Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 114
Þegar mér bauðst að sýna hér, fyrir rúmum níu mánuðum, var ég að byrja að prenta bókverk sem heitir Annað rými.
Ég ákvað að það yrði eins konar
neisti fyrir hin verkin. Sýningin
drægi svo nafn af því, nánast öll
verkin eru unnin fyrir hana,“ segir
Eygló Harðardóttir myndlistarkona
áður en leiðsögn hennar hefst um
sal Nýlistasafnsins í Marshall-
húsinu. Hún kveðst hafa byrjað á
að skoða rýmið og skilgreina, og í
framhaldinu tekið ákvörðun um
að hafa verkin létt og láta birtuna
spila með. Pappír er aðaluppistaða
verkanna en líka tré og gler. „Þetta
er sambland af efni sem ég kaupi
Það er efnið sem leiðir mig áfram
Pappír er byggingarefni flestra þeirra verka sem Eygló Harðardóttir myndlistarkona sýnir í Nýló á Granda.
Allt frá fínlegum japönskum renningum með silkiþrykki til svartra, notaðra spjalda sem hún gefur nýtt líf.
Eygló við eitt verka sinna sem er unnið með silfurgrafítklumpi. Hún skrifar með ólæsilegu letri það sem geðhjúkrunarfræðingur skráði eftir henni í dáleiðslu. Fréttablaðið/Eyþór
POWERSTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yrálagsvörn
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða
Sveigjanlegt rafhlöðu ker sem
virkar með öllum Milwaukee ®
M18™ rafhlöðum.
Verð 49.900 kr. (án rafhlöðu)
M18 FCS66
Alvöru hjólsög
frá Milwaukee
vfs.is
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
dýrum dómum og efni sem ég finn
og á sér sögu,“ segir listakonan.
Ég get ekki leynt undrun minni
þegar Eygló lýsir því að dáleiðsla
sé undirstaða hluta listaverkanna.
Varstu í rússi? spyr ég og við hlæj-
um báðar. „Nei, en í dáleiðslu kort-
lagði ég sex svæði líkamans með
tússlit og þannig urðu til óhlut-
bundnar myndir. Í silkiþrykkinu
tek ég þessar teikningar og gef þeim
sjálfstætt líf,“ segir hún. „Þegar ég
vinn þá er það efnið sem leiðir mig
áfram, það kallar á næsta form og
hægt og rólega verða verkin til.
Ég er ekki með fyrirfram ákveðna
lokaútkomu, heldur verður allt til
í vinnuferlinu svo úr verður stór
gjörningur.“
Niður úr loftinu hangir stór
mynd, gerð með silfurgrafítklumpi,
efni beint af jörðinni. Þannig skrif-
aði Eygló með ólæsilegu letri allt
sem geðhjúkrunarfræðingurinn
skráði eftir henni í dáleiðslunni.
„Þetta er texti sem er orðinn að
myndlist núna,“ útskýrir hún. „Ég
vissi hvar í salnum þetta verk yrði,
og sjórinn hér utan við húsið kveikti
þá hugmynd að setja bóluplast yfir
hluta af letrinu. Þegar sólin skín
merlar á hann líkt og hafið.“
Á sýningunni eru átta verk, þrír
sjálfstæðir skúlptúrar og fimm mis-
munandi útgáfur af upplifuninni
í dáleiðslunni. Eygló segist hafa
unnið að sýningunni sleitulaust í
níu mánuði, hvern einasta dag og
margar nætur. „Ég hef ekki hugsað
um annað,“ segir hún. En telur hún
verkin vera metin að verðleikum?
„Það er bara ekki í mínum höndum.
Ég er ekki í trúboði með mynd-
listina að bera út einhvern boð-
skap. Fólk finnur það sem það vill
finna. Það sem ég geri sé ég sem eitt
tannhjól í stórri maskínu. Ég trúi á
sköpunina, mér finnst hún vera súr-
efnið í samfélaginu.“
Eygló kveðst hafa verið svo lán-
söm að fá starfslaun og styrk úr
myndlistarsjóði. „Ef ég sel eitt-
hvað er það stórkostlegt en ég set
ekki verðmiða á verkin fyrirfram
og hvatinn er aldrei sá að fram-
leiða fyrir markaðinn. Þegar ég
útskrifaðist úr skóla 1991 tók ég
þessa afstöðu. Peningar eru svo
sterkt afl og það er stórhættulegt
að vera háður þeim. Ég er stunda-
kennari í Listaháskólanum og
Myndlistarskólanum í Reykjavík.
En meðan ég vann að þessari sýn-
ingu sleppti ég allri kennslu sem ég
gat, því maður stimplar sig ekki út
úr þessari vinnu. Nú þegar henni
er lokið finnst mér eins og ég hafi
verið með hjartasjúkling á borðinu
í langri skurðaðgerð. Annaðhvort
lifir hann eða deyr. Ég vona samt að
hann spjari sig. Það er góð tilfinn-
ing að vita að maður gerði allt sem
maður gat.“
Sýningin stendur til 28. október
og ókeypis er inn.
Silkiþrykk á japanskan pappír unnið í New york. Pappi, pappír og viðarbútar verða að skúlptúr.
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r58 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
4
-7
1
8
0
2
0
E
4
-7
0
4
4
2
0
E
4
-6
F
0
8
2
0
E
4
-6
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K