Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 20

Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 20
112 VERSLUNARTlÐINDI oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo o o § Erlenöa mynt f o o o 10, 25 50, 100, og 200 aura-peninga o g úr nikkel eða silfri g O O § kaupir hæsta verði 2 O 1 O O o o o g Guðmundur Guðnason g gullsmiður Va'larstræti 4 NB, Peningar keyptir gegn póstkröfu OOOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO svo væri ekki, hverjar frekari kröfur kynnu að vera gerðar. Svarið, sera komið hefur frá sendiherr- anum í Washington, eftir að hafa snúið sér til utanríkisráðuneytisins þar, ber það með sjer að íslenskt saltkjöt fáist ekki innflutt til Bandaríkjanna, af því að stjórn- in þar telji ákvæðin um meðferð á kjöt- inu ekki jafngilda heilbrigðisreglum Banda- ríkjanna En slíkt jafngildi þarf til að flytja megi inn kjöt frá öðrum löndum. Er sjerstaklega bent á að vorar reglur um heilbrigðisákvæði, eftirlit og meðferð á undan og eftir slátrun, á sýktum kropp- um o. s. frv. fullnægi ekki kröfum þeim, sem þar eru ákveðnar. íslenski sendiherrann Khöfn hefir nú ritað Stjórnarráðinu og vakið athygli á þvi, að ekki muni bera svo mikið á milli, að ekki muni hægt að samræma ákvæðin um meðferð kjötsins. Bendir hann sjer- staklega á, að þar sem áður var krafist vottorðs frá manni í útflutningslandinu, sem Bandaríkjastjórn hefði sjerstaklega lög- gilt í þvi skyni, þá er þessa ekki kraf- ist lengur, heldur hins að reglur útflutn- ingslandsins um skoðun á kjötinu og með- ferð þess jafngildi tilsvarandi reglum í Bandarikjum að dómi Bandaríkjastjórnar. Hjer á eftir fer lítill úrdráttur úr þessum Amerisku ákvæðum um hreinlæti og skoð- un fyrir og eftir slátrun, svo að hægt sje að bera saman við sláturreglugerðir hjer. »Sláturhúsum skal haldið í hreinlegu á- standi. Hafa skal nægilegt ljós og nægi- lega loftrás, fulikomna framræslu og pipu- kerfi. Allar rennur og ræsi skulu vera rjettilega útbúin. Hafa skal nóg hreint vatn til þess að veita um svæðið. Innviðir allir skulu þannig gerðir, að fljótt og vel sje hægt að hreinsa þá, gólfin skulu vera vatnsþétt og aðskilin herbergi, þar sem farið er með ætt og óætt. Sjerhver hugs- anleg varúð skal viðhöfð til þess að verja frá músum og rottum og öðru því er vald- ið getur óþrifum og skemdum. Bönnuð er öll meðferð eiturs, þar sem farið er með ópakkað kjöt, nema eftir reglum þeim, sem »The chief of bureau« kann að fyrir- skipa. Hundum skal bannaður aðgangur að byggingunum. Útbúnaður og verkfæri, sem notuð eru við slátrunina, skulu vera þannig, að auðvelt sje að hreinsa þau. Eklcert slátrunarhús má ráða til sín tœr- ingarveikan mann, eða með annan smitandi sjúkdóm. Áður leyft sje að slátra skal nákvæm skoðun fara fram á fjenaðinum. Allur grunsamur fjenaður skal stimplaður »grun- samur« eða því um líkt, skulu sjerstakar varúðarráðstafanir—hafðar við liann og honum slátrað sjer. Nákvæm skoðun og rannsókn skal fara fram á skrokkum eftir slátrunina og skal hún gjörð um leið og slátrað er. Hverj- um skrokk, sem einhver kvilli finst í skal haldið eftir, merktur og staflað sjer. Sje kvillinn á einum sjerstökum stað, skal hann skorinn burtu áður en skrokkurinn er hreinsaður og skal þess getið með merki, sem fest er á hann. Heilbrigðir skrokkar skulu hafa sjer merki«.

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.