Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 30
Bókasafn Kópavogs verður með fróðlega og fjölbreytta dagskrá í vetur. Við verðum með fasta liði, ýmist vikulega eða einu sinni eða tvisvar í mánuði, auk þess að brydda upp á spenn­ andi nýjungum. Okkar mottó er að bókasafnið sé heimili að heiman fyrir bæjarbúa, það sé félagsmið­ stöð þar sem fólk getur hist og átt góða stund með fjölskyldu eða vinum eða einfald lega komið og notið þess að vera hér í rólegheit­ um, gluggað í bækur eða hlustað á áhugaverð erindi,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins. „Meðal fastra liða á bókasafninu eru Hannyrðaklúbburinn Kaðlín sem kemur saman alla miðviku­ daga og bókaklúbburinn Hana nú þar sem bækur eru ræddar í þaula. Foreldramorgnarnir verða á sínum stað og aðra hverja viku fáum við fyrirlesara til að fjalla um málefni sem tengjast börnum,“ upplýsir Lísa. „Einu sinni í viku er svo sögu­ stund fyrir litlu krakkana og einn laugardag í mánuði lesa börnin fyrir sérþjálfaða hunda, sem er ótrúlega skemmtilegt verkefni,“ bætir Lísa við. Fjölskyldustundir og menn- ing fyrir alla Dagskráin er ekki aðeins fjölbreytt á Bókasafni Kópavogs heldur einnig í Gerðarsafni, Náttúru­ fræðistofu Kópavogs og Salnum. Saman mynda húsin eina heild og bjóða á hverjum laugardegi upp á Fjölskyldustundir og á hverjum miðvikudegi upp á dagskrá með heitinu Menning á miðvikudögum. „Þegar svona margir viðburðir eru á dagskrá er erfitt að draga einhverja nokkra út en við bjóðum samtals upp á 800 viðburði á ári. Ætli maður sé ekki heiðarlegastur ef maður segir frá uppáhaldinu sínu en ég er mjög spennt fyrir söngstofu með tónskáldinu Helga Rafni sem haldin verður í október í Salnum og er ætluð krökkum sem eru 10 ára og eldri. Við köllum söngstofuna Ættjarðarbræðing en Helgi Rafn ætlar að fá krakk­ ana í spuna sem mun mynda nýtt kórverk sem byggir á nokkrum ættjarðarlögum,“ segir Lísa. „Annað sem ég er sérstaklega Lifandi menning og mannlíf Menningarhúsin í Kópavogi hafa aldrei boðið upp á jafnfjölbreytta og spennandi dagskrá og nú í haust. Iðandi mannlíf, lifandi menning og notalegar fjölskyldustundir verða í aðalhlutverki. Hrafnhildur Gissurardóttir verkefnastjóri, Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, Ólöf Breiðfjörð verkefnastjóri, Hrafn Sveinbjarnarson héraðsskjalavörður, Soffía Karlsdóttir, for- stöðum. menningarmála, Finnur Ingimarsson, forstöðum. Náttúrufræðistofu, Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, og Aino Freyja Järvela, forstöðumaður Salarins. MYND/EYÞÓR Dagskrá vetrar- ins hefur aldrei verið jafnfjöl- breytt og í ár. Fjöruferð með Náttúrufræðistofu. Listasmiðja í Gerðarsafni. spennt fyrir er viðburður á Nátt­ úrufræðistofu sem við köllum Kötlugosið 1918. Við fáum til liðs við okkur snjalltækjasnilling sem ætlar að skoða gosið út frá ýmsum sjónarhornum með allri fjölskyld­ unni en þessi smiðja sem og söng­ stofan hans Helga Rafns eru liður í fullveldisafmælisdagskránni. Í fyrravetur hófum við svo átak í þá átt að fá nýja Íslendinga, fólk sem er aðflutt, t.d. flóttafólk, til að taka þátt í starfinu okkar. Þetta starf heldur áfram með smiðjum sem við köllum listsmiðjur óháð tungumáli og fara fram í Gerðar­ safni en við höfum haft með okkur konu frá Marokkó sem er vel tengd arabískumælandi fjölskyldum sem og fjölskyldum frá Sýrlandi. Þetta hefur verið mjög gefandi og við munum halda áfram á þessari braut en nú hefur Kópavogur gert samning um innleiðingu Barna­ sáttmála Sameinuðu þjóðanna og verður spennandi að vinna það verkefni með hinum forstöðu­ mönnum húsanna,“ segir Lísa sem er augljóslega spennt fyrir dagskrá haustsins. Málefni líðandi stundar í brennidepli Menningarhúsin í Kópavogi leggja sig fram við að tengjast málefnum líðandi stundar og mynda samstarf við mismunandi hreyfingar og hátíðir. Í tengslum við kvikmynda­ hátíðina RIFF verður vídeóklippi­ smiðja og fjórar stuttmyndir sýndar frá Eystrasaltslöndunum. Í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum kennir ýmissa grasa en meðal þess sem boðið verður upp á þar er erindi forn­ leifafræðingsins Steinunnar Kristjánsdóttur um klausturrann­ sóknina sína, erindi Bryndísar Björgvinsdóttur þjóðfræðings um draugasögur og Sindri Freysson, handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör, heldur erindi á degi íslenskrar tungu en þessi viðburðir fara allir fram á bókasafninu. „Þá verður gaman að fara á tónleika í Salnum í vetur en bæði tónleikaröðin Tíbrá og Af fingrum fram bjóða fjölbreytta dagskrá og nú bætist við Jazz í Salnum. Í Gerðarsafni er alþjóðlega lista­ hátíðin Cycle svo haldin í fjórða sinn í október og þá verður ýmis­ legt spennandi um að vera,“ segir Lísa að lokum. Nánari upplýsingar má fá á heima- síðunni menningarhusin.kopa- vogur.is. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . áG ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 B 5 -D E A C 2 0 B 5 -D D 7 0 2 0 B 5 -D C 3 4 2 0 B 5 -D A F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.