Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 20
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Athanasia vinnur mikið með öndun, þyngdaraflið og spennu í danstúlkun sinni og semur dansa út frá þessum þáttum. MYND/GIANNIS HATZIANTONIOU Líf mitt og í raun okkar allra snýst um hreyfingu,“ segir Athanasia. „Ekki bara í dansi, hvernig við hreyfum okkur í rými, hvernig við hreyfum líkamann og andann, ferðumst yfir landa- mæri og á framandi slóðir. Ég hef sjálf verið útlendingur í átján ár, flutti frá heimaborginni minni, Aþenu, þegar ég var sautján ára til að læra í London, flutti að námi loknu til New York til að læra meira hjá Mörthu Graham og síðan til Evrópu. Ég dansaði með Tanztheater Wuppertal-Pina Bausch í Þýskalandi í sex ár, eftir það í tvö ár með Les ballets C de la B í Belgíu og hef undandarið dansað með Jasmin Vardimon dansflokknum í London.“ Athanasia segir að eftir þessa fjölbreyttu reynslu hafi hana langað til að ná áttum og líta inn á við. „Ég reyndi að greina hvaða áhrif þessir ólíku listamenn hafa haft á mig, líf mitt og dans. Ég fór að skoða hvernig dansari ég er og hvernig ég get best deilt þekkingu minni og reynslu með nemendum Lífið snýst um hreyfingu Athanasia Kanellopoulou er grískur dansari og danshöfundur sem hefur unnið með mörgum helstu danshöfundum heims. Hún er á leið til landsins til að kenna dans í helstu dansskólum og stofnunum og verður meðal annars með námskeið í Kramhúsinu síðustu helgina í september Athanasia Kanell­ opoulou er grísk að uppruna en hefur búið utan heimalands síns í átján ár og dansað með nokkrum helstu danshöf­ undum heims. MYND/GIANNIS HATZIANTONIOU og ungum dönsurum.“ Í rannsóknum sínum hefur Athanasia reynt að finna út hvað hreyfir við fólki og fær það til að skapa. „Rann- sóknir eru líka skapandi, að spyrja spurninga, skiptast á hug- myndum og byggja brýr milli ólíkra menningar- heima. Ég hef líka mikinn áhuga á menntun og að láta reynslu og þekkingu ganga áfram til komandi kynslóða. Aðaláherslan hjá mér er að reyna að skilja flækj- urnar í sálum okkar og hugum, að finna dýpstu þrár okkar og þráhyggju í samhengi við hvar við erum stödd í lífinu og samfélaginu. Ég byrja alltaf á líkamanum sem geymir í sér allar okkar upplifanir og minningar.“ Hún nefnir Pinu Bausch sem sérstaka fyrirmynd en hún var brautryðjandi í því að blanda saman dansi og öðrum list- greinum svo úr urðu einstök lista- verk. „Það var einstök reynsla að dansa í flokknum hennar, reynsla sem hefur breytt sjónarhorni mínu á lífið, listina og hreyfingu og hvernig þetta kemur allt saman á einum punkti. Ég lærði meðal annars að lífið er mikilvægara en listin.“ Þetta er í þriðja sinn sem Athan- asia kemur til Íslands og hún er mjög hrifin af landi og þjóð. „Ég hef unnið hér með listdansdeild- inni í Listaháskólanum, Íslenska dansflokknum, Kramhúsinu og fleiri einka- skólum,“ segir hún og bætir við að sköpunarkrafturinn sé einstakur hérlendis. „Hér þyrstir dansara og aðra listamenn í að finna sjálfið og spegla samfélagið gegnum list sem gerir það að verkum að danslífið hér er afar spennandi.“ Námskeiðið í Kramhúsinu verður opið öllum sem vilja læra meira í nútímadansi. „Fyrri daginn verður áherslan á tækni, og hvernig við nýtum ólíka þætti eins og þyngdarafl, öndun og dýnamík í dansi og seinni daginn verður farið í grunnatriði í því að semja dansa og byggja upp atriði og kóreó- grafíu. Ég hlakka mjög til að koma til Íslands og hitta unga dansara og danshöfunda og bæði deila minni þekkingu og læra af dönsurunum hér.“  Námskeiðið í Kramhúsinu verður helgina 29.-30. september milli fjögur og sex. Nánari upplýsingar og skráning á kramhusid.is.   100% Black 60% Magenta 100% Yello RITLISTARNÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2018 Hægt er fá ritlistarnámskeið sérsniðna fyrir hópa og fyrirtæki. Ráðgjöf um ritun og útgáfu Endurminningaskrif. Reykjavík, 24. september – 15. október Endurminningaskrif. Félagsmiðstöðin Vesturreitir, 25. september – 16. október Skapandi skrif. Helgarnámskeið, Reykjavík, 12. -14. október Skapandi skrif fyrir háskólafólk. El Tobosco, Spáni, 20. -27. október Skoðanaskrif. Reykjavík, 29. október – 19. nóvember Skapandi skrif. Berlín, 25. – 28. nóvember Skapandi skrif. Helgarnámskeið á Ísafirði, 11. – 13. janúar 2019 ,,Ótrúlega, endalaust skemmtilegt!” Ósk Elísdóttir Björg Árnadóttir, rithöfundur, blaðamaður og ritlistarkennari www.stilvopnid.is 4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C 6 -E B 6 C 2 0 C 6 -E A 3 0 2 0 C 6 -E 8 F 4 2 0 C 6 -E 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.