Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 32

Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 32
Smáa letrið er ný ljóðabók eftir Lindu Vilhjálmsdótt-ur sem líkleg er til að vekja allnokkra athygli, en þar beinir hún sjónum að lífi og hlutskipti kvenna og fjallar um eigin tilfinningar, eins og vanmáttarkennd, á afar opinskáan hátt. „Ég byrjaði á þessari bók eiginlega algjörlega óvart. Ég var í allt öðrum Nú er komin sátt Í nýrri ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur er fjallað um það hvernig konur fara að því að lifa af. Í viðtali ræðir Linda meðal annars um kynferðislega áreitni sem hún varð fyrir í starfi sem sjúkraliði. Hún segir einnig frá baráttu sinni við sjálfsniðurrif. verkefnum sem voru samt tengd konum og kvenlegri reynslu,“ segir Linda. „Ég var annars vegar að skrifa drög að kvikmyndahandriti með frænku minni, Veru Sölvadóttur, og hins vegar var ég að skrifa smásögur. Svo las ég yfir ljóðahandrit fyrir Margréti Lóu Jónsdóttur, Biðröðin fram undan, sem kom út haustið 2017 og var um allar þessar biðraðir sem fólk fer í þegar verslanir eins og Dunkin’ Donuts og Costco eru opnaðar. Mér fundust ljóðin mjög skemmtileg, það var svo mikið líf í þeim og ég hugsaði: Mikið langar mig að skrifa ljóðabók þar sem ég segi bara það sem mig langar til að segja. Ég byrjaði strax því mér fannst mér liggja svo mikið á hjarta. Ég hafði ort tvö ljóð þegar ég skrifaði Forlaginu og sagði: Ég verð örugg- lega með ljóðabók í haust, hún á að vera bleik með hjarta. Vinnutitillinn var Konan í feðraveldinu, en það leist öllum mjög illa á hann.“ Niðurstaðan var titillinn Smáa letrið og á kápunni er rauðbleikt hjarta. Umfjöllunarefnið er konan í feðraveldinu. „Ljóðabókin fjallar um það hvernig við konur förum að því að lifa af og það að við erum smám saman að komast á þann stað að láta ekki bjóða okkur það lengur að þurfa að hafa svona mikið fyrir lífinu,“ segir Linda. Verkefni um konur Linda segir að umfjöllunarefnið sé henni mikið hjartans mál. „Ég var búin að vera í þessum pælingum og stellingum í nokkurn tíma. Daginn sem Donald Trump var settur í emb- ætti Bandaríkjaforseta tendraðist ég upp og fór svo að horfa á beinar útsendingar frá kvennamarsinum mikla. Ég hlustaði þar á konur sem ég hafði ekkert sérstaklega verið að fylgjast með, eins og Gloriu Stein- em. Mér fannst þessar konur mjög flottar og fór að kynna mér betur hvað þær höfðu haft til málanna að leggja í rúmlega hálfa öld. Frá þeim tíma hafa öll mín verkefni fjallað um konur, líf okkar, hvað við höfum þurft að leggja á okkur og hvert við erum komnar. Í fyrravetur gerði ég fjóra útvarps- þætti, Píkuskræki, með Veru frænku minni, sem fluttir voru á RÚV. Þar voru viðtöl við átta konur á öllum aldri og úr öllum stéttum þar sem þær voru að rekja hvernig þær hefðu sætt sig við hlutskipti sitt og ekki verið meðvitaðar um mis- réttið sem þær urðu fyrir. Í sumum tilfellum var ekki einungis um mis- rétti að ræða heldur einnig ofbeldi. Konurnar höfðu hins vegar verið að vakna til vitundar um þetta síðustu ár og sérstaklega í kjölfar Metoo- byltingarinnar.“ Áreitni valdamikilla karla Linda segist hafa séð hluti í nýju ljósi þegar hún las ítarlega umfjöllun um kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein og ásakanir á hendur honum um nauðganir og grófa kyn- ferðislega áreitni. „Þá gerði ég mér grein fyrir því að ég hafði sjálf marg- oft orðið fyrir alls konar kynferðis- legri áreitni. Það sem varð til þess að opna augu mín voru frásagnir þeirra kvenna sem sluppu með skrekkinn, þeirra sem höfðu flúið af vettvangi og ekki látið bjóða sér þetta. Það að einstaklingur skuli stöðugt þurfa að upplifa hluti eins og þessa flokkast sem mjög mikið áreiti.“ Linda er lærður sjúkraliði. „Ég byrjaði átján ára gömul að vinna Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Tökum TiL dæmis skrif- in, þar hef ég aLdrei passað inn í neina ramma. það hefur kosTað óskapLega Tog- sTreiTu í mínum eigin huga. fréttablaðið/eyþór 2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 2 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 1 2 8 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E 4 -7 6 7 0 2 0 E 4 -7 5 3 4 2 0 E 4 -7 3 F 8 2 0 E 4 -7 2 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 8 s _ 2 1 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.