Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 89
Okkar megináhersla er á að styrkja og efla fólk sem kýs að búa heima hjá sér, því það
er ekki aðeins stefna stjórnvalda að
fólk eigi að búa lengur heima heldur
er það vilji mjög margra að vera sem
lengst heima hjá sér,“ segir Inga Lára
Karlsdóttir, hjúkrunarstjóri Sóltúns
Heima.
„Við hjá Sóltúni Heima bjóðum
upp á heimaþjónustu fyrir eldri
borgara og erum með því að mæta
ákveðinni eftirspurn. Öldruðum
fjölgar hlutfallslega hraðar en
öðrum aldurshópum og opinberir
aðilar hafa ekki náð að anna þeirri
eftirspurn sem hefur myndast eftir
þjónustu.“
Inga Lára segir að ýmist leiti eldri
borgarar til þeirra sjálfir en einnig
hafi aðstandendur samband. „Víða
hafa myndast biðlistar eftir þjón-
ustu hjá sveitarfélögunum og fólk
kemst ekki að eða sú þjónusta sem
er í boði hjá hinu opinbera dugar
ekki til. Þá leitar fólk til okkar.“
Sérsniðnar lausnir
Þarfir fólks eru mismunandi. Sumir
þurfa aðstoð við hvunndagslegar
athafnir, aðrir þurfa að fá þrif og enn
aðrir hjúkrunaraðstoð. „Við veitum
fólki sem leitar til okkar ráðgjöf og
finnum út hvaða leiðir eru færar til
að létta því lífið. Það fer eftir vilja
og þörfum hvers og eins hversu oft
við komum og á hvaða tímum. Þá
reynum við ávallt að vera sveigjan-
leg. Stundum bætum við í þjónust-
una og þéttum heimsóknir til dæmis
á meðan aðstandendur fara í burtu
í frí,“ segir Inga Lára. Þjónusta Sól-
túns Heima er afar fjölbreytt og þar
starfar breiður hópur starfsmanna,
ófaglært fólk, félagsliðar, hjúkrunar-
fræðingar og íþróttafræðingar.
Sóltún Heimahreyfing
Inga Lára segir ekki aðeins nauðsyn-
legt að sinna þörfum fólks heldur
sé afar mikilvægt að styrkja það
og efla líkamlega. „Við skoðuðum
hvernig þessum hlutum er háttað í
nágrannalöndunum og kynntumst
þá æfingakerfinu DigiRehab sem
var þróað af dönskum sjúkra-
þjálfum og er mikið notað í heima-
þjónustu í Danmörku.“ Inga Lára
segir árangurinn af DigiRehab hafa
verið mjög góðan. Reynslan í Dan-
mörku sýni að draga megi úr heima-
þjónustu um allt að klukkustund á
viku eftir tólf vikna heimahreyfingu.
Auk þess stuðlar heimahreyfingin
að bættum lífsgæðum og þörfinni á
frekari þjónustu seinkar.
„Við köllum íslensku útgáfuna
Sóltún Heimahreyfing og okkar
hugmynd er að grípa inn í og styrkja
fólk til að það geti verið sjálfbjarga
lengur. Heimahreyfingin fléttast
vel inn í heimaþjónustuna sem
við bjóðum upp á. Sami starfs-
maðurinn getur hjálpað fólki með
matinn, aðstoðað fólk út í búð og
hjálpað viðkomandi við að gera
æfingarnar.“
Sóltún Heimahreyfing er sér-
sniðin að hverjum og einum.
„Æfingakerfið reiknar út hvaða
æfingar henta best. Æfingarnar eru
gerðar til að styrkja skjólstæðing-
ana til þess að þeir geti notið lífsins
betur og sinnt daglegum athöfnum
með minni aðstoð annarra,“ segir
Inga Lára og telur árangurinn mjög
góðan.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.soltunheima.is, í síma 563
1400 eða gegnum netfangið soltun-
heima@soltunheima.is.
Sóltún Heima – sérsniðin
þjónusta fyrir eldra fólk
Sóltún Heima býður upp á heimaþjónustu fyrir eldri borgara og gerir þeim kleift að búa lengur
heima. Einnig er boðið upp á heimahreyfingu sem styrkir fólk og gerir það meira sjálfbjarga.
Inga Lára Karlsdóttir, hjúkrunarstjóri Sóltúns Heima, sem er hér til hægri á myndinni, stýrir heimaþjónustunni en Steinunn Leifsdóttir íþróttafræðingur sér um að stjórna Sóltúni Heimahreyfingu. Mynd/Eyþór
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
SKÝR
hugsun
Clear Brain töflurnar eru ríkar af næringarefnum fyrir
heilann og hafa góð áhrif á andlega getu og vitræna
starfsemi eins og minni, eftirtekt og einbeitingu.
Inniheldur:
L-theanín • Valhnetuþykkni • Granatepli • Furubörkur • Pipar • B-vítamín
KynnInGArBLAÐ 5 L AU G A r dAG U r 2 2 . S E p t E m b E r 2 0 1 8 EfrI árIn
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-F
B
C
0
2
0
E
4
-F
A
8
4
2
0
E
4
-F
9
4
8
2
0
E
4
-F
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K