Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 60
Húðflúrstofan Black Kross verður eins árs á laugardaginn næstkomandi en eigandi hennar er Bandaríkjamaður- inn Jason Thompson. Hann missti allt sitt í fellibyl og endaði á Íslandi í kjölfar The Icelandic Tattoo Con- vention. „Ég flutti hingað til lands árið 2006 og hef síðan verið að flúra á alls konar stofum um allan bæ. Ég byrjaði fyrst í bransanum í kringum árið 1999 þannig að mér fannst vera kominn tími til að opna mína eigin stofu. Á laugardaginn verður komið eitt ár síðan – sem er alveg geggjað, því ég hef náð að hafa ljósin kveikt og borgað leiguna – þannig að ég myndi segja að ég væri alveg að massa þetta!“ segir Jason en þetta er fyrsta stofan í hans eigu, en hann segir að það sé allt, allt annar heim- ur að reka eigin stofu en að vinna á stofu hjá öðrum. „Góður guð! Ég hef aldrei verið svona fátækur í lífinu eins og núna eftir að ég opnaði mína eigin stofu. Ég meina, ég sé peningana koma inn en þeir fara ekki í vasann minn,“ segir Jason og hlær. „Jú, einmitt, ég er frá „The US of A“ og þú heyrir kannski frelsið í rödd- inni minni,“ segir Jason kíminn þegar blaðamaður spyr hann hvort hann sé ekki örugglega frá Banda- ríkjunum. Hann bætir við að hann sé frá ríkinu Ohio, en það er mjög norðarlega í landinu og Jason segir að það sé allt sem hægt sé að segja um það fylki og sögu hans þar, en allir verði jú að vera frá einhverjum stað. „Ég flutti til Íslands frá Louisiana, en þar bjó ég á ströndinni í góðu yfirlæti. Þegar fellibylurinn Katrína reið yfir þá missti ég … fjandinn hafi það … ég missti allt! Ef þú misstir allt gastu fengið frían tjaldvagn frá ríkis- stjórninni – sem var geggjað! Í svona tvo tíma. Þangað til að ég áttaði mig: „Fjandinn! Ég bý í vagni úti á miðju engi,“ og það var svo sannar- lega aldrei hluti af því sem ég vildi nokkru sinni gera í lífinu. Stuttu síðar var mér boðið til Íslands á ráð- stefnuna og boðin vinna í kjölfarið – þar sem allt sem ég átti passaði í eina tösku var það ekki flókið mál fyrir mig.“ Jason segir að sér hafi strax þótt fínt að vera á Íslandi og auk þess hafi ekki verið neitt í gangi í Louisiana nema „skítugir bóndadurgar“ eins og hann orðar það. Á laugardaginn verður haldin veisla til að halda upp á þetta ár sem Black Kross hefur verið opin og með ljósin kveikt. Þarna kemur fram hellingur af röppurum: Kilo, Ragga Hólm, Alexander Jarl og fleiri, auk plötusnúðanna Balatron og BLKPRTY. „Ég er búinn að flúra þetta fólk í drasl og raunar hef ég, að ég örugg- lega held, flúrað hvern einasta rapp- ara í borginni að minnsta kosti einu sinni. Allavega þá sem eru orðnir átján ára. Eða fokk, ég flúraði Aron Can þegar hann var ekki orðinn átján – ég þurfti að hringja í mömmu hans. Hann mætti með vinum sínum svo ég fékk hann til að koma með mér afsíðis og tilkynnti honum að ég vissi að hann væri ekki átján og sagði: „Gaur, ég þarf að hringja í mömmu þína.“ Hann var alveg rólegur yfir því samt.“ Veislan hefst klukkan 21 á laugar- daginn og í boði eru léttar veitingar og afsláttur af flúri. stefanthor@frettabladid.is Hefur haldið sjoppunni opinni í eitt ár Jason Thompson er eigandi húðflúrstof- unnar Black Kross sem verður eins árs næst- komandi laugardag. Jason flutti til landsins árið 2006 frá Bandaríkjunum en þar hafði hann misst allt sitt í fellibylnum Katrínu. Rapparararnir, vinir Jasons, sem koma fram á laugardaginn eru vel skreyttir flúrum frá honum. Jason segist líklega hafa krotað á hvern einasta rappara í Reykjavík. Hér má sjá Alexander Jarl og Röggu Hólm hljóta flúr frá Jason. Jason segir að það sé vægt til orða tekið erfiðara að eiga stofu heldur en að vinna á stofu en er feginn að hafa getað haldið straumi á búllunni í heilt ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR RAUNAR HEF ÉG, AÐ ÉG ÖRUGGLEGA HELD, FLÚRAÐ HVERN EINASTA RAPPARA Í BORGINNI AÐ MINNSTA KOSTI EINU SINNI. ALLAVEGANA ÞÁ SEM ERU ORÐNIR ÁTJÁN ÁRA. 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C E -5 3 6 C 2 0 C E -5 2 3 0 2 0 C E -5 0 F 4 2 0 C E -4 F B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.