Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 2
Veður
Hæg norðlæg átt og víða bjartviðri
í dag, en él eða skúrir fyrir austan.
Frystir víða um kvöldið. sjá síðu 54
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Opið
Laugardag 11-16
Sunnudag 12-16
Sjá nánar
á www.g
rillbudin.
is
Aðeins
laugarda
g
og sunnu
dag
Lagerhreinsun
á ölda var
a fyrir vetu
rinn
TAKMARK
AÐ MAGN
!
Nánari upplýsingar á
www. grillbudin.is
Sendum frítt
með Flytjanda
Grillbúðin
Grill - Húsgögn
Eldstæði - Útiljós
Geislahitarar
Æfing við Reykjanesbraut
Þessi Volkswagen Golf var alelda við Reykjanesbraut í gær þegar ljósmyndara Frétta-
blaðsins bar að garði. Ekkert slys hafði þó orðið heldur var þar haldin hópslysaæfing
undir handleiðslu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
sAMGÖNGuR Stjórn Spalar hf. bíður
enn eftir áliti Ríkisskattstjóra (RSK)
um áhrif afskriftar ganganna og
hugsanlegrar skattlagningar félags-
ins á árinu 2018. Fyrirhugað er að
hætta innheimtu veggjalda gegn-
um Hvalfjarðargöng næstkomandi
föstudag og afhenda ríkinu göngin
til eignar sunnudaginn 30. septem-
ber. Það gæti þó dregist ef álit RSK
skilar sér ekki fyrir þann tíma.
Í upphafi var miðað við að ríkið
tæki yfir félögin sem eiga og reka
göngin. Í maí tilkynnti samgöngu-
ráðuneytið stjórninni að sú leið yrði
ekki farin. Því er stefnt að því nú að
afhenda ríkinu göngin að gjöf og
slíta félaginu. Af þeim sökum leitaði
Spölur til RSK um miðjan júní til að
fá úr því skorið hvaða áhrif slíkur
gjörningur hefði við álagningu
skatta á félagið. Svar RSK hefur ekki
skilað sér.
„Satt best að segja höfðum við
væntingar um að þetta myndi skila
sér í síðustu viku en það varð ekki af
því. Við bíðum í raun með hendur á
húninum því til að það sé mögulegt
að afhenda göngin í mánaðarlok þá
þarf þetta bréf að liggja fyrir,“ segir
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar.
Undanfarna daga hefur Spölur
auglýst að gjaldtöku ljúki 28. sept-
ember og að í kjölfarið geti fólk
skilað áskriftarlyklum og afsláttar-
miðum. Sá fyrirvari er gerður í aug-
lýsingunni að álit RSK liggi fyrir sem
og úttekt Samgöngustofu.
„Við erum að vonast eftir því að
svarið liggi fyrir strax eftir helgi.
Það verður fundur í ráðuneytinu á
mánudag þar sem farið verður yfir
stöðuna,“ segir Gísli.
Aðspurður um hvað skuli taka til
bragðs ef svarið berst seint eða inni-
hald þess verði neikvætt segir Gísli
að fundið verði út úr því þegar þar
að kemur. Spölur sé á þeirri braut
að göngin verði afskrifuð að fullu á
árinu og þau verði afhent ríkinu til
eignar án endurgjalds.
„Það er hin eðlilega leið en við
viljum fá það staðfest frá RSK þann-
ig að það verði enginn óvæntur
snúningur. Satt best að segja erum
við orðnir langeygir eftir svari. Því
seinna sem það berst, þeim mun
verra er það fyrir okkur og skapar
okkur minna svigrúm,“ segir Gísli.
„Ef svarið gefur ekki tilefni til
neinna tilþrifa þá heldur planið og
göngin verða afhent 30. september.“
joli@frettabladid.is
Beðið eftir grænu ljósi
frá ríkisskattstjóra
Stefnt er að því að afhenda ríkinu Hvalfjarðargöng til eignar 30. september.
Beðið er eftir áliti Ríkisskattstjóra til að það sé mögulegt. Forsvarsmenn Spalar
eru orðnir leiðir á bið eftir svari. Berist svarið seint gæti afhending dregist.
gjaldtöku verður að óbreyttu hætt hinn 28. september. Fréttablaðið/PJEtur
Satt best að segja
höfðum við vænt-
ingar um að þetta myndi
skila sér í síðustu viku en
það varð ekki af því.
Gísli Gíslason,
stjórnarformaður
Spalar
sAMfélAG Helga Jónsdóttir, sem
tekur við starfi forstjóra Orkuveitu
Reykjavíkur eftir helgina, mun
hitta Áslaugu Thelmu Einarsdótt-
ur í vikunni. Áslaug Thelma var
á dögunum rekin frá Orku nátt-
úrunnar, dótturfélagi Orkuveitu
Reykjavíkur, eftir að hafa kvartað
undan kynferðislegri áreitni og
greindi frá því á Facebook á mánu-
daginn að hún ætlaði í mál vegna
uppsagnarinnar.
Mbl.is greindi frá væntanlegum
fundi í gær og hafði eftir Áslaugu
Thelmu að henni hefði ekki borist
fundarboð frá Orkuveitunni. Hún
væri þó ánægð með að Helga vildi
hitta hana og ræða málin og hygð-
ist þiggja boðið þegar það bærist.
Kvörtun Áslaugar Thelmu
beindist að hegðun Bjarna Más
Júlíussonar sem þá var fram-
kvæmdastjóri Orku náttúrunnar.
Hann var síðan rekinn á dögunum
og Þórður Ásmundarson, sem átti
að taka við starfi hans tímabundið,
sendur í leyfi vegna ásakana um
kynferðisbrot.
Bjarni Bjarnason steig svo tíma-
bundið til hliðar sem forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur á mánudaginn á
meðan mál sem tengjast uppsögn
Bjarna Más eru tekin til skoðunar
og „úttekt gerð á vinnustaðarmenn-
ingu fyrirtækisins“. – þea
Mun hitta
Áslaugu
Thelmu
Helga Jónsdóttir tekur við starfi for-
stjóra Orkuveitunnar eftir helgina.
Fleiri myndir frá hópslysaæfingunni er að finna
á Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í
Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PlúS
DANMÖRK Stjórnmálamenn og
embættismenn í sveitarfélaginu
Hørsholm í Danmörku eiga helst
ekki að faðmast. Borgarstjórinn,
Morten Slotved, segir sveitarfélagið
vera vinnustað og að vinátta milli
stjórnmálamanna og embættis-
manna megi ekki vera of mikil.
Hann kveðst heldur ekki vita til
þess að á öðrum vinnustöðum sé
fólk alltaf að faðmast.
Það er skoðun borgarstjórans
að setja þurfi skýrar viðmiðunar-
reglur vegna munar
á störfum viðkom-
andi. Faðmlög geti
sent röng skilaboð
til almennra
borgara.
Ekki sé
u m b a n n
að ræða, heldur
óskrifaðar reglur
frá 2014. – ibs
Faðmi helst ekki
embættismenn
2 2 . s e p t e M b e R 2 0 1 8 l A u G A R D A G u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t A b l A ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-7
1
8
0
2
0
E
4
-7
0
4
4
2
0
E
4
-6
F
0
8
2
0
E
4
-6
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K