Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 2
Veður
Í dag verður fremur hægur vindur á
landinu og verður sólríkt á Suð-
austur- og Austurlandi. Í öðrum
landshlutum má reikna með lítils
háttar skúrum. sjá síðu 16
Afhenti ráðherranum skýrslu um hrunið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor afhenti Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra skýrslu sína um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins
í gær. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að málflutningur Breta í Icesave-deilunni hafi ekki verið á rökum reistur, bresk stjórnvöld skuldi
Íslendingum afsökunarbeiðni vegna beitingar hryðjuverkalaga og framgöngu Breta í málinu. Fréttablaðið/anton brink
HEILBRIGðIsMáL Sem stendur er
unnið að könnun á því í forsætis-
ráðuneytinu hvort fýsilegt sé að
seinka klukkunni hér á landi um
eina klukkustund. Óvissa var um
undir hvaða ráðuneyti málefnið
heyrði. Klukkan á Íslandi hefur
verið óbreytt frá 1968.
Í janúar skilaði starfshópur um
leiðréttingu klukkunnar minnis-
blaði til heilbrigðisráðherra. Niður-
staða hópsins var sú að núverandi
fyrirkomulag, að miða við miðtíma
Greenwich þótt Ísland sé talsvert
vestan miðlínu, hafi ýmis neikvæð
áhrif á heilsufar fólks. Neikvæð
áhrif felist meðal annars í auknum
líkum á ýmsum sjúkdómum, verri
námsárangri, aukinni depurð og
klukkuþreytu. Ekki er lagt til að tek-
inn verði upp sumar- og vetrartími.
Þegar minnisblaðið lá fyrir lagði
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra það fyrir á ríkisstjórnar-
fundi og tók undir niðurstöðu
hópsins. Þá lá hins vegar ekki fyrir
hvaða ráðherra stjórnarinnar hefði
forráð yfir málum tímans. Að mati
forsætisráðuneytisins fellur tíminn
samkvæmt forsetaúrskurði um
skiptingu málefna Stjórnarráðsins
undir „annað“ og þar með forsætis-
ráðuneytið.
„Málið er ekki á þingmálaskrá
minni fyrir þetta þing en inni í
ráðuneyti stendur yfir vinna þar
sem verið er að fara yfir það, meðal
annars með tilliti til þeirra umsagna
sem fengust þegar málið var lagt
fyrir síðast á þingi,“ segir Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Þingsályktunartillögur um breyt-
ingu klukkunnar hafa ítrekað verið
lagðar fram á Alþingi án þess að ná
fram að ganga. Fylgismenn breyt-
ingarinnar fengu byr undir báða
vængi fyrir rétt tæpu ári þegar til-
kynnt var að rannsóknir tengdar
líkamsklukkunni hefðu hlotið
Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknis-
fræði.
Athugasemdir gegn breytingu
hafa á móti flestar komið frá við-
skiptalífinu og íþróttahreyfingunni.
Icelandair mótmælti breytingu til
að mynda á þeim grunni að fyrir-
tækið hefði lagt mikla vinnu í að
öðlast hefðarrétt á afgreiðslutímum
á flugvöllum og að breytingarnar
hefðu mikil áhrif á leiðaáætlun
félagsins. Íþróttahreyfingin bendir
síðan á að minna sólarljós að sumri
til myndi þýða að íþróttamannvirki
verði verr nýtt en nú er.
„Velferðarráðuneytið fjallaði um
málið út frá lýðheilsusjónarmiðum
en við erum að skoða aðrar hliðar
málsins heildstætt. Það skýrist á
næsta þingi [2019-20, innsk. blm.]
hvort ég legg málið fram eða ekki,“
segir Katrín. joli@frettabladid.is
Katrín ræður tímanum
og getur breytt honum
Starfshópur um leiðréttingu klukkunnar skilaði af sér í upphafi árs. Óvissa var
uppi um hvaða ráðuneyti tíminn heyrði undir. Málið er sem stendur í vinnslu í
forsætisráðuneytinu. Icelandair hefur efasemdir um að krukka í tímann.
Margir eiga erfitt með mesta myrkrið yfir vetrartímann. norDiCPHotoS/GEttY
Velferðarráðuneytið
fjallaði um málið út
frá lýðheilsusjónarmiðum en
við erum að skoða aðrar
hliðar málsins heildstætt.
Katrín
Jakobsdóttir,
forsætisráðherra
NOREGuR Prestur í Noregi hefur
verið dæmdur í 14 daga skilorðs-
bundið fangelsi og gert að greiða
20.000 norskar krónur í sekt vegna
ölvunaraksturs auk þess sem hann
var sviptur ökuréttindum í 12 mán-
uði. Presturinn hafði að kvöldlagi
skálað við kærustu sína sem hann
ræddi við á FaceTime. Hann hafði
skrúfað frá rauðvínsbelju og var þess
vegna ekki með það á hreinu hversu
mikið hann hafði drukkið. Þetta var
kvöldið fyrir guðsþjónustu þar sem
ferma átti fjölda barna.
Presturinn hætti samtalinu við
kærustuna fyrir miðnætti þar sem
hann ætlaði að leggja snemma af
stað morguninn eftir. Á leið í ferm-
inguna var hann stöðvaður af lög-
reglu og reyndist áfengismagnið vera
0,58 prómill. Hinn dæmdi starfar
ekki lengur sem prestur. – ibs
Prestur fullur
undir stýri á leið
í fermingu
BREtLaNd Það þjónar ekki hags-
munum bresku þjóðarinnar að
ganga til kosninga á ný nú þegar
samningaviðræður um útgöngu
úr ESB standa yfir, sagði Theresa
May, breski forsætisráðherrann, í
gær. Erfiður gangur viðræðna hefur
orðið til þess að vangaveltur eru
uppi um hvort Íhaldsflokkurinn
steypi leiðtoga sínum af stóli eða
að minnihlutastjórn hans falli.
Nýjustu skoðana-
kannanir benda
til að kosning-
arnar, sem May
vill ekki, yrðu
spennandi. Í
könnun sem birt-
ist um helgina
mældust Íhalds-
f l o k k u r i n n
o g Ve r ka -
m a n n a -
flokkurinn
með jafn-
mikið fylgi.
– þea
Vill ekki nýjar
kosningar
VEðuR Útlit er fyrir ágætisveður í
dag og á morgun, að því er veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gærkvöldi. „Það er útlit fyrir að
það verði róleg vestanátt, frekar
hægur vindur. Þrír til átta metrar
á sekúndu og lítilsháttar skúrir eða
slydduél en léttskýjað á Suðaustur-
og Austurlandi.
Afar lítilli úrkomu er spáð á
höfuðborgarsvæðinu. Segir veður-
fræðingur að spáin geri ráð fyrir
örfáum dropum.
Á föstudaginn er hins vegar spáð
hvassviðri og rigningu víða. „Þá fyrst
dregur til einhverra tíðinda.“ – þea
Hvassviðri á
föstudaginn
theresa
May
2 6 . s E p t E M B E R 2 0 1 8 M I ð V I K u d a G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a ð I ð
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-1
A
A
8
2
0
E
A
-1
9
6
C
2
0
E
A
-1
8
3
0
2
0
E
A
-1
6
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K