Læknablaðið - 01.10.2017, Side 9
LÆKNAblaðið 2017/103 409
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Um miðja nítjándu öld voru ævilíkur Íslendinga við fæðingu inn-
an við 50 ár en hafa síðan vaxið jafnt og þétt og eru nú yfir 80
ár. Fyrir hver 4 ár sem við lifum högnumst við um eitt. Einstak-
lingur sem er 65 ára hefur nú tólf og hálfu ári lengri ævilíkur en
við fæðingu. Um tveir þriðju hvers fæðingarárgangs nær þessu
æviskeiði, stækkandi hlutfall með tíma. Konur hafa þremur árum
lengri ævilíkur en karlar sem er minnsti munur sem þekkist. Ekki
eldast allir á sama hátt og breytileiki einstaklinga vex stórlega með
aldri.
Margir af mikilvægustu sigrum heilbrigðisþjónustunnar eru
fólgnir í því að hafa breytt bráðum sjúkdómum í langvinna. Eldra
fólk safnar ekki aðeins á sig langvinnum sjúkdómum heldur tek-
ur líkaminn víðtækum og miklum aldurstengdum breytingum,
sem færa má gild rök fyrir að séu ígildi sjúkdóma. Tökum dæmi.
Æðakerfið stífnar með aldri og efri mörk blóðþrýstings hækka.
Slagbilsháþrýstingur er sterkasti áhættuþáttur hjarta- og heila-
áfalla eldra fólks. Hjartavöðvinn stífnar og leiðir af sér hjartabilun
með varðveittu útfallsbroti. Bein taka að rýrna eftir 25 ára aldur hjá
báðum kynjum og konur fá hratt beinmassatap á áratugnum eftir
tíðahvörf. Afleiðingarnar eru vaxandi brotatíðni með aldri. Þetta
eru dæmi um aldurstengdar breytingar sem eru svo almennar og
algengar að margir telja þær jafnvel eðlilegar en þær reynast ígildi
sjúkdóma1. Sem slíkar eru þær viðfangsefni læknavísindanna. Yf-
irlitsgreinarnar frá Öldrunarrannsókn Hjartaverndar í þessu hefti
Læknablaðsins sýna vel fram á mikilvægi öldrunarrannsókna.
Rannsóknir sýna að langvinnir sjúkdómar koma fram á sama
tíma ævinnar og áður, það er í upphafi þriðja æviskeiðsins, og tvö-
faldast í algengi á hverjum 5 árum eftir 65 ára aldur. Af þessu leiðir
að ef algengi mjaðmabrota við 65 ára aldur væri 1% í stað 2%, yrði
fjöldi þeirra sem hafa hlotið mjaðmabrot við 85 ára aldur 16% í
stað 32%, svo að dæmi sé tekið. Lífsgæði batna og stórlega dregur
úr heilbrigðiskostnaði ef unnt er að seinka framkomu langvinnra
sjúkdóma.
Fyrsta starf mitt Íslandi að loknu framhaldsnámi í öldrunar-
lækningum 1989 var að aðlaga sjötta áfanga rannsóknar Hjarta-
verndar og bæta við öldrunaþætti. Forsvarsmenn Hjartavernd-
ar keyptu þau rök að rannsóknin væri eins og rauðvín sem vex
að gæðum og verðmæti með aldri. Til undirbúnings leitaði ég
ráða hjá forvera mínum í framhaldsnámi við Harvard, Tamörru
Harris, sem þá var hjá Bandarísku Öldrunarstofnuninni, og hjá
forsvarsmönnum bandarískrar lýðheilsurannsóknar: Established
Populations for Epidemiologic Studies of the Elderly, 1981-19932.
Fjölmörgum breytum þeirrar rannsóknar var bætt við; svo sem
vitrænni getu, athöfnum daglegs lífs, gönguhraða, andlegri líðan
og já, einnig hjartabilun. Björn Einarsson öldrunarlæknir skoðaði
alla þátttakendur sjötta áfanga. Þannig varð sjötti áfanginn eins
konar brú að Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, þar sem Tamörru
Harris var kunnug rannsókn Hjartaverndar þegar leitað var að
samstarfsaðilum utan Bandaríkjanna. Hjartaverndarrannsóknin
var ekki aðeins stór í sniðum heldur tók hún til beggja kynja sem
var óvenjulegt fyrir faraldsfræðilegar rannsóknir þeirra tíma á
hjarta- og æðasjúkdómum.
Öldrunarrannsókninni hefur verið lýst ítarlega3. Hún er fjöl-
fagleg, gefur ýtarlegar svipgerðir og nýtir fremstu rannsóknar-
tækni, sem í sumum tilvikum rekur sjúkdóma ellinnar allt aftur til
fósturþróunar.4 Rannsóknin er með öflugustu rannsóknum sinnar
tegundar og birtar greinar í hundruðum taldar. Með henni hafa
fengist miklir fjármunir og mikilvægt samstarf við erlenda vísinda-
menn. En öldrunarlæknirinn metur hvað mest hinn mikla fjölda
framúrskarandi íslenskra vísindamanna á ýmsum fræðasviðum
sem hafa kosið að beina kröftum sínum að öldrunarrannsóknum.
Heimildir
1. Pálmi V. Jónsson. Heilsufar og heilbrigðisþjónusta aldraðra á Íslandi, nútíð og framtíð.
Greinargerð í Skýrslu stýrihóps um stefnumótun í málefnum aldraðra til ársins 2015.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, mars 2003. ISBN: 9979-872-25-X; 100-113. www.
heilbrigdisraduneyti.is/media/Skyrslur/stefnum-aldradir.pdf
2. http://www.icpsr.umich.edu/icpsrweb/NACDA/studies/9915
3. Harris TB, Launer LJ, Eiriksdottir G, Kjartansson O, Jonsson PV, Sigurdsson G, Thorgeirsson
G, Aspelund T, Garcia ME, Cotch MF, Hoffman HJ, Gudnason V. Age, Gene/Environment
Susceptibility-Reykjavik Study: multidisciplinary applied phenomics. Am J Epidemiol. 2007
May 1;165(9):1076-87.
4 Muller M, Sigurdsson S, Kjartansson O, Jonsson PV, Garcia M, von Bonsdorff MB,
Gunnarsdottir I, Thorsdottir I, Harris TB, van Buchem M, Gudnason V, Launer LJ. Birth size
and brain function 75 years later. Pediatrics. 2014 Oct;134(4):761-70
The Aging, Genes and Environment Susceptibility Reykjavik Study
Pámi V Jónsson MD, FACP, FRCP, Professor, Faculty of Medicine,
School of Health Sciences, University of Iceland and Chief,
Department of Geriatrics, Landspitali University Hospital.
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.10.152
Öldrunarrannsókn Hjartaverndar
Pálmi V. Jónsson
prófessor við Læknadeild Háskóla
Íslands og yfirlæknir öldrunarlækninga á
Landspítala
emilsig@hi.is
NÝ MEÐFERÐ VIÐ
LANGVARANDI HJARTABILUN
Entresto dregur úr sjúkrahúsinnlögnum og dauðsföllum
samanborið við enalapril, samkvæmt PARADIGM-HF rannsókninni1
HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN
Á HJARTADAUÐA (CARDIOVASCULAR DEATH)
EÐA FYRSTU SJÚKRAHÚSINNLÖGN VEGNA
HJARTABILUNAR SBR. VIÐ ENALAPRIL
*ARR 4,7%
HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN
Á FYRSTU SJÚKRAHÚSINNLÖGN VEGNA
HJARTABILUNAR, SBR. VIÐ ENALAPRIL
*ARR 2,8%
HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN
Á HJARTADAUÐA (CARDIOVASCULAR
DEATH) SBR. VIÐ ENALAPRIL
*ARR 3,1%
PARADIGM-HF var fjölþjóðleg, slembiröðuð, tvíblind samanburðarrannsókn hjá 8.442 sjúklingum með langvinna hjartabilun (NYHA flokkar II-IV)
og skert útfallsbrot (útfallsbrot vinstri slegils [LVEF] ≤40%, síðar breytt í ≤35%). * ARR = Hrein áhættuminnkun (absolute risk reduction).
Ábending: Til meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum við langvarandi hjartabilun með einkennum og skertu útfallsbroti.2
Heimildir: 1. McMurrey JJV, Packer M, Desai AS, et al. for PARADIGM-HF Investigators and Committees. Angiotensin-neprilysin inhibition vs. enalapril in heart failure. N Engl J Med. 2014; 371(11):993-1004. 2. Samantekt á eiginleikum Entresto, Lyfjastofnun, www.serlyfjaskra.is.
EN
T 2
01
7/
09
-2
5/
IS
Entresto, 24 mg/26 mg, 49 mg/51 mg og 97 mg/103 mg, filmuhúðaðar töflur.
Novartis. ATC flokkur: C09DX04.
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS – Styttur texti SPC
Entresto 49/51 mg, 168 stk, 66.134 kr.; Entresto 97/103 mg, 56 stk, 24.265 kr.; Entresto 97/103 mg, 168 stk, 66.134 kr.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: Einstaklingsbundin greiðsluþátttaka, sjá vinnureglu Sjúkratrygginga Íslands á www.
sjukra.is vegna lyfjaskírteinis. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði
má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Novartis Europharm Limited, Frimley Business
Park, Camberley GU16 7SR, Bretland. Nánari upplýsingar um lyfið fást hjá umboðsaðila á Íslandi sem er Vistor hf.,
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími: 535-7000. Textinn var síðast samþykktur 16. mars 2017. Ath. textinn er styttur. Sjá
nánari upplýsingar í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is.
Innihaldslýsing: Entresto 24 mg/26 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 24,3 mg sacubitril
og 25,7 mg valsartan (sem sacubitril valsartan natríumsaltfléttu). Entresto 49 mg/51 mg filmuhúðaðar töflur: Hver
filmuhúðuð tafla inniheldur 48,6 mg sacubitril og 51,4 mg valsartan (sem sacubitril valsartan natríumsaltfléttu).
Entresto 97 mg/103 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 97,2 mg sacubitril og 102,8 mg valsartan
(sem sacubitril valsartan natríumsaltfléttu). Ábendingar: Entresto er ætlað til meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum við
langvarandi hjartabilun með einkennum og skertu útfallsbroti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju
hjálparefnanna. Samhliðanotkun með ACE hemlum. Ekki má gefa Entresto fyrr en 36 klst. eftir að meðferð með ACE hemli er
hætt. Þekkt saga um ofnæmisbjúg í tengslum við fyrri meðferð með ACE hemli eða angíótensín II viðtakablokka. Arfgengur
eða frumkominn ofnæmisbjúgur. Samhliðanotkun með lyfjum sem innihalda aliskiren hjá sjúklingum með sykursýki eða
sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi (eGFR <60 ml/mín./1,73 m2). Verulega skert lifrarstarfsemi, gallskorpulifur eða
gallteppa. Annar og síðasti þriðjungur meðgöngu. Ávísunarheimild og afgreiðsluflokkar: Z R. Leyfilegt hámarksverð í
smásölu september 2017 (www.lgn.is): Entresto 24/26 mg, 28 stk, 12.799 kr.; Entresto 49/51 mg, 56 stk, 24.265 kr.;