Fréttablaðið - 11.09.2018, Page 12
Nýjast
Þjóðadeildin
A-deild
Riðill 3
Portúgal - Ítalía 1-0
B-deild
Riðill 2
Svíþjóð - Tyrkland 2-3
C-deild
Riðill 1
Skotland - Albanía 2-0
Riðill 4
Serbía - Rúmenía 2-2
Svartfjallaland - Litháen 2-0
D-deild
Riðill 1
Andorra - Kasakstan 1-1
Riðill 3
Malta - Aserbaídsjan 1-1
Kósóvó - Færeyjar 2-0
KA - Akureyri 28-27
Markahæstir: Áki Egilsnes 8/4, Sigþór
Gunnar Jónsson 5, Tarik Kasumovic 5, Allan
Norðberg 3, Dagur Gautason 2, Jón Heiðar
Sigurðsson 2 - Ihor Kopyshynskyi 9/3, Haf-
þór Vignisson 5/1, Brynjar Grétarsson 4.
Olís-deild karla
Keflavík - Hamrarnir 5-0
Keflavík er komið upp í Pepsi-deildina.
ÍA - Afturelding/Fram 2-1
Inkasso-deild kvenna
FÓTBOLTI Erik Hamrén, þjálfari
íslenska karlalandsliðsins í fót
bolta, og Hannes Þór Halldórsson,
sem fékk það lítt öfundsverða verk
efni að reyna að afstýra stærra tapi í
leiknum gegn Sviss, ræddu hvernig
leikmenn og forráðamenn liðsins
hafa tekist á við áfallið á blaða
mannafundi í gær. Næsta verkefni
liðsins er afar verðugt, en liðið
mætir bronsverðlaunahöfum frá
heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
„Við náðum aldrei takti í þessum
leik og misstum algerlega hausinn
eftir að hafa fengið þriðja markið
á okkur. Við fórum að verjast hver
í sínu horni og það kann aldrei
góðri lukku að stýra. Við vorum í
áfalli eftir þennan leik og þó svo að
aðstæður séu ekki eins þá má líkja
þessu við rassskellinguna sem Bras
ilía fékk gegn Þýskalandi í undanúr
slitum HM 2014,“ segir Hamrén á
blaðamannafundinum í gær.
„Leikmenn liðsins þurfa að sýna
þess háttar spilamennsku í leiknum
gegn Belgíu að þeir geti litið í spegil
inn eftir leikinn og verið stoltir. Við
þurfum að endurheimta stoltið og
sýna hvað í liðinu býr. Við munum
gera taktískar breytingar frá
leiknum gegn Sviss og leita til leik
manna sem hafa aðra eiginleika en
þeir sem byrjuðu í þeim leik,“ segir
sænski þjálfarinn sem vildi þó ekki
gefa upp hvort breytt verði um leik
kerfi í leiknum gegn Belgum í kvöld.
„Leikurinn og frammistaða okkar
var rædd í þaula næsta sólarhring
eftir leikinn. Við teljum okkur vita
hvað fór úrskeiðis og ætlum að rísa
aftur upp. Við höfum áður staðið
okkur vel gegn sterkum þjóðum á
heimavelli. Þar á meðal gegn ný
krýndum bronsverðlaunahafa af
heimsmeistaramóti. Við þurfum
að sýna þessu verkefni auðmýkt,
en um leið að hafa það í huga að
við getum vel náð í góð úrslit með
frábærum stuðningi. Við biðjum nú
um að fá áfram þann góða stuðning
sem við höfum notið undanfarin
ár,“ segir Hannes Þór Halldórsson,
markvörður íslenska liðsins, á
blaðamannafundinum.
„Okkur líður vel hérna á heima
velli og við stefnum að því að skapa
góð augnablik sem verða til þess að
við getum grafið leikinn gegn Sviss
strax. Það er gott að fá leik strax til
þess að geta kvittað fyrir þennan
slæma leik. Undirbúningur minn
er bara hefðbundinn fyrir þennan
leik. Við erum vanir því að mæta
leikmönnum í þeim gæðaflokki sem
leikmenn belgíska liðsins eru. Við
erum staðráðnir í að standa okkur
vel og freista þess að ná jákvæðum
úrslitum," segir Hannes Þór um
leikinn gegn Belgum á Laugar
dalsvellinum sem hefst klukkan
18:45 í kvöld. hjorvaro@frettabladid.is
Vilja endurheimta stoltið
Leikmenn og þjálfarateymi íslenska fótboltalandsliðsins fengu vænan kinnhest þegar liðið hóf vegferð
sína undir stjórn Eriks Hamrén. Nú þarf íslenska liðið að reisa sig við eftir að hafa verið slegið til jarðar.
Erik Hamrén og Hannes Þór Halldórsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Myndir frá grannaslag KA og
Akureyrar í Olís-deild karla má
sjá á +Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
citroen.is
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir opnar virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 8
Sími 515 7040
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
TRYGGÐU ÞÉR CITROËN SENDIBÍL
Á FRÁBÆRU TILBOÐI!
ALLT AÐ 500.000 KR. AFSLÁTTUR
Komdu og ný
ttu þér
frábært tilboð
!
Gildir til 30. s
eptember
CITROËN BERLINGO STUTTUR 1,6 dísil beinsk.
VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI:
2.600.000 KR. MEÐ VSK.
TILBOÐSVERÐ:
2.300.000 KR. M. VSK
1.854.000 KR. ÁN VSK.
CITROËN JUMPY VAN LANGUR 1,6 dísil beinsk.
VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI:
4.145.000 KR. MEÐ VSK.
TILBOÐSVERÐ:
3.645.000 KR. M. VSK
2.939.000 KR. ÁN VSK.
AFSLÁTTUR
300.000 KR.
AFSLÁTTUR
500.000 KR.
VERÐDÆMI:
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-D
C
9
C
2
0
C
6
-D
B
6
0
2
0
C
6
-D
A
2
4
2
0
C
6
-D
8
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K