammast sín fyrir sitt
innsta eðli þangað til fyrir örstuttu
hér á landi—og þurfa ekki bara að
skammast sín í felum heldur bein-
línis að flýja undan ofbeldi víða í
heiminum.
Skömmin er notuð til þess að
halda fólki í skefjum, því bæling,
lygi, feluleikur og sálarpína munu
til lengdar draga máttinn úr þeim
sem með henni lifa. Og verst af
öllu er vitaskuld skömmin yfir
því sem þú getur ekki umflúið
eða breytt—eins og segir í texta
Veturliða Guðnasonar: „Ég er eins
og ég er, hvernig á ég að vera eitt-
hvað annað? Hvað verður um mig,
ef það sem ég er, er bölvað eða
bannað?“
Sem betur fer hefur samfélagið á
Vesturlöndum hreyfst mjög hratt
í áttina frá fordómum í garð fólks
á grundvelli kyns og kynhneigðar.
Það eiga allir rétt á því að vera þeir
sjálfir—og fólk þráir ekki „hrós
eða vorkunn“ fyrir þann einfalda
rétt að vera það sjálft.
Þakklæti eða skömm
Í vikunni gekk um netið skjal sem
á uppruna sinn í jafnréttisstarfi
Reykjavíkurborgar. Þar er að finna
lista yfir ýmiss konar forréttindi
sem sagt er að karlmenn, hvítt
fólk, gagnkynhneigðir, sískyn-
hneigðir, ófatlaðir og Íslend-
ingar njóta. Á listanum var margt
efnislega ágætt, upplýsandi og vel
meint—og eflaust er það einstakl-
ingum hollt að velta því stundum
fyrir sér í þakklæti ef lífið hefur
af einskærri heppni veitt þeim
góð tækifæri til þess að blómstra.
En svona listi getur líka haft
þau áhrif að kynda undir óverð-
skuldaða skömm meðal þeirra
sem falla af einskærri heppni í
þessa svokölluðu forréttindahópa.
Ekkert er unnið með því, því það
hjálpar ekki þeim sem áður voru
að ástæðulausu látnir skammast
sín að nú þurfi einhverjir aðrir að
bera skömm sem þeir eiga sjálfir
enga sök á.
Væri ekki nær að ala upp
virðingu, þakklæti og skyldurækni
þannig að fólk sé ólíklegra til þess
að rugla saman hæfileikum sínum
og einskærri heppni? Og væri ekki
nær að halda áfram á þeirri braut
að furðufuglarnir og undantekn-
ingarnar—eins og Eiríkur Fjalar—
þurfi ekki að biðjast afsökunar á
sjálfum sér heldur njóti sín til fulls
í víðsýnu og fjölbreytilegu sam-
félagi þar sem allir hafa sama rétt
til að sækjast eftir lífshamingju í
sátt við lög og aðra menn?
Þegar maður gerir eitthvað
af sér þá er gott að maður
skammist sín, líði illa—og
lofi sjálfum sér og öðrum að
gera aldrei svona aftur.
Hluthafafundur Vátryggingafélags Íslands hf.
verður haldinn 20. september 2018.
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem verður haldinn í höfuðstöðvum
félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, fimmtudaginn 20. september 2018. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 16:00.
Drög að dagskrá frá stjórn eru svohljóðandi:
Dagskrárliðir 2, 3 og 4 eru háðir því að tillögur sem teknar hafa verið
til afgreiðslu í fyrri dagskrárliðum hafi náð samþykki.
Endanleg dagskrá frá stjórn verður birt fimmtudaginn 13. september
2018.
Tillaga að breytingum á samþykktum félagsins felur í sér að bætt
verði við nýrri grein sem verði 15. gr. a þar sem sett verði á fót
tilnefningarnefnd og kveðið á um helstu atriði er varða hlutverk og
skipan nefndarinnar. Þá er gert ráð fyrir breytingum á 13. og 19. gr.
samþykktanna sem leiða af stofnun nefndarinnar. Nánari upplýsingar
er að finna í tillögunni sem birt er samtímis fundarboði þessu á
vefsíðu félagsins: www.vis.is/fjarfestar.
Óskað er eftir framboðum til tilnefningarnefndar sem gert er ráð
fyrir að verði kjörin samkvæmt 4. lið dagskrár. Þeir sem hyggjast gefa
kost á sér til setu í tilnefningarnefnd skulu tilkynna stjórn um
framboð sitt skemmst fimm dögum fyrir hluthafafund á þar til gerðu
eyðublaði. Stjórn mun fara yfir framboðstilkynningar og kalla eftir
viðbótar gögnum og upplýsingum eftir því sem þurfa þykir. Upplýsingar
um frambjóðendur til setu í tilnefningarnefnd verða birtar á vefsíðu
félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafundinn.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá hluthafundar og leggja
fram ályktunartillögur ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa
um það eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn 13. september 2018.
Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið stjorn@vis.is. Hafi
hluthafi krafist þess að fá mál tekið til meðferðar á fundinum eða
lagt fram ályktunartillögur á tímabilinu 10. september – 13. september
2018, verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu
félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn. Hlut-
hafar geta lagt fram spurningar fyrir hluthafafund á stjorn@vis.is eða
á hluthafafundinum sjálfum.
Einungis ef krafa kemur frá einhverjum fundarmanna verða
atkvæðagreiðslur á hluthafafundi skriflegar. Ekki verður hægt að
greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta
óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni
þar um hafa borist til höfuðstöðva félagsins a.m.k. fimm dögum fyrir
auglýstan hluthafafund. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla
sinna í höfuðstöðvum félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði.
Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hlutaskrárkerfi
félagsins þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum sínum
á hluthafafundi. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn
fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett
umboð. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár
frá dagsetningu þess.
Hluthafar munu geta fylgst með fundinum með rafrænum hætti en
hluthafar þurfa að sækja um aðgang hjá félaginu eigi síðar en kl.
12:00 á hádegi miðvikudaginn 19. september 2018 til þess að nýta sér
þessa lausn með því að senda póst á fjarfestatengsl@vis.is. Óski
hluthafar eftir enskri túlkun á fundinum skal senda skriflega beiðni
þess efnis á netfangið fjarfestatengsl@vis.is fyrir lok dags 12.
september 2018. Tekið skal fram að rafrænt áhorf jafngildir ekki
mætingu á fundinn og veitir því ekki rétt til þátttöku í fundinum að
öðru leyti, þ.m.t. atkvæðagreiðslum. Þeir hluthafar sem hyggjast
neyta atkvæðaréttar síns á fundinum eru því hvattir til að mæta á
fundinn eða láta umboðsmann sinn sækja fundinn fyrir sína hönd.
Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er
löglega boðaður.
Fundargögn verða afhent á fundarstað og eru þau á íslensku og
ensku en hluthafafundurinn fer fram á íslensku. Nánari upplýsingar
um réttindi hluthafa og annað sem varðar hluthafafundinn, svo sem
eyðublöð og slíkt, mun vera að finna á vefsíðu félagsins:
www.vis.is/fjarfestar, eigi síðar en 21 dag fyrir hluthafafundinn.
Reykjavík, 30. ágúst 2018.
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.
1. Tillaga að breytingum á samþykktum félagsins.
2. Tillaga að starfsreglum tilnefningarnefndar.
3. Tillaga að þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
4. Kosið í tilnefningarnefnd.
5. Önnur mál löglega upp borin.
E itt af óteljandi sköp-unarverkum Þórhalls Sigurðssonar, Ladda, er karakterinn Eiríkur Fjalar sem varð frægur í íslensku sjónvarpi
á níunda áratugnum. Eiríkur var
kúnstugur náungi sem sameinaði
í sjálfum sér gríðarlegt óöryggi en
um leið takmarkalausa trú á því
að hann hefði allt sem þarf til þess
að verða að stórstjörnu. Hann
var því ekki bara fyndinn karakt-
er heldur líka mjög raunalegur.
Það var ekki annað hægt en að
halda með honum en á sama tíma
var ómögulegt að hafa nokkra
minnstu trú á honum.
Honum var margt til lista lagt,
en líklega er hann einna þekkt-
astur fyrir nokkur lög sem hann
söng og urðu fræg. Eftirminnileg-
ast er lagið „Skammastu þín svo“
sem er íslensk staðfærsla á laginu
„Shaddab your Face“ eftir John
Dolce, og alveg eins og með raddir
Strumpanna þá er listaverkið
tilkomumeira í túlkun Ladda en
upprunalegri útgáfu.
Lagið fjallar um ungan Eirík
Fjalar sem elur með sér drauma
um að verða stór listamaður á
einhverju sviði í söng eða kvik-
myndagerð og hann sér fyrir sér
daginn þegar hann verður frægur
og lífið kemst í lag. Og þótt þessir
draumar, eða órar, Eiríks Fjalar
um að slá í gegn séu auðvitað
bæði fyndnir og hlægilegar fyrir
þá sem vissu hversu takmarkaður
hann var—þá er mikill harmur í
laginu líka, sem fór ef til vill fram
hjá þeim sem kynntust laginu sem
börn.
Það leka niður tár
Það kemur nefnilega fram í laginu
að Eiríkur ólst ekki beinlínis
upp við hvetjandi og nærandi
umhverfi. Þvert á móti syngur
hann um það að þegar hann
var smár, með ljóst og liðað hár,
hafi mamma hans iðulega og oft
hundskammað hann fyrir að stara
upp í loft, og velt því fyrir sér af
hverju honum gengi miklu verr í
skóla, heldur en honum Óla—sem
líklega hefur verið nágranni eða
vinur hins lánlitla Eíríks.
Og Eiríkur fékk ekki mikla
samúð heldur yfir því að geta
ekki staðist væntingar móður
sinnar; og falla ekki nægilega vel
að þeim staðal ímyndum sem
þóttu eftirsóknarverðastar. „Ertu
eitthvað sár, það leka niður tár,“
segir mamma hans í ögrandi
stríðnistóni, áður en hún segir
honum að hann geti með stór-
átaki umflúið eðli sitt, „þú getur
þessu breytt“, segir hún og ítrekar
að hann megi svo vita að hann
sé ekki eins og fólk er flest. „Og
skammastu þín svo.“
Skömmin misnotuð
Það er ömurlegt að skammast sín.
En þótt skömmin sé leiðinleg og
jafnvel sársaukafull, þá er ekki þar
með sagt að hún sé gagnslaus frek-
ar en aðrar tilfinningar. Félags-
fræðingar telja meira að segja að
skömmin sé einhver mikilvægasta
tilfinningin sem mannfólkið hefur
þróað með sér. Innbyggðir átta-
vitar um hvað sé rétt og rangt eru
nauðsynlegir til þess að samfélög
gangi sæmilega án stöðugs eftirlits
og ógnunar um refsingar. Þegar
maður gerir eitthvað af sér þá er
gott að maður skammist sín, líði
illa—og lofi sjálfum sér og öðrum
Æ, og skammastu þín svo
Í dag
Þórlindur
Kjartansson
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9F Ö S T u d a g u R 3 1 . á g ú S T 2 0 1 8
3
1
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
5
-C
1
0
C
2
0
B
5
-B
F
D
0
2
0
B
5
-B
E
9
4
2
0
B
5
-B
D
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K