Fréttablaðið - 31.08.2018, Síða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512
5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Ég fékk mitt fyrsta húðflúr sumarið 1978. Þá var ég sex-tán ára messagutti á fraktara
og fékk mér mynd af snák utan um
sverð á tattústofu í Chinatown í
hollensku hafnarborginni Rotter-
dam. Í þá daga var ekki spurt um
aldur og sautján ára var ég kominn
með þrjú flúr á kroppinn,“ segir
Svanur Guðrúnarson, húðflúrari á
Tatto & skart.
Fjórum áratugum síðar er
líkami Svans þakinn húðflúrum
og hann hvergi nærri hættur.
„Mig langar alltaf í nýtt flúr og hef
látið fjarlægja gamlar syndir af
skrokknum til að koma að nýjum
flúrum. Þannig er ég alveg vís með
að fá mér nýtt tattú á sýningunni
enda finnur maður alltaf pláss á
kroppnum fyrir flott flúr.“
Hægt að sýna eigið tattú
Svanur er að vísa í sýninguna
Icelandic Tattoo Expo sem
verður opnuð með pompi og prakt
í Laugardalshöll í dag og stendur
fram á sunnudagskvöld.
„Í Höllina mæta til leiks hátt í
níutíu listamenn hvaðanæva; frá
Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu og
Rússlandi og sýna það besta í húð-
flúri frá þessum heimsálfum,“ upp-
lýsir Svanur og hlakkar mikið til.
„Meðal annars verður keppt í
flokkunum Old School, Japanese,
Realistic, Nordic, Black & Gray,
New School, Show, Colour, Orna-
mental og Small, og verður verð-
launaafhending í öllum flokkum.
Sýningargestir geta líka komist í flúr
hjá færustu listamönnum þessara
landa og þeir sem þegar bera flúr
og eru ánægðir með flúrið sitt geta
tekið þátt í keppninni, sýnt sig,
látið dæma það og jafnvel unnið,“
útskýrir Svanur og bætir við að þeir
sem velkist í vafa um hvaða flokk
flúr þeirra fylli geti fengið aðstoð
við greiningu þess á staðnum.
Flúr með hamri og priki
Icelandic Tattoo Expo fer nú fram
í sjötta sinn og er sýningin haldin í
boði Tattoo & skart.
„Allt frá árinu 1998 hef ég keppt
á fjölmörgum tattúráðstefnum
ytra og fann löngun til að koma
slíkum viðburðum á koppinn hér,“
útskýrir Svanur sem heldur utan
um Icelandic Tattoo Expo ásamt
Sesilíu Guðrúnu Sigurðardóttur
og Andrési Páli Hallgrímssyni sem
fylgt hafa Svani utan til keppni um
árabil.
„Icelandic Tattoo Expo hefur
reynst vítamínsprauta fyrir íslenska
húðflúrara. Það hefur víkkað
sjóndeildarhring þeirra að fá til
landsins brot af því besta sem gerist
í tattúmenningu og handverki
annarra heimsálfa því áður vorum
við einangraður hópur á eyju
norður í hafi. Með því að kynnast
ólíkum stílbrögðum heimsins og
læra handbragð af listamönnum
hvaðanæva úr veröldinni hefur
gæðastaðall íslenskra húðflúrara
hækkað,“ segir Svanur, og víst
verður breið flóra húðflúrs til sýnis
í Höllinni.
„Hingað eru meðal annars
komnir flúrarar frá Samóaeyjum en
þeir gera húðflúr upp á gamla frum-
byggjamátann, með hamri og priki.
Sjálfur hef ég fengið mér slíkt tattú
og árangurinn er mjög góður. Ólíkt
því sem gerist með afkastamiklum
vélum lokast húðin strax utan um
blekið og losnar við allt hrúður.
Þótt tólin séu frumstæð þótti mér
það síst sársaukafyllra en margir
standa í þeirri trú að húðflúrsgerð
fylgi ægilegur sársauki. Í raun er
það er bara notalegt,“ segir Svanur
brosmildur.
Pin-up fegurðarsamkeppni
Icelandic Tattoo Expo er barnvænn
viðburður og er frítt inn fyrir 12
ára og yngri.
„Við vorum fyrstu árin í Súlna-
salnum á Sögu en hann sprengdi
viðburðinn fljótt utan af sér
vegna vinsælda,“ segir Svanur og
bætir við að allir séu hjartanlega
velkomnir. „Það kveikir svo iðu-
lega í mörgum að fá sér húðflúr
á staðnum og margir sem fá sitt
fyrsta flúr hjá meisturum sýningar-
innar. Þeir verða allir með eigin
vinnubás á staðnum, mæta með
nálar sínar og liti, og taka glaðir til
hendinni.“
Annað kvöld, laugardagskvöld,
verður tilkomumikil pin-up
fegurðar- og hæfileikakeppni í
Höllinni.
„Þar stíga á svið glæsikvendi
sem keppa innbyrðis í pin-up
stíl en dómarar verða valinkunn
fegurðardrottning og dragdrottn-
ing og veitt verða vegleg verðlaun.
Keppnin er til skemmtunar og til-
breytingar frá annasömu keppnis-
haldi daganna sem fer fram á
klukkustundar fresti og í lok dags
fer fram verðlaunaafhending fyrir
það sem best var gert yfir daginn.“
Tískustraumar á undanhaldi
Svanur segir tískustrauma í húð-
flúri nú heyra sögunni til.
„Húðflúr er orðið svo meðtekið
hér á landi og því sjáum við alla
flóruna. Fólk velur tattú eftir eigin
höfði og með tilkomu Icelandic
Tattoo Expo hefur fólk orðið betur
upplýst. Með því að skoða tattú-
heiminn í Höllinni sér það hversu
víðfeðmur hann er og finnur betur
hvað höfðar til þess í stað þess að
elta tískustrauma.“
Strangt 18 ára aldurstakmark er
hér á landi fyrir því að fá sér húðflúr
og segir Svanur engar undantekn-
ingar gerðar lengur.
„Því þegar upp er staðið vita
unglingar ekki hvað þeir vilja
og skortir þroska til að taka svo
afdrifaríka ákvörðun. Húðflúr er
því ekki skyndiákvörðun eins og oft
var í gamla daga og nánast enginn
lengur með myndabækur til að
velja úr á tattústofum nú. Flestir fá
innblástur af netinu, úr sjónvarpinu
eða á sýningum sem þessari og
mæta svo um tvítugt í sitt fyrsta
flúr. Þá hafa þeir jafnvel spáð í að
fá sér flúr frá unglingsaldri, safnað
sér fé til verksins og mæta með
fastmótaðar hugmyndir um að láta
flúra á sér allan handlegginn.“
Húðflúr orðið alþýðlegt
Sjálfur er Svanur heillaður af jap-
önsku húðflúri.
„„Japanese“ er mörg þúsund ára
gamalt listform sem eldist einstak-
lega vel og er alltaf eins og nýtt.
Það er hannað til að flæða vel með
líkamsbyggingu hvers og eins og
felur í sér myndir, bakgrunna og
það sem kallast vindar og öldur,“
útskýrir Svanur um eigið dálæti, en
allt tattú er móðins í dag.
„Sem dæmi eru Old school-tattú
af akkeri, rós og hjarta með örvum
jafn vinsæl nú og þau voru fyrir
áratugum síðan en í dag tryggja
betri nálar, litir og tækni að mynd-
irnar eldist betur og verði ekki
með árunum að óskýrum klessum
eins og var,“ segir Svanur.
Húðflúr sé líka orðið svo hefð-
bundið og alþýðlegt.
„Tattú er ekki lengur sama djarfa
yfirlýsingin eins og var í mínu til-
felli í millilandasiglingunum. Þá
var maður orðinn stoltur sjóari og
vildi sýna heiminum það, en í dag
er húðflúr persónulegt tjáningar-
form hvers og eins.“
Icelandic Tattoo Expo hefst í
Laugardalshöll klukkan 15 í dag.
Opið er til klukkan 23. Á morgun,
laugardag, er opið frá 12 til 23 og á
sunnudag frá klukkan 12 til 19. Sjá
nánar á icelandictattooexpo.com.
Hér má sjá Sesilíu Guðrúnu Sigurðardóttur hjá Tattoo og skarti en hún er ein af aðstandendum tattúsýningarinnar vinsælu Icelandic Tattoo Expo.
Málfríður Sverrisdóttir frá Tattoo og skarti að húðflúra af alkunnri snilld.
Tattú er ekki sama
djarfa yfirlýsingin
og það áður var. Nú er
það persónulegt tjáning-
arform hvers og eins.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
3
1
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
5
-C
A
E
C
2
0
B
5
-C
9
B
0
2
0
B
5
-C
8
7
4
2
0
B
5
-C
7
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K