Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512
5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Þegar kemur að þróun vöru-úrvals lætur IKEA ekki sitt eftir liggja. Von er á nýjum
og glæsilegum eldhúsbæklingi
á morgun þar sem hægt er að fá
sýnishorn af nýjungum og fjöl-
breyttu úrvali af eldhússkápum,
framhliðum, blöndunar- og heim-
ilistækjum, svo eitthvað sé nefnt,“
segir Birna Magnea Bogadóttir,
sölustjóri í eldhúsdeild IKEA. „Í
bæklingnum má glögglega sjá að
mikil áhersla er lögð á gæði, skipu-
lag og nýtingu á plássi.“
Úrvalið byggt á
óskum viðskiptavina
Birna útskýrir að hugmyndafræði
IKEA sé að gera daglegt líf þægilegra
fyrir sem flesta og því sé úrvalið
byggt á kröfum viðskiptavina.
„Hvort sem fólk heillast meira af
sígildum og rómantískum stíl eða
nútímalegu og stílhreinu útliti geta
allir fundið eitthvað við sitt hæfi
– og á verði sem hentar flestum,“
segir hún. „Eldhús eru ólík og kröfur
fólks misjafnar.“ Birna nefnir sem
dæmi að bakaraofnar séu ekki sjálf-
sagðir í ýmsum löndum, en íslensk
matarhefð krefjist þess að eldhúsið
sé útbúið góðum ofni. Þess vegna
leggi IKEA á Íslandi mikla áherslu á
hágæða ofna og fleiri heimilistæki
sem fylgi nútímakröfum viðskipta-
vina. „Þessa dagana bætast einmitt
ofnar, örbylgjuofnar og háfar í stíl
við eldhúsúrval IKEA,“ segir Birna.
Sniðið að rýminu
„Heimilin eru að breytast, fólk býr í
smærra rými og deilir jafnvel plássi,
svo að gott skipulag er nauðsynlegt á
öllu heimilinu, ekki síst í eldhúsinu,“
segir Birna. „METOD eldhúslínan
er grunnurinn í eldhúsinnréttingu
IKEA og er hönnuð til að passa í
hvaða eldhús sem er. Boðið er upp
á skápa í öllum stærðum, sem gera
fólki kleift að sníða eldhúsið að arki-
tektúr heimilisins.
Línan passar bæði í lítil og stór
eldhús og jafnvel óvenjuleg eldhús,
eins og þau sem eru byggð undir
súð. METOD línan nýtir ekki bara
rýmið vel heldur geta viðskiptavinir
valið úr fjölbreyttu úrvali af hurðum
og framhliðum, ásamt höldum og
hnúðum, til að innrétta eldhúsið
fullkomlega eftir sínum smekk,“
segir Birna. „Möguleikarnir eru í
raun endalausir og ef fólk vill breyta
til síðar þá má einfaldlega skipta um
framhliðar á METOD skápunum eða
höldur á framhliðum. Smáatriði geta
gjörbreytt eldhúsinu.“
Betra flæði í eldhúsinu
„Í eldhúsbæklingnum má finna
snjallar nýjar línur sem færa eldhús-
inu betra vinnuflæði, til dæmis opnar
hirslueiningar frá TORNVIKEN,
sem veita góða yfirsýn og auðvelda
aðgengi. Það bætist líka í úrvalið
af skipulagsvörum sem eru í anda
stóreldhúsa á veitingastöðum,“ segir
Birna. „Línan heitir KUNGSFORS
og nýtir hvern kima í eldhúsinu, án
þess að taka dýrmætt borðpláss. Hún
hentar í eldhús af öllum stærðum og
einfaldar eldamennskuna til muna.“
Gott fyrir umhverfið og veskið
Fólk er sífellt meðvitaðra um
umhverfi sitt og IKEA tekur virkan
þátt í að stuðla að sjálfbærara heim-
ilislífi. „IKEA hefur til dæmis byrjað
að nota endurunnið hráefni til að
hafa jákvæð áhrif á jörðina,“ segir
Birna. „Til að mynda eru KUNGS-
BACKA eldhúsframhliðar úr endur-
unnum við sem er klæddur plast-
filmu úr endurunnum plastflöskum
en KUNGSBACKA hlaut á dögunum
hin virtu alþjóðlegu hönnunar-
verðlaun Red Dot. Annað dæmi um
vistvænar eldhúsvörur IKEA er fjöl-
breytt úrval af blöndunartækjum,
en öll blöndunartækin eru með
búnaði sem dregur úr vatnsnotkun
um allt að 40% án þess að draga úr
þrýstingi,“ segir Birna að lokum.
„Það er bæði umhverfisvænna og
sparar peninga.“
Smáatriði geta gjörbreytt húsgögnum. Leðurhöldur gefa
þessum skáp óhefðbundið yfirbragð.
KUNGSBACKA eldhúsframhliðin hlaut hin virtu alþjóðlegu hönnunarverðlaun Red Dot í flokki vöruhönnunar.
Gott skipulag gerir lífið auðveldara og er mikilvægt á öllu heimilinu, ekki síst í eldhúsinu.
KUNGSFORS línan nýtir hvern kima í eldhúsinu án þess
að taka dýrmætt borðpláss og hentar í öll eldhús.
Hvort sem fólk
heillast meira af
sígildum og róman-
tískum stíl eða nútíma-
legu og stílhreinu útliti
geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi.
VADHOLMA eldhúshirslurnar færa heimilinu náttúrulegan hlýleika og hefðbund-
ið útlit með hillum úr bæsuðum askspæni og eldhúseyju með viðarborðplötu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-5
F
C
8
2
0
E
A
-5
E
8
C
2
0
E
A
-5
D
5
0
2
0
E
A
-5
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K