Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 22
Hjá Sýni starfar faglært fólk með háskólapróf í mat-vælafræði, örverufræði, efnafræði, sjávarútvegsfræði og verkefnastjórnun og er fyrirtækið í dag einn stærsti einkarekni vinnu- staðurinn fyrir háskólamenntað fagfólk í matvælaiðnaði. Fyrirtækið hefur starfað frá árinu 1993 og byggir því á áratugareynslu. Námskeiðin sem við bjóðum upp á hjá Sýni eru afar fjölbreytt og fer umfang þeirra eftir því hverjir sækja þau og hvort þau fara fram hér hjá okkur eða inni í fyrirtækjum. Námskeiðin eru einnig haldin úti á landi, allt eftir þörfum. Námskeiðin, sem fram fara hér hjá okkur, sækja starfs- menn margra ólíkra fyrirtækja í einu en námskeiðin sem kennd eru úti í fyrirtækjunum sjálfum eru sérsniðin að þörfum viðkomandi fyrirtækis, umfangi vinnslunnar og eðli hráefnisins sem unnið er með. Við heimsækjum fyrirtækið áður, skoðum aðstæður, tökum myndir og greinum hvað vel er gert og hvað má betur fara. Námskeiðið er síðan skipulagt í samvinnu við stjórn- endur og verkefnavinnan sniðin að þörfum fyrirtækisins,“ útskýrir Valgerður Ásta Guðmundsdóttir, matvælafræðingur og ráðgjafi hjá Sýni ehf. „Við erum mjög sveigjanleg varðandi efni og tímasetningar og þrautþjálfuð í að finna út hvað hentar hverju fyrirtæki best,“ segir Valgerður Ásta. Sérhæfð námskeið Meðal námskeiða sem kennd eru hjá Sýni er HACCP námskeiðaröð, eða HACCP 1, 2, 3 og 4. „HACCP 1 er fyrir almennt starfs- fólk, HACCP 2 fyrir þá sem unnið hafa lengur og bera t.d. ábyrgð á skráningum og eftirliti, HACCP 3 er m.a. fyrir verkstjóra, eftirlitsmenn og millistjórnendur og HACCP 4 fyrir gæðastjóra og þá sem setja upp kerfið og bera ábyrgð á því,“ útskýrir Valgerður Ásta. „Við erum einnig með námskeið sem kallast Orsakagreining og áherslumiðaðar lausnir en í staðla- umhverfinu í dag er mikil áhersla lögð á orsakagreiningu og áhættu- mat. Til dæmis er verið að áhættu- meta ferla, störf, tæki og fleira og er sama grunnaðferðafræðin notuð sama hver atvinnugreinin er. Þetta námskeið er því ætlað hverjum þeim sem koma að gæðamálum og áhættumati. Þá erum við með sérhæfð nám- skeið meðal annars um merkingar á matvælum, sannprófanir og innri úttektir og einnig námskeið í örverufræði matvæla. Við bjóðum einnig námskeiða- röð sem hægt er að taka á mis- munandi löngum tíma og byggja smám saman ofan á. Þetta hentar til dæmis þeim sem hafa áhuga á að starfa við gæðamál í matvæla- iðnaði. Námskeiðið er 150 stundir í heildina og dreifist á allt að tvö ár. Kröfur um alþjóðlega matvæla- staðla eins og BRC, IFS og ISO 22000 eru vaxandi í matvæla iðnaði bæði hérlendis og erlendis. Sýni ehf. er með reynslumikla sér- fræðinga á sínum snærum sem kenna námskeið og veita ráðgjöf um hvernig fyrirtæki fara í gegnum þessa staðla. Kennt á mörgum tungumálum „Námskeiðin eru í boði á íslensku og ensku en einnig er boðið upp á túlkaþjónustu í öðrum tungu- málum eins og pólsku. Við leggjum mikla áherslu á að þeir sem sitja námskeiðin skilji það sem fram fer og allir taki þátt í verkefnavinnu,“ segir Valgerður Ásta. „Við leggjum mikið upp úr að námskeiðin skili árangri og þá með góðum undirbúningi, verkefnavinnu og eftirfylgni. Á lengri námskeiðum kemur fólk yfirleitt með sitt eigið gæðakerfi eða vandamál og eru þá verkefnin aðlöguð að því.“ Námskeið fyrir starfsmenn í matvælaiðnaði og gæðamálum Sýni ehf. starfrækir Matvælaskólann hjá Sýni. Boðið er upp á námskeið, fyrir matvælaiðnað og þá sem starfa að gæðamálum. Námskeiðin eru bæði almenn og sérsniðin að þörfum fyrirtækja. Nánar er fjallað um námskeiðin á heimasíðunni www.syni.is og þar fer skráning einnig fram. Við búum til sterkari börn Sjálfsagi Sjálfstraust Sjálfsvörn Mudo Gym Víkurhvarf 1 203 Kópavogur www.sterkariborn.is Facebook: Mudo Gym Iceland Nareban@nareban.is Mudogym T 6 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C 6 -F 0 5 C 2 0 C 6 -E F 2 0 2 0 C 6 -E D E 4 2 0 C 6 -E C A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.