Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 12
Nýjast Þjóðadeildin A-deild Riðill 3 Portúgal - Ítalía 1-0 B-deild Riðill 2 Svíþjóð - Tyrkland 2-3 C-deild Riðill 1 Skotland - Albanía 2-0 Riðill 4 Serbía - Rúmenía 2-2 Svartfjallaland - Litháen 2-0 D-deild Riðill 1 Andorra - Kasakstan 1-1 Riðill 3 Malta - Aserbaídsjan 1-1 Kósóvó - Færeyjar 2-0 KA - Akureyri 28-27 Markahæstir: Áki Egilsnes 8/4, Sigþór Gunnar Jónsson 5, Tarik Kasumovic 5, Allan Norðberg 3, Dagur Gautason 2, Jón Heiðar Sigurðsson 2 - Ihor Kopyshynskyi 9/3, Haf- þór Vignisson 5/1, Brynjar Grétarsson 4. Olís-deild karla Keflavík - Hamrarnir 5-0 Keflavík er komið upp í Pepsi-deildina. ÍA - Afturelding/Fram 2-1 Inkasso-deild kvenna FÓTBOLTI Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fót­ bolta, og Hannes Þór Halldórsson, sem fékk það lítt öfundsverða verk­ efni að reyna að afstýra stærra tapi í leiknum gegn Sviss, ræddu hvernig leikmenn og forráðamenn liðsins hafa tekist á við áfallið á blaða­ mannafundi í gær. Næsta verkefni liðsins er afar verðugt, en  liðið mætir  bronsverðlaunahöfum frá heimsmeistaramótinu í Rússlandi. „Við náðum aldrei takti í þessum leik og misstum algerlega hausinn eftir að hafa fengið þriðja markið á okkur. Við fórum að verjast hver í sínu horni og það kann aldrei góðri lukku að stýra. Við vorum í áfalli eftir þennan leik og þó svo að aðstæður séu ekki eins þá má líkja þessu við rassskellinguna sem Bras­ ilía fékk gegn Þýskalandi í undanúr­ slitum HM 2014,“ segir Hamrén á blaðamannafundinum í gær. „Leikmenn liðsins þurfa að sýna þess háttar spilamennsku í leiknum gegn Belgíu að þeir geti litið í spegil­ inn eftir leikinn og verið stoltir. Við þurfum að endurheimta stoltið og sýna hvað í liðinu býr. Við munum gera taktískar breytingar frá leiknum gegn Sviss og leita til leik­ manna sem hafa aðra eiginleika en þeir sem byrjuðu í þeim leik,“ segir sænski þjálfarinn sem vildi þó ekki gefa upp hvort breytt verði um leik­ kerfi í leiknum gegn Belgum í kvöld. „Leikurinn og frammistaða okkar var rædd í þaula næsta sólarhring eftir leikinn. Við teljum okkur vita hvað fór úrskeiðis og ætlum að rísa aftur upp. Við höfum áður staðið okkur vel gegn sterkum þjóðum á heimavelli. Þar á meðal gegn ný­ krýndum bronsverðlaunahafa af heimsmeistaramóti. Við þurfum að sýna þessu verkefni auðmýkt, en um leið að hafa það í huga að við getum vel náð í góð úrslit með frábærum stuðningi. Við biðjum nú um að fá áfram þann góða stuðning sem við höfum notið undanfarin ár,“ segir Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska liðsins, á blaðamannafundinum. „Okkur líður vel hérna á heima­ velli og við stefnum að því að skapa góð augnablik sem verða til þess að við getum grafið leikinn gegn Sviss strax. Það er gott að fá leik strax til þess að geta kvittað fyrir þennan slæma leik. Undirbúningur minn er bara hefðbundinn fyrir þennan leik. Við erum vanir því að mæta leikmönnum í þeim gæðaflokki sem leikmenn belgíska liðsins eru. Við erum staðráðnir í að standa okkur vel og freista þess að ná jákvæðum úrslitum," segir Hannes Þór um leikinn gegn Belgum á Laugar­ dalsvellinum sem hefst klukkan 18:45 í kvöld. hjorvaro@frettabladid.is Vilja endurheimta stoltið Leikmenn og þjálfarateymi íslenska fótboltalandsliðsins fengu vænan kinnhest þegar liðið hóf vegferð sína undir stjórn Eriks Hamrén. Nú þarf íslenska liðið að reisa sig við eftir að hafa verið slegið til jarðar. Erik Hamrén og Hannes Þór Halldórsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Myndir frá grannaslag KA og Akureyrar í Olís-deild karla má sjá á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +PLÚS 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT citroen.is Nýir og notaðir bílar: Söludeildir opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 TRYGGÐU ÞÉR CITROËN SENDIBÍL Á FRÁBÆRU TILBOÐI! ALLT AÐ 500.000 KR. AFSLÁTTUR Komdu og ný ttu þér frábært tilboð ! Gildir til 30. s eptember CITROËN BERLINGO STUTTUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 2.600.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 2.300.000 KR. M. VSK 1.854.000 KR. ÁN VSK. CITROËN JUMPY VAN LANGUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 4.145.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 3.645.000 KR. M. VSK 2.939.000 KR. ÁN VSK. AFSLÁTTUR 300.000 KR. AFSLÁTTUR 500.000 KR. VERÐDÆMI: 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C 6 -D C 9 C 2 0 C 6 -D B 6 0 2 0 C 6 -D A 2 4 2 0 C 6 -D 8 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.