Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR FRÁ 16. JÚNÍ TIL OG MEÐ 4. ÁGÚST ® DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, LÁGT DRIF. FULLT VERÐ 12.930.000 KR. AUKAHLUTIR Í VERÐI: MÁLMLITUR. AÐEINS 3 BÍLAR Í BOÐI. HLAÐINN BÚNAÐI M.A.: 19 HÁTALARA HLJÓMTÆKI, BLU-RAY DVD, SIGNATURE LEÐURINNRÉTTING, PANORAMA SÓLLÚGA, LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, FJARLÆGÐASTÝRÐUR HRAÐASTILLIR O.M.FL. JEEP 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF. 1.000.000 KR. AFSLÁTTUR. TILBOÐSVERÐ 11.930.000 KR. ® JEEP GRAND CHEROKEE SUMMIT SIGNATURE® jeep.is UMHVERFISMÁL „Þetta eru auð- vitað miklar kerfisbreytingar sem um ræðir. Við erum að tala um að rafvæða samgöngur á tiltölulega stuttum tíma. Það þýðir að það þarf innviðauppbyggingu þann- ig að venjulegt fólk geti tekið þátt í þessu með okkur,“ segir Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra um nýja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem kynnt var í gær. Áætlunin samanstendur af 34 til- lögum að aðgerðum sem ætlað er að mæta skuldbindingum stjórn- valda gagnvart Parísarsamningnum. Markmiðið er að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 40 pró- sent til ársins 2030 miðað við losun- ina 1990. Skipta má tillögunum í tvo megin- hluta. Annars vegar þær sem snúa að orkuskiptum í samgöngum og hins vegar aðgerðir um átak í kolefnis- bindingu en markmið stjórnvalda er kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Lagt er til að nýskráning bensín- og dísilbíla verði bönnuð eftir 2030. Þá eru lagðar til ívilnanir til að flýta fyrir fjölgun umhverfisvænna bíla. Katrín segir að í fyrsta skipti fylgi alvöru fjármunir í verkefni tengd loftslagsmálum en alls verður 6,8 milljörðum varið í áætlunina. „Við erum líka komin lengra í að útfæra aðgerðir sem við teljum að geti skil- að því markmiði sem við stefnum að. Ég skynja áhuga frá almenningi, sveitarfélögum og atvinnulífinu til þess að taka þátt í þessu.“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra, segist stoltur af áætluninni sem sé vel fjármögnuð. „Mér finnst tímabært að við komum auga á þann efnahagslega ávinning sem fylgir því að samgöngur verði knún- ar af orkugjöfum sem við Íslendingar búum yfir og eru sjálfbærir. Það eykur efnahagslegt sjálfstæði okkar og er eins og bónusvinningur í þessu heildarsamhengi hlutanna.“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Efnahagslegur bónusvinningur Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum var kynnt í gær. Meðal tillagna er að nýskráningar bensín- og dísilbíla verði bannaðar frá 2030. Fjármálaráðherra segir tímabært að horfa á efnahagslegan ávinning. Mikil aukning í losun frá stóriðju Á Íslandi jókst losun gróðurhúsa- lofttegunda frá iðnaðarferlum um 106 prósent milli 1990 og 2016 sem fyrst og fremst er rakið til uppbyggingar stóriðju. Losun frá stóriðju fellur ekki undir beinar skuldbindingar stjórnvalda í loftslagsmálum heldur undir evrópskt við- skiptakerfi með losunarheim- ildir. Stefnt er að 43 prósenta minnkun á heildarlosun innan kerfisins til 2030 miðað við losun 1990. Samkvæmt áætluninni mun Ísland taka þátt í breyttu viðskiptakerfi. Guðmundur Ingi Guðbrands- son, umhverfisráðherra, segir að þótt stóriðja falli ekki beint undir skuldbindingar stjórnvalda geti hún tekið þátt í kolefnishlutleysi. „Ég hvet stóriðjuna til að gera það og hlakka til að sjá hana taka skref í þá átt líkt og aðrar greinar.“ Siðferðisleg skylda gagnvart komandi kynslóðum Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar segir að það sem hann hafi séð af aðgerða- áætluninni sé gott. „Það er ánægjulegt að við Íslendingar skulum ætla að taka þessa hluti fastari tökum. Við munum berjast með stjórnvöldum hverju sinni að öllum málum sem eru góð, nauðsynleg og skynsamleg.“ Hann segir þó að það eigi eftir að koma í ljós hvort um sé að ræða raunverulega aukningu fjármuna til loftslagsmála eða hvort verið sé að endurnýta fjármagn úr ríkisfjármála- áætlun. „Það er samt ekki spurning hvort við Íslendingar eigum að ráðast í aðgerðir, heldur erum við skuldbundin til þess. Bæði vegna alþjóð- legra skuldbindinga okkar og svo höfum við siðferðislega skyldu gagnvart komandi kynslóðum.“ BRETLAND Að minnsta kosti átta- tíu þingmenn Íhaldsflokksins eru tilbúnir til þess að greiða atkvæði gegn frumvörpum ríkisstjórnar Íhaldsflokksins undir forsæti Ther- esu May um útgönguna úr Evrópu- sambandinu ef May lætur ekki af stefnu sinni um mjúka útgöngu í málaflokknum. Í mjúkri útgöngu felst áframhald- andi aðild að tollabandalaginu og innri markaði ESB gegn ýmsum málamiðlunum. Þessu hélt Steve Baker, fyrrverandi vararáðherra útgöngumála, fram í gær. Baker sagði af sér fyrr á árinu vegna andstöðu sinnar við stefnuna. Í síðustu viku lýsti Boris Johnson, sem hætti í utan- ríkisráðuneytinu af sömu ástæðu, stefnu May sem sjálfsmorðssprengju- vesti um bresku stjórnar- skrána. Íhaldsflokkurinn heldur landsfund um mánaða- mótin. Baker sagðist í gær óttast að útkoma fundarins verði sú að May ætli að ná sínu fram með aðstoð þingmanna Verkamannaflokksins. „Þá held ég að samninganefnd ESB myndi sjá það vel að Íhaldsflokkurinn hefði klofnað í herðar niður.“ Íhaldsflokkurinn hefur 316 þingmenn á þinginu. 326 myndu teljast meirihluti en flokkurinn nýtur stuðnings norðurírska DUP- flokksins og skríður þannig yfir þröskuldinn. Ef áttatíu Íhaldsmenn kysu gegn May er ljóst að hún þyrfti að reiða sig á stjórnarandstöðuna. Rúmt hálft ár er í útgöngudag, 29.  mars. Þótt tiltölulega stuttur tími sé til stefnu er enn margt óljóst um hvernig útgöngu verður háttað. Enginn endanlegur samningur hefur verið gerður og í ljósi óánægj- unnar innan Íhaldsflokksins er ekki víst hvort May myndi ná slíkum samningi í gegnum þingið. – þea Tugir Íhaldsmanna sagðir tilbúnir að fara gegn Theresu May Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gengu á kynningarfundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR umhverfisráðherra, segir það sér- staklega ánægjulegt að allir ríkis- stjórnarflokkarnir fylki sér á bak við aðgerðir í loftslagsmálum. „Með þeim aðgerðum sem við erum að boða erum við í rauninni að taka fyrstu skrefin í að umbylta sam- göngukerfinu okkar.“ Hann segir að skilaboðin til almennings og atvinnulífsins séu þau að bjóða þeim með í þessa veg- ferð. „Það er grundvallaratriðið, einhvers staðar þurfa stjórnvöld að byrja. Lykilatriði í þessu er fjármagn- ið sem við setjum í þetta og að við erum að taka heildstætt á loftslags- málunum og horfa á alla geira sam- félagsins.“ sighvatur@frettabladid.is DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl- maður hefur verið ákærður fyrir húsbrot og eignaspjöll í Reykja- nesbæ. Maðurinn er búsettur erlendis og ekki íslenskur. Atvikið sem ákært er fyrir átti sér stað aðfaranótt 2. september. Ákærða er gefið að sök að hafa farið inn um ólæstar dyr í hús í óleyfi meðan íbúar voru sofandi. Þar lagð- ist hann í sófa. Þegar húsráðandi varð var við hann krafðist hann þess að maðurinn yfirgæfi húsið. Maðurinn tók því illa og reyndi að komast aftur inn en án árangurs. Kastaði hann þá öskubakka í úti- dyrnar með þeim afleiðingum að gler mölbrotnaði. Viðgerð kostaði rúmar 60 þúsund krónur. Þess er krafist að maðurinn mæti í fyrirtöku málsins 9. október. Mæti hann eigi verður fjarvist hans metin til jafns við að hann viðurkenni brot það sem ákært er fyrir og verður þá lagður á það dómur að honum fjar- stöddum. – jóe Mölvaði hurð í Reykjanesbæ Úr Reykjanesbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C 6 -E 6 7 C 2 0 C 6 -E 5 4 0 2 0 C 6 -E 4 0 4 2 0 C 6 -E 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.