Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gréta Sigfúsdóttir Sunnubraut 2, Þorlákshöfn, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 5. september sl. Útför hennar fer fram frá Þorlákskirkju föstudaginn 14. september kl. 14. Sigurður Z. Skúlason Skúli Sigurðsson Hjördís Svavarsdóttir Svanhildur Sigurðardóttir Sævar Sigursteinsson Halldór Sigurðsson Hugrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Hólmfríður Guðný Jónsdóttir lést aðfaranótt laugardagsins 8. september á líknardeild Landspítalans eftir stutt en erfið veikindi. Útför verður frá Langholtskirkju föstudaginn 14. september klukkan 13.00. Írena Dögg Einarsd. McCabe Charles Edward McCabe Ingibjörg Ósk Einarsdóttir Kjartan Örn Júlíusson Karl Óttar Einarsson Halldóra M. Gunnarsdóttir Jón Karl Einarsson Þórunn A. Arnbjörnsdóttir og barnabörn. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Snorrason hæstaréttarlögmaður, andaðist á heimili sínu 3. september síðastliðinn. Útför hans verður gerð frá Neskirkju miðvikudaginn 12. september klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Ellen Snorrason Helga Sveinsdóttir Sebah Alain Sebah Regína Sveinsdóttir Jóhann Friðbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Jóhannsdóttir Víðilundi 24, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 7. september. Útförin fer fram í kyrrþey. Heiða Björk Jónsdóttir Hafþór Jónasson Óttar Strand Jónsson Þorbjörg Björnsdóttir Óðinn Jónsson Gerður Róbertsdóttir Pétur Örn Jónsson Guðrún Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku móðursystir okkar, Kristín Hulda Þór lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold fimmtudaginn 6. september. Útförin verður auglýst síðar. Jón Þór Gunnarsson Gróa Gunnarsdóttir Gunnar Gunnarsson Jóhanna Gunnarsdóttir Sendum okkar innilegustu þakkir til ættingja og vina nær og fjær fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar, Gríms M. Björnssonar tannlæknis. Sérstakar þakkir sendum við starfsmönnum á Ægishrauni Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Ragnheiður Þóra Grímsdóttir Björn Grímsson Lísbet Grímsdóttir V. Soffía Grímsdóttir Margrét Rósa Grímsdóttir Magnús Orri Grímsson tengdabörn, afabörn og langafabörn. Það var mamma, Pálína Þor-steinsdóttir í Svínafelli, sem hafði forgöngu um að minn-ast þess að faðir hennar, Þorsteinn Jóhannsson, hefði orðið 100 ára 7. sept- ember, en hann lést fyrir tuttugu árum. Fjölskyldan gerði það með því að bjóða sveitungum og öðrum vinum og vanda- mönnum upp á veislukaffi og dagskrá í félagsheimilinu Hofgarði síðasta laugar- dag,“ segir söngkonan Steinunn Björg Ólafsdóttir. „Afi orti mikið af ljóðum og vísum og hluti af þeim kom út á bók fyrir nokkr- um árum, sem heitir Undir breðans fjöll- um. Mamma vissi að hann Guðmundur Óli, kennari á Kirkjubæjarklaustri, hafði samið lög við fimm af ljóðunum og vissi líka að ég gat sungið þau. Svo hún notaði þetta tækifæri til að fá okkur til að flytja þau og ég held mér sé óhætt að segja að fólk hafi verið ánægt með framtakið.“ Steinunn Björg segir Guðmund Óla hafa lýst því á samkomunni að hann hefði fengið andann yfir sig úti á hlaði í Svínafelli er hann kom þangað í heim- sókn, lögin hefðu komið til hans, nánast fullsköpuð og hann hefði sest niður og skrifað þau, þegar hann kom heim. „Það var árið 2014, þegar ég hóf söng- nám í Listaháskólanum, sem ég fór að spá í hvort ég gæti ekki gert eitthvað með þessi lög. Þau voru skrifuð fyrir hin ýmsu hljóðfæri og sum fyrir sópran, alt og karlaraddir og eitt fyrir alt og barítón, ég hefði þurft að redda stjórnanda svo þetta var svolítið flókið verkefni og það óx mér í augum,“ lýsir hún og heldur áfram: „Guðmundur Óli hafði stundum samband og spurði hvort eitthvað væri að frétta og ég hafði mega samviskubit yfir að vera ekki búin að gera eitthvað af viti úr lögunum. En eftir á held ég bara að lögin hafi átt að bíða eftir þessu aldar afmæli. Nú spilaði Guðmundur Óli sjálfur undir á píanó og systursonur minn, Guðjón Steinn Skúlason á saxófón í tveimur lögum. Hann kom bara inn í dæmið kvöldið fyrir tónleika og rúllaði þessu upp, þaulvanur að spinna, enda í léttsveit og lúðrasveit í Reykjanesbæ.“ Steinunn Björg kveðst hafa feng- ið  þennan frænda sinn líka til að flytja með henni lag eftir sjálfa sig við ljóð eftir afa hennar. „Við tókum það í þjóðlagarokkstíl í anda Skálmaldar. Það var dálítið gaman,“ segir hún.  „Guðjón Steinn hafði tekið upp takta og eigið gítarspil á band og spilaði svo á bassa á sviðinu meðan ég söng. Ég ætla ekkert að sleppa hendinni af þessum frænda mínum, heldur reyni að halda honum góðum áfram og vona að honum þyki jafn gaman að vinna með mér og mér með honum.“  Heldur hún að lögin verði gefin út? „Það væri óskandi. Ég veit að Guðmund- ur Óli vill heyra þau með hljómsveit, eins og hann skrifaði þau upphaflega og ég vona að það verði að veruleika.“ Steinunn Björg er nýbyrjuð í meistara- námi við Listaháskólann í grein sem nefnist Sköpun, miðlun og frumkvöðla- starf og með henni í bekk eru fimm aðrir nemendur úr öllum heimshornum, með alls konar bakgrunn og á öllum aldri.“ gun@frettabladid.is Aldarafmælis minnst með flutningi ljóða við ný lög Steinunn Björg Ólafsdóttir söngkona frumflutti nokkur lög við ljóð afa síns, Þorsteins Jóhannssonar, kennara í Svínafelli í Öræfum, á hátíð sem haldin var í tilefni þess að 100 ár eru frá fæðingu hans. Lögin eru eftir Guðmund Óla Sigurgeirsson kennara. Steinunn Björg, Guðjón Steinn og Guðmundur Óli hyllt og að sjálfögðu fékk tónskáldið líka blóm. MYND/RAIMUNDAS PUČKUS 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C 6 -D 7 A C 2 0 C 6 -D 6 7 0 2 0 C 6 -D 5 3 4 2 0 C 6 -D 3 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.