Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 4

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 4
411 Karl Andersen, Thor Aspelund, Elías Freyr Guðmundsson, Kristín Siggeirsdóttir, Rósa Björk Þórólfsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Vilmundur Guðnason Úr gögnum Hjartaverndar: Faraldsfræði kransæðasjúkdóma á Íslandi í hálfa öld Kransæðasjúkdómar hafa verið algengasta dánarorsök Íslendinga frá miðri síð- ustu öld allt fram undir síðasta áratug. Frá 1980 hefur staða helstu áhættuþátta kransæðasjúkdóma farið sífellt batnandi og hefur sú þróun skýrt 72% þeirrar fækk- unar sem orðið hefur í ótímabærum dauðsföllum vegna kransæðasjúkdóma á síðustu þremur áratugum. Hins vegar hafa vaxandi offita og sykursýki dregið nokkuð úr þeim ávinningi. 423 Gunnar Sigurðsson, Kristín Siggeirsdóttir, Brynjólfur Y. Jónsson, Brynjólfur Mogensen, Elías F. Guðmundsson, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason Úr gögnum Hjartaverndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi Á síðustu árum hafa birst nokkrar greinar í vísindatímaritinu Osteoporosis International um faraldsfræði beinbrota á Íslandi, byggðar á hóprannsóknum Hjartaverndar. Hér eru tekin saman nokkur atriði úr þessum vísindagreinum og fylgiskjölum þeirra með áherslu á meiriháttar beinþynningarbrot (framhandleggsbrot, upphandleggsbrot, hryggsúlubrot og mjaðmarbrot). Þessi fjögur brot eru talin valda um 90% af heildar- byrði allra beinþynningarbrota. 429 Haukur Einarsson, Guðmundur Þorgeirsson, Ragnar Danielsen Örn Ólafsson, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason Hjartabilun meðal eldri Íslendinga. Algengi, nýgengi, undirliggjandi sjúkdómar og langtímalifun Hjartabilun er bæði algengur og alvarlegur sjúkdómur sem leggst fyrst og fremst á eldra fólk. Skipta má hjartabilun í tvær megingerðir, hjartabilun með minnkað út- streymisbrot (HFrEF) og hjartabilun með varðveitt útstreymisbrot (HFpEF). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna algengi, nýgengi, undirliggjandi sjúkdóma og lífs- horfur beggja gerða hjartabilunar meðal eldri Íslendinga. 404 LÆKNAblaðið 2017/103 F R Æ Ð I G R E I N A R 10. tölublað ● 103. árgangur ● 2017 407 Gunnar Sigurðsson Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar 50 ára Reykjavíkurrannsókn Hjarta- verndar hófst um leið og Rannsóknarstöð Hjarta- verndar opnaði að Lágmúla 9, í október 1967. Megintil- gangur hennar var að gera umfangsmikla hóprannsókn til að kanna meðal annars útbreiðslu hjarta- og æða- sjúkdóma hér á landi og finna helstu áhættuþættina svo unnt yrði að beita árangursrík- um forvörnum gegn þessum faraldri. 409 Pálmi V. Jónsson Öldrunarrannsókn Hjartaverndar Margir af mikilvægustu sigr- um heilbrigðisþjónustunnar eru fólgnir í því að hafa breytt bráðum sjúkdómum í langvinna. Eldra fólk safnar ekki aðeins á sig langvinnum sjúkdómum heldur tekur lík- aminn víðtækum og miklum aldurstengdum breytingum, sem færa má gild rök fyrir að séu ígildi sjúkdóma. L E I Ð A R A R

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.