Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 26
Stólpi samanstendur af fjöl-mörgum einingum sem vinna saman sem ein heild,“
útskýrir Guðmundur Ingi Hauks-
son, framkvæmdastjóri Stólpa.
„Því er auðvelt að velja kerfisein-
ingar sem henta flestum atvinnu-
greinum en vinna saman sem ein
heildstæð lausn. Með því hafa
stjórnendur ítarlegt yfirlit á einum
stað yfir allan sinn rekstur.“
Grunnþarfir og sérlausnir
„Grunnkerfi Stólpa uppfylla ein-
földustu þarfir fyrirtækja,“ upplýsir
Guðmundur um grunnkerfin sem
samanstanda af fullbúnu fjárhags-
kerfi, lánardrottna- og skuldu-
nautakerfi, og sölukerfi. „Sérstaða
og styrkleiki Stólpa felst í því að
kerfið getur bætt við sig fjölda
aukakerfa sem vinna öll saman
með grunnkerfunum og er heildar-
lausn fyrir flestar gerðir fyrirtækja.“
Dæmi um einfaldleika ólíkra
kerfiseininga Stólpa er öflugt sam-
spil verkbókhalds, stimpilklukku,
launakerfis og sölukerfis sem
vinna saman sem ein heild og gefa
nákvæmt yfirlit yfir hvert einasta
verk og starfsmann.
„Starfsmenn skrá sína dag-
legu mætingu í Stólpa og í hvaða
verkefnum þeir unnu í yfir daginn.
Á sama tíma er skráð hvaða tæki
eða efni voru notuð í verkið, þar
sem það á við. Framkvæmdastjóri
hefur því á hverjum tíma heild-
stætt yfirlit yfir hversu mikið hefur
verið skráð í hvert verkefni, ásamt
yfirliti yfir kostnað, útsöluverð og
framlegð verksins á hverjum tíma,“
útskýrir Guðmundur.
Þegar kemur að því að reikn-
ingsfæra verkið útbýr kerfi Stólpa
sölureikning sem senda má við-
skiptavinum, með hefðbundnum
eða rafrænum hætti.
„Tímaskráningar starfsmanna
færast sjálfkrafa í launakerfið sem
reiknar laun þeirra í samræmi við
vinnuframlag og mætingarreglur.
Þannig heldur kerfið utan um hve-
nær starfsmaður vinnur dagvinnu
eða yfirvinnu en einnig hvort
verkkaupi greiði fyrir dagvinnu
eða yfirvinnu, þótt slíkt þurfi ekki
endilega að fara saman,“ segir
Guðmundur um sveigjanlegt kerfi
Stólpa sem hentar jafnt stórum
sem smáum aðilum.
„Tíma- og verkskráningar starfs-
manna geta farið fram eftir fjöl-
mörgum leiðum, allt eftir því hvað
passar hverju og einu fyrirtæki.
Þær geta til dæmis farið fram með
beinni skráningu úr snjallsíma
eða með því að skanna strika-
merki á verkbeiðni. Möguleikarnir
eru margvíslegir, enda eru þarfir
fyrirtækja ólíkar og kalla á ólíkar
skráningarleiðir. Allt skilar það sér
þó að lokum í einu heildstæðu yfir-
liti yfir reksturinn á hverjum tíma.“
Ódýrt en öflugt kerfi í skýinu
Grunnpakki Stólpa kostar 7.320
krónur á mánuði og er virðisauka-
skattur innifalinn. Í grunnpakkan-
um er þjálfun starfsmanna, hýsing
kerfisins, dagleg afritun gagna og
sjálfvirkar uppfærslur.
„Við erum stolt af því að þótt
kerfið sé öflugur og góður kostur
fyrir kröfuharða viðskiptavini er
það ódýrt í samanburði við sam-
bærileg kerfi,“ segir Guðmundur
um Stólpa sem er eitt vinsælasta
bókhalds- og upplýsingakerfi
landsins og hefur verið í daglegri
þróun í yfir þrjátíu ár. „Það gefur
okkur kost á að lækka verðið til
notenda.“
Greining á daglegum rekstri
Stólpi er Windows-kerfi sem býður
notendum upp á fjölmarga mögu-
leika. Einfalt er að færa gögn yfir í
Excel til frekari úrvinnslu eða nýta
þær fjölmörgu skýrslur sem kerfið
býður upp á.
„Sem dæmi um öfluga greining
á rekstri má nefna ABC-greiningu
Stólpa á viðskiptavinum eða
vörum. Með henni er einfalt að
sjá hvaða viðskiptavinir eða vörur
skila mestri framlegð til fyrir-
tækisins á hverjum tíma,“ útskýrir
Guðmundur.
Stólpi býður einnig upp á lif-
andi tengingar við Power BI, sem
er mjög öflugur hugbúnaður frá
Microsoft.
„Það gefur hvaða stjórnanda
sem er ótæmandi möguleika á að
fylgjast myndrænt með daglegum
rekstri, hvort sem gögn eru tekin
saman í tölulega eða myndræna
samantekt. Stjórnandi getur þann-
ig komið sér upp sjálfvirku stjórn-
borði sem sýnir með einföldum og
sjálfvirkum hætti hvernig rekstur
hans þróast á hverjum tíma.“
Hröð þróun
Hugbúnaðurinn Stólpi kom fyrst
út fyrir rúmum þrjátíu árum.
Kerfið hefur verið í stöðugri þróun
síðan og er fátt líkt með núverandi
útgáfu og þeirri sem kom fyrst á
markað 1984.
„Stólpi hefur tekið út mikinn
þroska sem nýtist ólíkum og
síbreytilegum þörfum notenda. Á
síðustu árum hefur þróun kerfisins
aukist talsvert enda er margt að
breytast í umhverfi okkar sem
opnar ný tækifæri og gerir Stólpa
ennþá öflugri en áður,“ segir Guð-
mundur.
Með tilkomu öflugra snjallsíma
hefur opnast stórt tækifæri fyrir
upplýsingatæknina.
„Tímaskráningar starfsmanna
eru nú þegar komnar í snjall-
símann og unnið er að því að fjölga
snjallsímalausnum á næstunni.
Rafræn og sjálfvirk samskipti eru
stöðugt að þróast og við sjáum til
þess að Stólpi sé ávallt í fremstu
röð,“ segir Guðmundur.
Innan fárra ára gerir hann ráð
fyrir að flest sem snýr að bókhalds-
og upplýsingakerfum verði með
öllu orðið rafrænt og að papp-
írsreikningar í gluggaumslögum
heyri sögunni til.
„Við finnum fyrir því að við-
skiptavinir nýta sér í auknum mæli
þau rafrænu samskipti sem kerfið
býður upp á og sjálfvirkni kerfisins
er alltaf að aukast. Á næstu dögum
gefum við út nýja dagbók í fjár-
hagskerfi Stólpa og með henni
verður allur innlestur og sjálfvirkar
afstemmingar með mun öflugri og
sjálfvirkari hætti en áður, sem er
gríðarlegur tímasparnaður fyrir
bókara.“
Hátt þjónustustig
Öflug og skilvirk þjónusta er lykil-
atriði fyrir viðskiptavini Stólpa.
„Því höfum við markvisst eflt
þjónustu okkar og erum með
öflugt starfslið á þjónustuborði
sem leysir langflest viðfangsefni
í einu símtali. Við höfum verið
einstaklega heppin með starfs-
fólk enda er valinn maður í
hverju sæti og hjá félaginu starfa
meðal annars reyndir forritarar,
kerfisfræðingar, viðurkenndir
bókarar, rekstrarverkfræðingur og
viðskiptafræðingar,“ segir Guð-
mundur um velgengni og góðan
árangur Stólpa.
Stólpi er í Borgartúni 28, 4. hæð.
Sími 512 4400. Nánari upplýsingar
á stolpi.is.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442
Hjá Stólpa starfa reyndir forritarar, kerfisfræðingar, viðurkenndir bókarar, rekstrarverkfræðingur og viðskiptasérfræðingar. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI
Öflugt og þrautreynt starfslið á þjónustuborði Stólpa leysir langflest viðfangsefni viðskiptavina í einu símtali.
Hér má sjá sýnishorn af möguleikum með að tengja Stólpa við Power BI.
Framhald af forsíðu ➛
Helstu kerfiseiningar Stólpa
viðskiptahugbúnaðar
• Fjárhagskerfi
• Skuldunautar
• Lánardrottnar
• Sölukerfi og innheimtukerfi
• Birgðakerfi og pöntunarkerfi
• Tollakerfi
• Verkbókhald og vinnuskýrslur
• Stimpilklukkukerfi
• Launakerfi
• Tímabókunarkerfi
• Rafræn innkaup
• Félagakerfi
• Bifreiðakerfi
• Skipakerfi
• Dýralæknakerfi
• Framleiðslukerfi
Við erum stolt af
því að þótt kerfi
Stólpa sé öflugur og
góður kostur fyrir kröfu-
harða viðskiptavini er
það ódýrt í samanburði
við sambærileg kerfi.
Guðmundur Ingi Hauksson
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . S e P T e M B e R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U ReNDURSKoÐUN oG BÓKHALD
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-4
7
1
8
2
0
E
A
-4
5
D
C
2
0
E
A
-4
4
A
0
2
0
E
A
-4
3
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K