Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 32
Komdu til liðs við okkur! Markmið Heimilis og skóla er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga. Framlag einstaklinga, skóla og foreldrafélaga í formi aðildargjalds gerir okkur kleift að veita enn betri þjónustu. Árgjald: Einstaklingar kr. 4.100 Skólar og foreldrafélög kr. 12.900 Skráning í samtökin: www.heimiliogskoli.is Hvað gera Heimili og skóli – landssamtök foreldra? - Veita ráðgjöf til foreldra og foreldrafélaga um hvaðeina sem tengist skólastarfi og velferð barna. - Eru hagsmunasamtök foreldra og barna á öllum skólastigum og það er okkur mikils virði að heyra sjónarmið foreldra. - Halda úti heimasíðu og Facebook-síðum þar sem finna má ýmiss konar fróðleik og gefa út tímarit. - Stýra SAFT verkefninu um jákvæða og uppbyggilega netnotkun - Bjóða upp á fræðsluerindi/námskeið fyrir kennara, nemendur og foreldrafélög. Félagar í Heimili og skóla fá afslátt af fræðslu og viðburðum. Dæmi um fræðslu: • Bekkjarfulltrúanámskeið • Fræðsla fyrir stjórnir foreldrafélaga og skólaráð • Netöryggi og samfélagsmiðlar Hvað er skemmti- legast að gera í tímum í skól- anum? Það er að leika mér að lita, en stundum gleymi ég mér að gera óskalista, því ég á afmæli á laugar- daginn. Hvað er skemmtilegast að gera í frímínútum? Hanga á fótum í klifurgrindinni. Hvernig eignast maður vini í skólanum? Maður byrjar bara að segja halló. Kannski á hann engan vin og kannski á hann mjög margra vini. Bera Dís Ísdal Njarðvík 6 ára á laugardaginn Hvað er skemmtilegast að gera í tímum í skólanum? Hanga. Hvað er skemmtilegast að gera í frímínútum? Að fara í eltingaleik. Hvernig eignast maður vini í skólanum? Með því að leika við þá. Mist Sigurbjörnsdóttir 6 ára Hvað er skemmti- legast að gera í tímum í skól- anum? Mér finnst gaman að læra stafina og allt það. Hvað er skemmtilegast að gera í frímínútum? Bara allt. Klifurgrindin og fót- boltinn og kastalinn er allt jafn skemmtilegt. Hvernig eignast maður vini í skólanum? Maður þarf bara að spyrja hvort hann nenni að vera vinur manns og síðan bara verður maður vinir. Ólíver Örn Jóhannsson 6 ára 4 HEIMILI OG SKÓLI 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R Salka Sól Eyfeld, tónlistar- og leikkona, og Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, vinna að átaki gegn einelti ásamt Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ. MYND/EYÞÓR Vanda Sigurgeirsdóttir. MYND/GVA Hugmyndin kviknaði í fram-haldi af nýrri handbók um einelti og vináttufærni – forvarnir og viðbrögð, sem Vanda og ég unnum að saman. Við reyndum að nálgast viðfangsefnið frá öðru sjónarhorni, þannig að gripið væri fyrr inn í samskipta- vanda og koma þannig mögulega í veg fyrir einelti,“ útskýrir Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmda- stjóri Heimilis og skóla. „Þegar Salka sagði sögu sína í sjónvarpsþætti og langaði að gera eitthvað meira þótti okkur kjörið að samnýta krafta okkar, kynna handbókina víðar, ásamt því að hjálpa krökkum um land allt að líða betur. Vanda og samstarfsfólk hennar í KVAN hefur gríðarmikla reynslu í að vinna með bekkjum, hópum og einstaklingum við að bæta samskipti og byggja upp sjálfsmynd og er Vanda einn af okkar helstu sérfræðingum og rannsakendum í eineltismálum. Það var mikill hvalreki fyrir okkur að fá þær Sölku til liðs við þetta mikilvæga verkefni sem á vonandi bara eftir að vaxa,“ segir Hrefna. Í verkefninu Krakkar með krökkum býðst skólum að nýta krafta Vöndu og KVAN við að fræða og þjálfa ungmenni í skólum svo þau verði jákvæðir leiðtogar og fær um að fræða aðra í skólanum og vinna með yngri nemendum. Salka Sól mætir í skólana og segir krökkunum frá sinni upplifun af því að hafa lent í einelti og hvernig hún vann sig út úr því. Heimili og skóli og KVAN munu verða með foreldra- fræðslu á sama tímabili þar sem lagt er út frá efni handbókarinnar og jafningjafræðslunni og Salka mun jafnframt ræða við foreldra um sína reynslu og hvað foreldrar þurfa að hafa í huga. Vill gefa krökkum von „Þetta er algjört ástríðuverkefni hjá mér og í raun samfélagsleg skylda út frá þeirri stöðu sem ég er í, sem tónlistar- og leikkona,“ segir Salka Sól. „Ég vil fyrst og fremst sýna krökkum að það er hægt að vinna sig út úr vanlíðaninni sem fylgir einelti, gera það sem mann langar til og láta drauma sína rætast.“ Nauðsynlegt að tala „Ég fer ekki nákvæmlega út í það hvernig eineltið sem ég varð fyrir lýsti sér þegar ég tala við bekkina heldur segi þeim meira frá því hvað ég þurfti að kljást við í kjöl- farið og hvernig ég vann úr því,“ segir Salka. „Ég sótti mér til dæmis hjálp allt of seint og því vil ég segja fólki að byrja strax að vinna úr sínum málum. Fólk upplifir svo mikið vonleysi og vanlíðan vegna eineltis sem getur varað í langan tíma. En, það er hægt að fá aftur trúna á sjálfa sig og líða betur. Ég er dæmi um það og vil gefa krökk- unum vonarglætu,“ segir Salka. Mikilvægt sé að ræða opinskátt um einelti og afleiðingar þess. „Það þarf að fræða bæði börn og foreldra um hvað einelti er og hverjar afleiðingarnar eru. Orðið „einelti“ var varla notað fyrr en seint á níunda áratugnum, fram að því var það bara kallað stríðni. Ég hugsa einnig að fólk átti sig ekki alltaf á því að það er að leggja ein- hvern í einelti. Þess vegna þarf að tala um hlutina og læra að þekkja mörk fólks,“ segir Salka. Hún finni fyrir því að það sem hún hafi að segja skili sér. „Ég fæ pósta frá þolendum ein- eltis, foreldrum barna, kennurum og alls konar fólki sem þakkar mér fyrir að tala um þetta. Það gefur mér mikið.“ Jafningjafræðsla árangursrík Vanda segir það styrkja verkefnið mikið að jafn þekktur einstakl- ingur og Salka deili reynslu sinni. Fyrirmyndir skipti máli. Það sé þó ekki nóg eitt og sér. „En þessi blanda er góð, við tvinnum reynslu Sölku og fræðin saman,“ segir Vanda. „Rannsóknir hafa sýnt að fyrirlestrar um einelti skila sér ekki sem skyldi einir og sér. Krakkarnir segja sjálfir að það sé ekki leiðin og ég vil meina að fyrirlestrarformið nái illa eyrum akkúrat þeirra sem helst þyrftu að hlusta. Þekking er mikilvæg en ein og sér er hún ekki nóg, þá myndi til dæmis enginn reykja eða nota símann í bílnum. Þetta snýst meira um viðhorf og ákvarðanir sem maður tekur. Eineltismál eru flókin, þau tengjast völdum og vinsældum og menningu og þetta eru hlutir sem vinna þarf með til þess að breyta þeim. Með því að þjálfa eldri krakkana búum við til jákvæða leiðtoga innan skólanna sem verða fyrirmyndir.“ Verkefnið er m.a. styrkt af For- varnarsjóði Reykjavíkur, Isavia og Byko. Fleiri styrkja er leitað svo verkefnið megi fara sem víðast. Krakkar fræða krakka um einelti Krakkar með krökkum er yfirskrift átaks gegn einelti sem Heimili og skóli ýta úr vör nú í upphafi skólaárs. Verkefnið er unnið í samvinnu við söng- og leikkonuna Sölku Sól og Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektor í tómstunda- og félags- málafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hvað segja börnin? Börn í Ísaksskóla sitja fyrir svörum. 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C E -3 5 C C 2 0 C E -3 4 9 0 2 0 C E -3 3 5 4 2 0 C E -3 2 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.