Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2017/103 407 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar hófst um leið og Rannsóknar- stöð Hjartaverndar opnaði að Lágmúla 9, í október 1967. Því er liðin hálf öld síðan rannsóknin hófst að frumkvæði Sigurðar Samúels- sonar prófessors og samstarfsfólks, nánar lýst áður í Læknablaðinu.1 Megintilgangur hennar var að gera umfangsmikla hóprann- sókn til að kanna meðal annars útbreiðslu hjarta- og æðasjúkdóma hér á landi og finna helstu áhættuþættina svo unnt yrði að beita árangursríkum forvörnum gegn þessum faraldri. Reykjavíkurrannsóknin var sérstök í alþjóðlegu samhengi þar sem hún náði til stórs hóps beggja kynja, um 19.000 manns sem fylgt var eftir um langt árabil. Þátttakendahópurinn var um þriðj- ungur íslensku þjóðarinnar, fæddir 1907-1934, á aldrinum 34-69 ára við val hópsins 1967. Upplýsingasöfnunin var um 800 atriði varðandi hvern einstakling, fyrstu tölvuskráðu sjúkraskrárnar á Íslandi. Hver þátttakandi kom allt að fimm sinnum í hóprannsókn- ina á árabilinu 1967-1997. Á árinu 1981 hóf Rannsóknarstöð Hjarta- verndar fyrir Íslands hönd þátttöku í fjölþjóðlegri rannsókn Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á hjarta- og æðasjúkdómum sem fékk nafnið MONICA. Nikulás Sigfússon yfirlæknir stjórnaði rannsókninni hér á landi. Skráð voru öll kransæðatilfelli á landinu, 25-74 ára, sem gaf viðbótarmöguleika á tengingu áhættuþátta við algengi kransæðasjúkdóma, ekki eingöngu við dánarorsakir eins og áður. Hjartavernd hefur haldið áfram þessari skráningu síðan. Samtvinnun þessara gagnasafna, svo og gagna síðari hóprann- sókna Hjartaverndar, hefur verið nýtt til að fylgjast með þróun kransæðasjúkdóma á Íslandi og helstu áhættuþáttanna í nær hálfa öld eins og lýst er í ítarlegri yfirlitsgrein þessa tölublaðs Lækna- blaðsins.2 Greinin lýsir vel breytingum sem orðið hafa hér á landi síðustu áratugina. Tengsl lækkunar á tíðni kransæðasjúkdóma á Íslandi við breytingar á áhættuþáttum voru fyrst könnuð fyrir tímabilið 1968-1988 og sýndu niðurstöðurnar að skýra mætti fækk- un kransæðatilfella sem þá var orðin að stórum hluta (75%) út frá æskilegum breytingum á helstu áhættuþáttunum. Hjartavernd var með þeim fyrstu til að sýna fram á þetta í vísindagrein í British Medical Journal árið 1991 sem hlaut verðskuldaða athygli.3 Upplýsingarnar hafa verið nýttar á undaförnum áratugum í ár- angursríkri baráttu við hjarta- og æðasjúkdóma og áhættuþættina á Íslandi, sem var aðaltilgangur með stofnun Hjartaverndar á sín- um tíma.1 Niðurstöðurnar sýndu til dæmis að á 10. áratug síðustu aldar mátti rekja þriðja hvert dauðsfall í aldurshópi 35-69 ára til reykinga og á þessum tíma dó að meðaltali einn Íslendingur á dag úr reykingatengdum sjúkdómum (hjarta- og æðasjúkdómar, lungnasjúkdómar og krabbamein). Á árinu 2006 voru dauðsföllin vegna þessa um 100 færri á ári samfara minni reykingum.2 Hluti eftirlifandi þátttakendahóps Reykjavíkurrannsóknarinn- ar (5764 manns) varð síðan að undirstöðu Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar sem hófst árið 2002. Reykjarvíkurrannsóknin hefur einnig gefið möguleika á athug- un á öðrum hugsanlegum áhættuþáttum og mismunandi mynd- um kransæðasjúkdóms meðal karla og kvenna.1 Þetta leiddi í ljós áður lítt þekktar upplýsingar svo sem að karlar sem fengið höfðu þögla kransæðastíflu (án einkenna) höfðu svipaðar horfur og aðrir með sögu um þekkta kransæðastíflu.4 Þetta hefur svo verið athug- að nánar í Öldrunarrannsókninni. Gagnasafn Reykjavíkurrannsóknarinnar hefur einnig verið nýtt til rannsókna á öðrum langvinnum sjúkdómum á Íslandi. Í þessu tölublaði Læknablaðsins birtist yfirlit um beinbrot í öll- um þátttakendahópnum, sem gefur innsýn í faraldsfræði helstu beinþynningarbrota á Íslandi síðustu áratugi.5 Niðurstöðurnar benda til lægri tíðni mjaðmarbrota frá aldamótum, sem gæti átt sér margar skýringar. Þar sem rannsóknarhópur Reykjavíkurrann- sóknarinnar nýtist ekki til frekari athugunar á þessu þyrfti önnur rannsókn að taka við. Eðlilegast væri að komið yrði á árlegri skrán- ingu mjaðmarbrota og helstu beinþynningarbrota fyrir allt landið. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hefur unnið mikið og merkt starf síðastliðna hálfa öld undir farsælli forystu læknanna Ólafs Ólafssonar, Nikulásar Sigfússonar og Vilmundar Guðnasonar. Heimildir 1. Gudnason V, Sigfusson N, Sigurdsson G. Rannsóknarstöð Hjartaverndar í fortíð og nútíð. Laeknabladid, 2014; 100:456-464. 2. Andersen K, Aspelund T, Gudmundsson E, Siggeirsdottir K, Thorolfsdottir RB, Sigurdsson G, et al. Úr gögnum Hjartaverndar: Faraldsfræði kransæðasjúkdoma á Íslandi í hálfa öld. Laeknabladid, 2017; 103:411-420. 3. Sigfusson N, Sigvaldason H, Steingrimsdottir L, Gudmundsdottir II, Stefansdottir I, Thorsteinsson T, Sigurdsson G. Decline in ischaemic heart disease in Iceland and change in risk factor levels. BMJ 1991; 302: 1371-5. 4. Sigurdsson E, Thorgeirsson G, Sigvaldason H, Sigfusson N. Unrecognized myocardial infarction: epidemiology, clinical characteristics, and the prognostic role of angina pectoris. The Reykjavik Study. Ann Int Med 1995; 122: 96-102. 5. Sigurðsson G, Siggeirsdóttir K, Jónsson BY, Mogensen B, Guðmundsson EF, Aspelund T, et al. Úr gögnum Hjartaverndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi. Laeknabladid, 2017; 103:423-428. Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar 50 ára Gunnar Sigurðsson sérfræðingur í innkritalasjúkdómum. Stjórnarformaður Hjartaverndar 1998-2016 gunnars@hjarta.is 50th anniversary of the Reykjavik Heart Study Gunnar Sigurðsson endocrinologist Former chairman of the Icelandic Heart Association https://doi.org/10.17992/lbl.2017.10.151 Öðlastu nýtt viðhorf Inflectra er fyrsta mAb samheitalíftæknilyfið. Lyfið var þróað til að hafa sambærilega virkni og öryggi og frumlyf infliximab til að auka meðferðarval sjúklinga með gigtar-, meltingar- og húðsjúkdóma.1. Heimildir: 1. INFLECTRA™. European Public Assessment Report (EPAR). June 2013. Available at: http://www.ema.europa.eu/docs/en_GB/document_library/ EPAR_-_Public_assessment_report/human/002778/WC500151490.pdf http://www.ema.europa.eu/docs/is_IS/document_library/EPAR_-_Product_ Information/human/002778/WC500151489.pdf Fyrsta samheitalíftæknilyfið sem er einstofna mótefni (mAb) og notað í gigtar-, meltingar- og húðsjúkdómum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.