Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 16
108
VERSLUNARTlÐINDI
Bernh. Petersen
Reykjavík.
Simar: 598 og 900. Símnefni: Bernhardo.
Kaupir allar tegundir af lýsi hæsta
verði. Móttekið á hvaða höfn sem
er. — — G-reitt við útskipun.
♦
$
♦
♦
♦
♦
♦
♦
verða lokið, og hafa þær gefið heldur minna
af sjer en í fyrra. Humaraflinn heflr
verið líkur og síðastl. ár. Hefir verið
flutt út af honum 549.600 kg., en 520.400
kg. í fyrra. Kópsíldveiðar hafa gengið
vel í júlímánuði.
Tíðin verið góð í júlí og uppskeruhorfur
því sæmilegar.
Reikningur Noregsbanka, dags. 31/8 sýnir
að seðlaumferðin hefur lækkað niður i
402,2 milj. kr. úr 404,8 milj. kr. næsta
mánuð á undan.
Vöruverð hefur heldur lækkað. Vísitala
ökonomisk Revy's fyrir ágúst er 231, en
235 mánuðinn á undan. Málmverð og
pappírsverð hefur staðið i stað, matvörur
úr dýraríkinu hafa hækkað en aðrar vör-
ur lækkað.
Tala atvinnulausra hefur hækkað; taldir
9,500 í ágústlok, en 8,100 í júlílok. Þessi
tala er þó nálægt 50% lægri en um sama
leyti í fyrra.
Meira fjör hefur færst bæði i peninga og
verðbrjefamarkaðinn, en á hlutabrjefa-
markaðinum má heita kyrstaða, en þó
nokkur viðskifti með iðnaðarhlutabrjef.
Farmgjaldamarkaður er áframhaldandi
daufur. Framan af mánuðinum var nokk-
ur eftirspurn eftir námutimbri, en verðið
fór lækkandi þegar leið á mánuðinn. Af
hefluðum við hefur litið selst. Trjáviðar-
útflutningur Noregs fyrstu 6 mánuði árs-
ins hefur numið 45,5 milj. kr., en 39,3
milj. kr. á sama tíma í fyrra.
Litlar breytingar hafa verið bæði á trjá-
mauks og trjákvoðumarkaðinum. í jan.
— júní 1923 nam trjákvoðu og trjámauks-
útflutningurinn 81,1 milj. kr., en 67,3 milj.
kr. á sama tíma í fyrra. Eftirspurn eftir
fínni pappírstegundum hefur aukist, en
litlar verðbreytingar hafa verið á pappírn-
um. Pappírsútflutningurinn í jan. — júní
nam 55,2 milj. kr., en 53,0 milj. kr. á
sama tima í fyrra.
Fitusildveiðarnar hafa ekki verið arð-
samar það sem af er. Frá 1. júlí til síð-
asta ágúst var aflinn samtals 167,000 hl.,
en 260,000 á sama tíma í fyrra. Laxveið-
ar hafa gengið fremur vel í ágúst og
humaraflinn sömuleiðis verið sæmilegur.
Útflutningurinn hefur numið samtals í
júlímánuði ca. 50 milj. kr., en 52,9 milj.
kr. á sama tíma í fyrra. A tímabilinu
jan. — júní nam vöruútflutningurinn 439,9
milj. kr., en 404,3 milj. kr. í fyrra.
Tolltekjurnar numu í ágúst 5,4 milj. kr.,
en 4,5 milj. kr. í fyrra.
Heyaflinn lítur út fyrir að muni verða
í meðallagi, en verkunin er ekki góð nema
aðeins í norðurhluta landsins. Kornið
þroskast seint í ár og útlit ekki sem best
með uppskeruna. Sama er að segja um
kartöflurnar, en þær hafa góðan tíma til
að þroskast ennþá, ef tíðin verður bagstæð.
Síldarafli.
9. september 1923 var aflinn.
Saltaö Kryddað
tunnur tunnur
A Akureyrl..................... 32.733 9.454
Á Siglufirði.................. 148.966 25.735
Á ísafirði .... 4.738________218
Áfli alls 186.437 35.407