Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 8
Ford EcoSport býður upp á mikla veghæð sem kemur sér vel í snjó og við aðrar erfiðar aðstæður. Þú situr líka hærra og það er mun þægilegra að ganga um bílinn. Ford EcoSport Titanium S er sérlega vel búinn m.a. leðuráklæði á sætum, 17” álfelgum, Xenon aðalljósum, 8” snertiskjá, tölvustýrðri loftkælingu, 7 hátölurum, bakkmyndavél, SYNC3 hljómtækjum með raddstýringu og neyðarhringingu, ESP stöðugleikakerfi með spólvörn, leðurklætt fjölstillanlegt stýri, Apple CarPlay og Android Auto. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD ECOSPORT HÁSETINN Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EcoSport ford.is 3.490.000KR. FORD ECOSPORT TITANIUM S SJÁLFSKIPTUR: FORD ECOSPORT VERÐ FRÁ: 2.750.000 KR. Ford_EcoSport_5x15_20180507_END.indd 1 07/05/2018 14:56 Skilyrðin sem Samkeppniseftirlitið hefur sett fyrir yfirtöku Haga á Olís eru líklegast þau umfangsmestu sem sett hafa verið fram í samruna- málum hér á landi, að sögn Eggerts B. Ólafssonar, sérfræðings í sam- keppnisrétti. Hann segir skilyrðin þó ekki hafa komið á óvart. Legið hafi fyrir frá upphafi að eftirlitið vilji tryggja að aukin samþætting á eldsneytis- og matvörumarkaði tor- veldi ekki aðgang nýrra keppinauta að mörkuðunum. Hagar hafa þegar fundið kaup- endur að þeim eignum sem versl- unarrisanum ber, að kröfu Sam- keppniseftirlitsins, að selja en um er að ræða þrjár Bónusverslanir, á Hallveigarstíg, í Faxafeni og Skeif- unni, fimm eldsneytisstöðvar ÓB og Olís og eina dagvöruverslun Olís í Stykkishólmi. „Söluskilyrði sem þessi eru ný af nálinni í samrunamálum hér á landi. Við höfum ekki séð mikið af slíku,“ segir Eggert og bætir við að almennt sé talið að skilyrði um sölu eigna séu áhrifaríkari en skilyrði um tiltekna hegðun fyrirtækja. „Í erlendum samanburði eru skilyrðin í þessu samrunamáli þó ekkert rosa- lega umfangsmikil,“ nefnir hann. Kaup Haga á Olís, sem var fyrst tilkynnt um í apríl í fyrra, munu þó ekki ganga endanlega í gegn fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur metið hæfi kaupenda áðurnefndra eigna. Vonir stjórnenda Haga standa til Skilyrðin þau umfangsmestu Eignarhaldsfélagið LBI, sem heldur utan um eignir gamla Lands- bankans, greiddi ríflega 3,4 millj- ónir evra, jafnvirði um 430 milljóna króna, í laun og launatengd gjöld á öðrum fjórðungi ársins og nær þrefölduðust greiðslurnar frá fyrsta fjórðungi þegar þær námu jafnvirði 155 milljóna króna. Hækkunin á milli fjórðunga skýr- ist af hvata- og starfslokagreiðslum sem féllu til á öðrum ársfjórðungi, að því er fram kemur í kynn- ingu vegna fjórðungs- uppgjörs félagsins. Sex manns störfuðu að meðaltali hjá LBI á öðrum fjórðungi. – kij Greiðslur LBI hækkuðu um 275 milljónir Olíukostnaður WOW air nam 122,3 milljónum dala, sem jafngildir 13,8 milljörðum króna, á síðasta ári og meira en tvöfaldaðist frá fyrra ári þegar hann var 60,8 milljónir dala, jafnvirði 6,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi flugfélagsins. Verð á flugeldsneyti hækkaði um 20 prósent á síðasta ári en hækk- unin hefur verið enn meiri, yfir 30 prósent, það sem af er þessu ári. O l í u ko st n a ð u r inn nam ríflega 25 prósentum af tekjum WOW air í fyrra en hlutfallið var 19,8 prósent árið 2016. – kij Olíukostnaður tvöfaldaðist Sameinað félag Haga og Olís hefur skuldbundið sig til þess að selja þrjár Bónusverslanir, fimm eldsneytisstöðvar Olís og ÓB og dagvöruverslun Olís í Stykkishólmi. Þegar eru kaupendur fundnir að eignunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sérfræðingur í sam- keppnisrétti segir skil- yrðin sem Hagar þurfa að undirgangast til þess að eignast Olís ekki hafa komið á óvart. Hagar hafa þegar fundið kaup- endur að þeim eign- um sem félaginu ber að selja. Fjárfestar tóku vel í samþykki eftirlitsins. 16 milljarðar króna er heildar- virði Olís í kaupum Haga á félaginu. Söluskilyrði sem þessi eru ný af nálinni í samrunamálum hér á landi. Eggert B. Ólafsson, sérfræðingur í samkeppnisrétti þess að hæfismatinu verði lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember. Eggert segir að Samkeppniseftir- litið muni meðal annars taka til skoðunar hvort mögulegir kaup- endur að verslununum og elds- neytisstöðvunum séu nógu öfl- ugir til þess að geta veitt Högum og öðrum keppinautum samkeppni. Í sátt Haga og Samkeppniseftirlitsins er sem dæmi gerð sú krafa að kaup- endur búi yfir „nægjanlegri þekk- ingu, fjárhagsstyrk og hvata til þess að líklegt sé að hann geti til bæði skemmri og lengri tíma veitt keppi- nautum umtalsvert samkeppnislegt aðhald“. Eggert segir hins vegar að það sé vafamál hvort slíkum kaupendum sé yfirhöfuð til að dreifa hér á landi í ljósi smæðar landsins. Miklu skipti jafnframt hve vænlegar eignirnar séu til sölu. Fram kemur í tilkynningu sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér í tilefni sáttarinnar við Haga að eftir- litið hafi talið óvissu ríkja um „sölu- vænleika“ þeirra eigna sem Hagar buðust til að selja til þess að liðka fyrir kaupunum. Af þeim sökum gerði eftirlitið þá kröfu að Högum yrði óheimilt að taka yfir eignir Olís fyrr en samningar liggja fyrir við „öfluga kaupendur“ að eignunum, eins og það er orðað í tilkynning- unni. Ríflega mánuður er síðan sam- keppnisyfirvöld samþykktu kaup N1 á Festi en rétt eins og í samruna- máli Haga og Olís kröfðust yfirvöld þess að N1 seldi frá sér tilteknar eignir, svo sem fimm bensínstöðvar, þar á meðal þrjár undir merkjum Dælunnar, og verslun Kjarvals á Hellu. Fjárfestar hafa sýnt bensín- stöðvunum mikinn áhuga, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins, en N1 hefur níu mánuði til þess að selja stöðvarnar. Fjárfestar tóku afar vel í tíðindin af samþykki Samkeppniseftirlitsins en til marks um það hækkuðu hlutabréf í Högum um 3,3 prósent í ríflega 420 milljóna viðskiptum í gær. Ráðgjafar verslunarrisans gera ráð fyrir að sam- legðaráhrif af kaupunum á Olís muni nema um 600 milljónum króna á ársgrundvelli eða sem jafngildir um 3 prósentum af samanlögðum rekstrarkostnaði félaganna tveggja. kristinningi@frettabladid.is Skúli Mogen- sen, forstjóri WOW air. Ársæll Hafsteinsson, framkvæmda- stjóri LBI. MARKAÐURINN 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C E -6 C 1 C 2 0 C E -6 A E 0 2 0 C E -6 9 A 4 2 0 C E -6 8 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.