Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 54
Njóttu þess að fara í sund / sjósund Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra eyrnaböndum og eyrnatöppum Hannað af háls- nef- og eyrnalæknum Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með rör í eyrum eða viðkvæm eyru. Til í þremur stærðum. S - frá 1. til 3. ára M - frá 4. til 9 ára L - frá 10 ára og eldri ( fullorðnir ) Fæst í apótekum, Sundlaug Kópavogs, Útilíf, Heimkaup og barnavöruverslunum. Pakkinn inniheldur bæði eyrnatappa og eyrnaband. Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land KVIKMYNDIR Lof mér að falla ★★★★ Leikstjórn: Baldvin Zophoníasson Handrit: Birgir Örn Steinarsson, Baldvin Zophoníasson Aðalhlutverk: Elín Sif Halldórs- dóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Eyrún Björk Jakobsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir Lof mér að falla er ekki auðveld mynd á að horfa enda raunsönn og óvæg-in lýsing á ömurlegum veruleika ungra fíkla. Hún er í það minnsta 40 mínútum of löng, langdregin sem- sagt, hrá, ljót og á köflum nánast leiðinleg. Svolítið eins og dauða- stríð fíkla þannig að ekki verður af höfundum myndarinnar tekið að þeim tekst listavel að koma sögunni til skila. Höfundarnir lögðu mikla vinnu í handritið, leituðu víða fanga og flétta sorgarsögu unglingsstúlkunn- ar Magneu úr viðtölum við stelpur sem festust í viðjum fíknarinnar, átakanlegum dagbókum konu sem fór í gegnum hreint helvíti á götunni og endaði á því að stytta sér aldur. Lof mér að falla hefur verið áber- andi í umræðunni síðustu vikur enda þykir hún vera einhvers konar opinberun. „Venjulegt“ fólk er sagt alveg miður sín og í mauki eftir að hafa horft á myndina og allt í einu eru allir orðnir mjög meðvitaðir um hversu viðbjóðslegur veruleiki ungra fíkla er í raun og veru. Ógeðslegur heimur Ekki ætla ég að gera lítið úr því og vona að sem allra flestir leggi þessa hlélausu 136 mínútna harmsögu á sig í kvikmyndahúsum. Þeir sem verða beinlínis fyrir áfalli yfir því sem fyrir augu ber mættu líka alveg eiga langt eintal við sjálfa sig og samvisku sína ef það þurfti virkilega dramatíseraða bíómynd til þess að troða því inn í hausinn á þeim að það er ekkert fallegt, spennandi eða skemmtilegt við þann ógeðslega heim sem langt leiddir fíklar búa í. Hélt virkilega einhver að það lægi ekki ömurleg neyð og vonlausar sögur á bak við fréttirnar af öllum týndu börnunum og unglingum sem deyja í partíum? Hvarflaði virkilega að einhverjum að á bak við þessar sorglegu fréttir væri eitt- hvað annað en viðbjóður, uppgjöf og vonlaus staða? Lof mér að falla sprengir allar slíkar sápukúlur og þótt myndin sé ágeng og erfið þá hefði hún samt getað verið miklu andstyggilegri vegna þess einfaldlega að það eru engin takmörk fyrir þeim hryll- ingi sem ungir fíklar geta flækst í og ótrúlegum skepnuskapnum sem þeir óþverrar sem nýta sér neyð þeirra sýna krökkunum. Frábærar leikkonur Lof mér að falla hverfist um ungl- ingsstúlkuna Magneu sem sogast hratt ofan í martraðarheim fíknar- innar, með dyggilegri leiðsögn hinn- ar frökku Stellu. Átakanleg sagan af falli Magneu er saga einnar persónu en um leið saga ótal ungmenna út um allan heim sem hafa mátt þola sömu örlög. Þótt vel sé vandað til verka í hví- vetna liggur styrkur myndarinnar fyrst og fremst í frábærum leik Elín- ar Sifjar og Kristínar Þóru sem leika Magneu unga og fullorðna þegar götulífið hefur gersamlega bugað hana, og sömuleiðis Eyrúnar Bjarkar og Láru Jóhönnu sem leika Stellu á sömu aldursskeiðum. Elín Sif ristir ofsalega djúpt í næmri og hyldjúpri túlkun sinni á Magneu ungri þannig að maður þjáist með henni alla leið og Kristín Þóra umbreytist sannfærandi í flakið sem unga stúlkan breytist í. Helsti galli myndarinnar er að hún er of löng og verður langdregin á endasprettinum. Framan af heldur hún hins vegar fullum dampi og Baldvin fer á kostum í notkun á myndmáli og byggir upp hverja sen- una á fætur annarri af mikilli íþrótt. Það hefur löngum viljað loða við fíklamyndir að þær ná hæstu flugi á meðan djammið er ennþá spenn- andi og tjúttið er enn feitt. Lof mér að falla er þessu marki brennd en fyrri hlutinn verður enn betri þar sem lúmskum feigðarboðum er lætt inn í myndmálið. Þótt stelpunum finnist það þá er nefnilega aldrei neitt varið í þetta partí. Vonandi verður Lof mér að falla sem flestum hugvekja, ekki síst þeim sem fá sjokk. Þeir hinir sömu hefðu gott af því að líta í eigin barm og velta fyrir sér eigin ábyrgð á sam- félagi sem er skítsama þótt ungt fólk falli fyrir fíkninni. Annars staðar en í bíó. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Fantavel leikin og í grunninn vel gerð bíómynd um brýnt efni sem verður langdregin vegna þess að höfundarnir gera hana af alúð og virðingu og liggur meira á hjarta en formið þolir. Skítug tuska framan í smáborgara Lof mér að falla er ekki auðveld mynd á að horfa enda raun­ sönn og átakanleg. Fall Magneu er saga einnar persónu en um leið ótal ungmenna um allan heim sem hlotið hafa sömu örlög. Elín Sif og Eyrún Björk eru frábærar í hlutverkum Stellu og Magneu og túlka stúlkurnar í gleði og sorg af mögnuðu næmi. Kristín Þóra kafar djúpt ofan í svartnætti fíkilsins í átakanlegri túlkun sinni á Magneu fullorðinni. Enn einn brilljansinn hjá þessari öflugu leikkonu. HÉLT VIRKILEGA EINHVER AÐ ÞAÐ LÆGI EKKI ÖMURLEG NEYÐ OG VONLAUSAR SÖGUR Á BAK VIÐ FRÉTTIRNAR AF ÖLLUM TÝNDU BÖRNUNUM OG UNGLINGUM SEM DEYJA Í PARTÍUM? HVARFLAÐI VIRKILEGA AÐ EINHVERJUM AÐ Á BAK VIÐ ÞESSAR SORGLEGU FRÉTTIR VÆRI EITTHVAÐ ANNAÐ EN VIÐBJÓÐUR, UPPGJÖF OG VONLAUS STAÐA? 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C E -5 8 5 C 2 0 C E -5 7 2 0 2 0 C E -5 5 E 4 2 0 C E -5 4 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.