Læknablaðið - 01.10.2017, Qupperneq 3
Sannreynd virkni og öryggi
hjá sjúklingum með sögu
um heilablóðfall / TIAa,2
52 % sjúklinga í lykilrannsókninni ROCKET AF
höfðu áður fengið heilablóðfall/TIA2
Virkni og öryggi Xarelto hjá þeim sjúklingum
voru í fullu samræmi við heildarniðurstöður
ROCKET AF2
VÖRN GEGN HEILABLÓÐFALLI HJÁ SJÚKLINGUM MEÐ GÁTTATIF ÁN LOKUSJÚKDÓMS1
Vörn gegn heilablóðfalli
með einni töflu á dagb,1
a. TIA: transient ischaemic attack = skammvinnt blóðþurrðarkast.
b. Xarelto 20 mg einu sinni á dag ef CrCl ≥ 50 ml/mín. Xarelto 15 mg einu sinni á dag ef CrCl er 15–49 ml/mín.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Hankey GJ, Patel MR, Stevens SR, et al. Rivaroxaban
compared with warfarin in patients with atrial fibrillation and previous stroke or transient ischaemic attack.
Lancet Neurol 2012;11:315–22.
L.
IS
.M
K
T.
09
.2
01
7.
01
49
Se
pt
em
be
r 2
01
7
XARD0091 – Bilbo
▼
LÆKNAblaðið 2017/103 403
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir (í leyfi)
vedis@lis.is
Hávar Sigurjónsson
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson (í leyfi)
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1900
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
14.900,- m. vsk.
Lausasala
1490,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Jóhannes Atli Hinriksson (f. 1975) sýndi nýverið
í nýjum húsakynnum hins listamannarekna sýn-
ingarrýmis, Kling og Bang, í Marshall húsinu á
Granda. Á forsíðu Læknablaðsins er mynd af titil-
verki sýningarinnar, Ok, api Allt í lagi, frá þessu
ári, 2017. Verkið er af sama meiði og aðrir skúlp-
túrar listamannsins sem gjarnan eru samsettir
úr fundnum efnum. Hann gerir jafnframt tvívíð
klippiverk sem byggja á sömu aðferð, endur-
vinnslu fundins myndefnis. Verk Jóhannesar Atla
skírskota til launhelga og skurðgoða frá menn-
ingarheimi fjarri okkur í tíma og rúmi. Efniviðurinn
og myndefnið eru þó greinilega afsprengi okkar
samtíma, þau minna okkur á ofgnótt neyslu- og
afþreyingarsamfélagsins. Skúlptúrinn Ok, api Allt
í lagi er nokkurs konar tótem sem sýnir grodda-
lega eftirmynd apa, útskorinn í frauðplast og tré.
Hann trónir ofan á hausmynd manns sem virðist
afmyndaður, blár og marinn. Ef til vill einhvers
konar tilvísun í lof heimskunnar eða áminning
um sigur náttúrunnar í stríði mannsins gegn
henni. Á sýningunni mátti sjá ýmsa útfærslu af
því sem kallað var í kynningu, fórnarlömb sköp-
unar. Jóhannes Atli lauk BA-gráðu í myndlist frá
Listaháskóla Íslands árið 2000 og MFA-gráðu frá
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Félagar í Oddfellowstúkunum Þóru og Hásteini
á Suðurlandi komu færandi hendi á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands á Selfossi fimmtudaginn
14. september síðastliðinn og færðu stofnuninni
gjöf að verðmæti 10.000.000 króna. Um er að
ræða vöktunartæki fyrir lífsmörk sjúklinga,
ásamt varðstöð, sem er gjöf til lyflækningadeild-
ar Sjúkrahússins á Selfossi. Tækin samanstanda
af sex vöktunarstöðvum sem auðvelda fagfólki
sjúkrahússins að fylgjast af meiri nákvæmni og
öryggi með ástandi sjúklinga. Tvö tækjanna eru
svo kölluð monitor-tæki sem að öllu jöfnu eru
föst við rúmstæði sjúklings en eru með minni
ferðamonitor fyrir flutning sjúklinga. Þessi tæki
mæla blóðþrýsting, líkamshita, öndun, súrefn-
ismettun, púls og hjartsláttarrit. Fjögur tæki eru
svokallaðar telemetríur með skjá sem sýna púls,
hjartsláttarrit og súrefnismettun sjúklings. Öll
þessi tæki tengjast svo varðstöð á vakt lyflækn-
ingadeildarinnar þar sem hægt er að fylgjast vel
með sjúklingum. Auk þess senda tækin merki
og viðvaranir í snjallsíma eða píptæki hjúkrunar-
fræðings eða læknis á vakt. Tækin senda milli sín
þráðlausar upplýsingar, eru nettengd. Gjöfin var
gefin í tilefni af 25 ára afmæli stúkanna en þess
má geta fyrir nokkrum árum að gáfu stúkurnar
Heilbrigðisstofnun Suðurlands kapellu í sjúkra-
húsið á Selfossi.
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu
gjafarinnar en á henni eru, talið frá vinstri: Stein-
dór Gunnlaugsson stúkunni Hásteini, Sigurður
Jónsson formaður afmælisnefndar stúkunnar Há-
steins, Björn Magnússon læknir, Herdís Gunnars-
dóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,
Guðríður Egilsdóttir formaður afmælisnefndar
Oddfellowstúkunnar Þóru, Sigríður Gutt-
ormsdóttir, Steinunn Aðalsteinsdóttir, Sesselja
Sigurðardóttir og Ingunn Guðmundsdóttir,
allar úr stúkunni Þóru, Hjörtur Kristjánsson
framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands og Magnús Jónsson, ásamt
Torfa S. Guðmundssyni sem báðir eru í Oddfell-
owstúkunni Hásteini. Ljósmynd/Magnús Hlynur
Hreiðarsson.
Oddfellowar færðu
HSS vöktunartæki
School of Visual Arts í New York árið 2005. Hann hefur haldið sýn-
ingar víða um heim en sýning hans í Kling og Bang var sú fyrsta
hérlendis í nokkurn tíma.
Markús Þór Andrésson