Verslunartíðindi - 01.09.1923, Side 17
VEKSLUNAKTÍÐINDI
109
Póstmál.
Póststjórnin hefur nýlega leyft að senda
megi póstinnheimtur innanlands, milli
sömu staða og þeirra er taka þátt í póst-
ávísanaviðskiftum, og ennfremur innan
umdæmis kaupstaðanna.
Póstinnheimtur má nota við kvittanir,
reikninga ávísanir, víxla og aðrar skulda-
kröfur, sem greiðast án kostnaðar.
í sömu sendingu má leggja skuldakröf-
ur á 5 skuldunauta, sem búa í umdæmi
sama pósthúss, ef skuldkrafi er einn.
Skuldakröfur í einni sendingu verða að
hafa sama gjalddaga og mega samtals
ekki fara fram úr 1000 krónum, eða að-
alupphæð krafanna, sem búið er um í
einni sendingu má ekki fara fram úr
þeirri upphæð.
Skuldarköfurnar innfærir sendandi á
sjerstakt eyðublað, sem fæst á pósthúsun-
um og sendir þær í ábyrgðarbrjefi til póst-
hússins sem á að innheimta þær.
Póststjórnin tekur] 25 aura fyrir hverja
innheimta skuldakröfu og 15 aura fyrir
hverja óinnheimta og ennfremur venjulegt
póstávísanagjald fyrir aðalupphæð inn-
heimtra skuldakrafa.
Viðvíkjandi tíma þeim er póstinnheimt-
ur mega liggja á ákvörðunarpósthúsinu
gilda sömu reglur og um póstkröfur.
Til kaupstaðanna Akureyrar, Hafnar-
fjarðar, ísafjarðar, Reykjavíkur, Seyðis-
fjarðar, Siglufjarðar, og Vestmannaeyjar
má nú senda póstávísanir allt að 5000
krónur hverja.
Innan umdæmís sömu kaupstaða má nú
einnig senda póstávísanir, en það hefur
ekki verið hægt hingað til.
^ xtx, xfx .xfx, .x+x, xfx, xtx, xfx xfx, xfx, xfx, xfv xfx xfX xf>. %
4 - ■ - .....
| Málaflutningsskrifstofa |
Saltfiskssala í Ðrasilíu.
Stjórnarráðið hefur sent Verslunarráðinu
brjef frá danska sendiherranum í Rio de
Janeiro um horfur á saltfiskmarkaði þar,
og fara aðaldrættir úr því hjer á eftir:
Af opinberum skýrslum má sjá að árið
1922 hefir fiskinnflutningur verið 16.321
tonn og er það 31.673.833 milreis virði eða
964.500 £. Þessi innflutningur er ekki nema
y3 af því, sem var fyrir stríðið, og skiftist
hann þannig niður: Frá Bretlandi kom
2.304 tonn, frá Canada og New Found-
landi 10.815 tonn, frá Bandaríkjunum 144
tonn og frá Noregi 2.790 tonn.
Innfiutningsskýrslur fyrir það, sem af er
árinu 1923 eru ekki komnar ennþá, en
búist er við að innflutningurinn verði lítið
meiri en hann var árið á undan. Að fisk-
innfiutningurinn er orðin svo mikið minni
en hann var fyrir stríðið, stafar af því að
fiskurinn er of dýr, borið saman við aðrar
matvörur, sem hafa hækkað minna í Bra-
silíu en víða annarstaðar. Til þess að salt-
fiskurinn geti kept þar við aðrar matvörur
má hann ekki vera dýrari en 1.38 milreis
pr. kg., en er seldur nú á 1.80 milreis.
Gengismismunurinn á einnig sinn þátt í
því hvað fiskurinn er dýr, og mundi lag-
ast með markaðinn, ef Brasiliskir pen-
ingar hækkuðu í verði.
Talið er að nokkur hluti af þeim fiski,