Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 20
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Athanasia vinnur mikið með öndun, þyngdaraflið og spennu í danstúlkun
sinni og semur dansa út frá þessum þáttum. MYND/GIANNIS HATZIANTONIOU
Líf mitt og í raun okkar allra snýst um hreyfingu,“ segir Athanasia. „Ekki bara í dansi,
hvernig við hreyfum okkur í rými,
hvernig við hreyfum líkamann
og andann, ferðumst yfir landa-
mæri og á framandi slóðir. Ég hef
sjálf verið útlendingur í átján ár,
flutti frá heimaborginni minni,
Aþenu, þegar ég var sautján ára
til að læra í London, flutti að
námi loknu til New York til að
læra meira hjá Mörthu Graham
og síðan til Evrópu. Ég dansaði
með Tanztheater Wuppertal-Pina
Bausch í Þýskalandi í sex ár, eftir
það í tvö ár með Les ballets C de
la B í Belgíu og hef undandarið
dansað með Jasmin Vardimon
dansflokknum í London.“
Athanasia segir að eftir þessa
fjölbreyttu reynslu hafi hana
langað til að ná áttum og líta inn
á við. „Ég reyndi að greina hvaða
áhrif þessir ólíku listamenn hafa
haft á mig, líf mitt og dans. Ég fór
að skoða hvernig dansari ég er og
hvernig ég get best deilt þekkingu
minni og reynslu með nemendum
Lífið snýst um hreyfingu
Athanasia Kanellopoulou er grískur dansari og danshöfundur sem hefur unnið með mörgum
helstu danshöfundum heims. Hún er á leið til landsins til að kenna dans í helstu dansskólum og
stofnunum og verður meðal annars með námskeið í Kramhúsinu síðustu helgina í september
Athanasia Kanell
opoulou er grísk
að uppruna en
hefur búið utan
heimalands síns í
átján ár og dansað
með nokkrum
helstu danshöf
undum heims.
MYND/GIANNIS
HATZIANTONIOU
og ungum dönsurum.“
Í rannsóknum sínum
hefur Athanasia reynt
að finna út hvað
hreyfir við fólki
og fær það til að
skapa. „Rann-
sóknir eru líka
skapandi, að
spyrja spurninga,
skiptast á hug-
myndum og
byggja brýr milli
ólíkra menningar-
heima. Ég hef líka
mikinn áhuga á
menntun og að láta
reynslu og þekkingu
ganga áfram til komandi
kynslóða. Aðaláherslan hjá
mér er að reyna að skilja flækj-
urnar í sálum okkar og hugum,
að finna dýpstu þrár okkar og
þráhyggju í samhengi við hvar við
erum stödd í lífinu og samfélaginu.
Ég byrja alltaf á líkamanum sem
geymir í sér allar okkar upplifanir
og minningar.“
Hún nefnir Pinu Bausch sem
sérstaka fyrirmynd en hún var
brautryðjandi í því að blanda
saman dansi og öðrum list-
greinum svo úr urðu einstök lista-
verk. „Það var einstök reynsla að
dansa í flokknum hennar, reynsla
sem hefur breytt sjónarhorni
mínu á lífið, listina og hreyfingu
og hvernig þetta kemur allt saman
á einum punkti. Ég lærði meðal
annars að lífið er mikilvægara en
listin.“
Þetta er í þriðja sinn sem Athan-
asia kemur til Íslands og hún er
mjög hrifin af landi og þjóð. „Ég
hef unnið hér með listdansdeild-
inni í Listaháskólanum, Íslenska
dansflokknum, Kramhúsinu og
fleiri einka-
skólum,“ segir
hún og bætir við að
sköpunarkrafturinn sé einstakur
hérlendis. „Hér þyrstir dansara og
aðra listamenn í að finna sjálfið og
spegla samfélagið gegnum list sem
gerir það að verkum að danslífið
hér er afar spennandi.“
Námskeiðið í Kramhúsinu
verður opið öllum sem vilja
læra meira í nútímadansi. „Fyrri
daginn verður áherslan á tækni, og
hvernig við nýtum ólíka þætti eins
og þyngdarafl, öndun og dýnamík í
dansi og seinni daginn verður farið
í grunnatriði í því að semja dansa
og byggja upp atriði og kóreó-
grafíu. Ég hlakka mjög til að koma
til Íslands og hitta unga dansara og
danshöfunda og bæði deila minni
þekkingu og læra af dönsurunum
hér.“
Námskeiðið í Kramhúsinu verður
helgina 29.-30. september milli
fjögur og sex. Nánari upplýsingar og
skráning á kramhusid.is.
100% Black
60% Magenta
100% Yello
RITLISTARNÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2018
Hægt er fá ritlistarnámskeið sérsniðna fyrir hópa og fyrirtæki.
Ráðgjöf um ritun og útgáfu
Endurminningaskrif. Reykjavík, 24. september – 15. október
Endurminningaskrif. Félagsmiðstöðin Vesturreitir, 25. september – 16. október
Skapandi skrif. Helgarnámskeið, Reykjavík, 12. -14. október
Skapandi skrif fyrir háskólafólk. El Tobosco, Spáni, 20. -27. október
Skoðanaskrif. Reykjavík, 29. október – 19. nóvember
Skapandi skrif. Berlín, 25. – 28. nóvember
Skapandi skrif. Helgarnámskeið á Ísafirði, 11. – 13. janúar 2019
,,Ótrúlega, endalaust
skemmtilegt!”
Ósk Elísdóttir Björg Árnadóttir,
rithöfundur, blaðamaður
og ritlistarkennari
www.stilvopnid.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-E
B
6
C
2
0
C
6
-E
A
3
0
2
0
C
6
-E
8
F
4
2
0
C
6
-E
7
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K