Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 100
Ég fékk þá hugmynd einhvern tíma á síðasta ári að nýta flughafnir landsins, þessar stóru byggingar, sem menn-ingarhús. Henni var vel tekið af forsvarsmönnum Isavia,
sem sér um rekstur húsanna,“ segir Þor-
lákur Morthens, betur þekktur sem Tolli.
Hann hefur nú gert þessa hugmynd að
veruleika með því að opna myndlistar-
sýningu í flugstöðinni á Egilsstöðum í
gær. Þar setti hann upp tuttugu og þrjú
olíumálverk sem öll eru ný af nálinni.
Tolli heldur áfram að rökstyðja sína
hugmynd og lýsa framtíðarskipulagi
sýningarhaldsins sem Isavia muni sjá um.
„Flugstöðvarnar eiga það allar sam-
eiginlegt að í þeim er mikil birta og alls
staðar eru stórir veggir. Rýmið er til stað-
ar og fólkið er til staðar, oft er það fólk
sem er að bíða og hefur því góðan tíma
til að líta í kringum sig. Hugmyndin sem
ég lagði af stað með er sú að ég mundi
bara byrja, svona prufukeyra, og síðan
yrði lögð áhersla á að ungt listafólk hefði
þarna sýningaraðstöðu.“
Ertu þá að tala um ungt fólk í héraði
eða bara á alþjóðavísu?
„Það er menningarstefna sem fyrir-
tækið setur. Ég sé fyrir mér að það mætti
blanda því, það væri akkur að því fyrir
landsbyggðina að fá fólk úr 101 með
sína list á svæðið. Vel má vera að Isavia
verði með einhvern ráðgjafa sem sér
um samskiptin við grasrótina og skipu-
leggur sýningarnar. Þessi rými má nýta
undir tónlist, bókmenntir, listgjörninga
af ýmsu tagi. Þannig er nýtingin dálítið
samfélagslegt dæmi,“ segir Tolli og upp-
lýsir að fjöltefli verði í flugstöðinni á
Egilsstöðum í dag í boði Hjörvars Steins
Grétarssonar skákmeistara. Taflmótið
undirstriki þann fjölbreytileika sem þar
rúmist. gun@frettabladid.is
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Guðmundur Baldvinsson,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Setur upp menningarhús
á flugvöllum landsins
Myndlistarmaðurinn Tolli sér veggi íslenskra flugstöðva sem ákjósanlega sýningarsali.
Hann hefur hengt upp 23 ný olíumálverk á Egilsstaðaflugvelli með leyfi Isavia. Tolli ríður
á vaðið en hugmyndin er að ungir listamenn fái svo tækifæri til að sýna á flugvöllunum.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hannes Bjarni Kolbeins
ökukennari,
lést í Svíþjóð sunnudaginn
16. september.
Útförin fer fram frá Bredåkra kyrka í Svíþjóð
miðvikudaginn 3. október klukkan 13.
Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar.
Guðrún Hildur Kolbeins Atli Már Guðjónsson
Jóhanna Rósa Kolbeins
Kristine B. Kolbeins
Arnhildur Ásdís Kolbeins Þórarinn K. Ólafsson
Þorkell Kolbeins Eyrún Steindórsdóttir
Kolbrún P. Hannesdóttir Eyjólfur Þór Jónsson
Hera Guðrún Cosmano
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Bergþóra Ásgeirsdóttir
Boðaþingi 5, Kópavogi,
lést á Hrafnistu, Boðaþingi,
3. september. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Börn og fjölskyldur.
Tolli á vinnustofu sinni rétt áður en hann fór í loftið og flaug til Egilsstaða. FréTTablaðið/Eyþór
Tolli við hlið Jörundar Hilmars ragnarssonar, flugvallarstjóra á Egilsstöðum.
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
Páll Auðar Þorláksson
bóndi, Sandhól, Ölfusi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Selfossi, 10. september. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Rósa Þorláksdóttir, Sveinn Þorláksson
og frændsystkini.
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r44 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
4
-8
F
2
0
2
0
E
4
-8
D
E
4
2
0
E
4
-8
C
A
8
2
0
E
4
-8
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K