Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 21

Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 21
VERSLUNARTÍÐINDI 113 Útdráttur úr fiskiskýrslum. Barcelona % Síðustu viku komu 889.000 kg. af ís- lenskum og færeyiskum fiski og 11000 kg. af enskum fiski. Til Taragona kom á sama tíma 106.000 kg. af íslenskum fiski. Gporto 18/g Síðustu viku kom 502.056 kv. af norsk- um fiski og 185 054 af Nyfoundlenskum. Oporto 28/8 Vikuna sem lauk 25. ágúst var saltfisks- salan þessi: 3 358 kv. danskur (íslenskur) fiskur, 233.040 kv. norskur og 141.935 kv. Nyfoundlenskur. Buenos Aires 7/8 Eftir því sem sendiherrann skýrir frá er útlitið ekki gott með saltfisksmarkaðinn, vegna þess hvað kjötverðið er lágt, og fiskneyslan hjerumbil 50% minni en hún var fyrir nokkrum árum. Norskur saltflskur seldist í ágústbyrjun fyrir $ 36—37 % pr. kassa -r- 5%. og var talið að flest allir seljendur hefðu tapað á sölunni fyrir það verð. Birgðirn- ar eru taldar litlar. Sama er að segja um skoskan saltfisk, að lítið selst af honum nú sem stendur. Oporto u/9 Fyrstu vikuna í september varfisksalan þessi: 6.776 kv. danskur (íslenskur) salt- fiskur, 24.020 norskur og 469.080 Nyfound- lenskur. Barcelona. Fyrrihluta september kom þangað: 246.000 kg. af ísl. fiski með e.s. »Home- ford«. Á sama tíma kom enginn fiskur til Tarragona. Rafmagnsvörur Veggfóður Málningarvörur Heildsala Smásala H.f Rafmf. HITI & LJÓS Simnefni Hiti - Reykjavík - Sími 830 Fiskveiöar á Spáni. í spanska blaðinu »Informaciones« stóð eftirfarandi grein í sumar: »Nú er verið að gera ráð fyrir að koma á fót innlendum fiskveiöafjelögum, sem aö minsta kosti ættu að geta bætt eitthvað úr skortinum í sjávarþorpum vorum. Fá blöð hafa samt ennþá tekið þetta þýðíng- armikla mál til yfirvegunar, nje lagt neitt til mála hvernig styðja mætti fiskveiðarn- ar, sem svo lengi hafa legið í gleymsku í landi voru. Fiskverkun getur hæglega farið fram hjer í landi til mikilla hagsmuna fyrir atvinnuvegi vora. I allri Castilíu eru góð skilyrði tll þess að þurka fiskinn, sem skip vor fiyttu saltaðan í land. Fiskveiðarnar ætti að stunda á seglskipum með litlum farrarýmum. Talið er að 200 tonna skip geti fiskað 90000 kg. af nýjum fiski, og mundi það vera um 60000 kg. af verkaðri markaðsvöru. Þegar þess er gætt hve ódýr þessi skip eru, væri ekki erfitt að hefjast handa, ef ríkið vildi hlaupa eitthvað undir bagga, eins og annarstaðar er venja. Spánskir sjómenn gætu farið upp undir Island og Terranova í marzlok og komið aftur í október með afla, sem nægði þeim og fjölskyldu þeirra, það sem eftir væri ársins«.

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.