Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 116

Fréttablaðið - 22.09.2018, Side 116
Flutningurinn var magnaður, sam- spilið tært, hraðar nótur skýrar, túlkunin Full aF ástríðum, en það var ekki nóg. TónlisT Perlur tónbókmenntanna HHHHH Verk eftir Weiner, Kodály og Elgar. Flytjendur: Anton Miller, Guðný Guðmundsdóttir, Rita Porfiris, Bryndís Halla Gylfadóttir og Bjarni Frímann Bjarnason. Norðurljós í Hörpu sunnudaginn 16. september Í kvikmyndinni Close Encount­ers of the Third Kind, sem fjallar um undanfara þess að geimverur sækja okkur heim, kemur ungverska tónskáldið Zoltán Kodály við sögu. Aðferð hans til að kenna börnum tónlist er notuð í myndinni til að eiga samskipti við geimverurnar. Kodály er þó ekki eitt af þekktustu tónskáldunum, og tónlist hans er sjaldan flutt hér á landi. Hann var uppi á fyrri hluta aldarinnar sem leið, og rétt eins og samlandi hans, Bartók, var hann undir áhrifum ung­ verskrar þjóðlagahefðar. Þessi áhrif voru greinileg í verkinu Szerenad fyrir tvær fiðlur og víólu, sem flutt var á upphafstónleikum vetrarins í Kammermúsíkklúbbnum í Norðurljósum í Hörpu á sunnu­ daginn. Szerenad, eða kvöldlokka eins og orðinu hefur verið snarað yfir á íslensku, er í þremur köflum sem allir eru fullir af ákefð. Tón­ málið er þéttofið og fjaðurmagnað, og merking hennar skilaði sér prýði­ lega á tónleikunum. Sá hluti síðasta kaflans þar sem músíkantarnir köst­ uðu eggjandi laglínunni á milli sín og líktu inn á milli eftir slagverkshljóð­ færum, var einkar spennandi. Þau Anton Miller og Guðný Guðmunds­ dóttir léku á fiðlur en Rita Porfiris á víólu; túlkun þeirra var kraftmikil, samspilið nákvæmt og agað. Annað ungverskt tónverk var leik­ ið á tónleikunum, Dúó fyrir fiðlu og víólu eftir László Weiner. Hann var gríðarlega hæfileikaríkur og hefði e.t.v. orðið eitt af höfuðtónskáldum aldarinnar ef hann hefði ekki látið lífið í fangabúðum nasista tuttugu og átta ára gamall. Miller og Por­ firis fluttu dúóið og gerðu það með afbrigðum glæsilega. Tónmálið er innblásið, laglínurnar eru sífellt að segja sögu, hvergi er dauður punktur. Hljóðfæraleikararnir misstu aldrei niður stemninguna; túlkunin var áleitin og þrungin sannfæringar­ krafti. Tæknilegar hliðar; tónmótun, samspil, hröð tónahlaup og þess háttar, voru með eindæmum vel af hendi leystar. Lokaverkið á tónleikunum var stórt og mikið, kvintett fyrir píanó og strengjaleikara eftir Edward Elgar. Hann var uppi á árunum 1857­1934, á miklum umbrotatímum í tón­ listarsögunni. Vinsældir hans voru gríðarlegar um tíma, en þegar koll­ egar hans voru farnir að vekja athygli fyrir athyglisverðar tilraunir, fór tón­ list hans að virka gamaldags. Hann þróaðist lítið, og kvintettinn er frá því seint á ferli hans, þegar hann var farinn að endurtaka sig. Kvintettinn er vissulega stílhreinn og tignarlegur, en laglínurnar eru kynlega andlaus­ ar, klisjur frekar en skáldskapur. Áðurnefndir strengjaleikarar léku verkið ásamt Bryndísi Höllu Gylfa­ dóttur sellóleikara, en Bjarni Frí­ mann Bjarnason, píanóleikari og altmuligmand, sat við slaghörpuna. Flutningurinn var magnaður, sam­ spilið tært, hraðar nótur skýrar, túlkunin full af ástríðum, en það var ekki nóg. Leikurinn dugði ekki til að lyfta músíkinni upp úr meðal­ mennskunni, og þegar upp var staðið var manni alveg sama, því miður. Jónas Sen niðursTaða: Tvö ungversk verk voru flott, en kvintett eftir Elgar náði aldrei flugi þrátt fyrir góðan vilja. Andagift og andleysi í Kammermúsíkklúbbnum „Túlkun þeirra var kraftmikil, samspilið nákvæmt og agað,“ segir gagnrýnandi. FréTTablaðið/aNToN briNk Vilt þú vera Mannvinur? mannvinir.is Starf Gylfa er mögulegt vegna Mannvina. Með mánaðarlegu framlagi styður þú við mannúðar- og hjálparstarf innanlands og utan þar sem þörfin er mest. „Þegar við sinnum fólki í miðjum harmleik spyr það oft hvað það eigi að borga. Það slær mig. Því þú borgar ekki fyrir aðstoð.“ Gylfi, sjál„oðaliði í viðbragðshópi Rauða krossins — Mannvinir eru mál 2 2 . s E P T E m b E r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u rm E n n i n G ∙ F r É T T a b l a ð i ð 2 2 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 1 2 8 s _ P 1 2 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 E 4 -8 5 4 0 2 0 E 4 -8 4 0 4 2 0 E 4 -8 2 C 8 2 0 E 4 -8 1 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 8 s _ 2 1 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.