Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.2017, Side 18

Læknablaðið - 01.10.2017, Side 18
418 LÆKNAblaðið 2017/103 notuð. Hins vegar var stuðst við mannfjöldaspá Hagstofu Íslands í aldurshópum yngri en 75 ára. Sú spá gerir ráð fyrir tvöföldun á mannfjölda í aldurshópi 65-74 ára til ársins 2040, 35% fjölgun í aldurshópi 55-64 ára en óverulegri breytingu í öðrum aldurshóp- um eldri en 25 ára. Í rannsókninni var gengið út frá þremur mismunandi forsend- um í þróun áhættuþátta fram til ársins 2040. Í fyrsta lagi: ef þró- un síðustu þriggja áratuga (1981-2010) heldur áfram óbreytt, mun verulega draga úr fækkun dauðsfalla vegna kransæðasjúkdóma og skýrist það að miklu leyti af öldrun þjóðarinnar. Í öðru lagi: ef gert er ráð fyrir að þróun áhættuþáttanna haldi áfram með sama hætti og síðustu 5 ár tímabilsins (2006-2010), þá mun dauðsföllum vegna kransæðasjúkdóma fjölga úr 49/100 þúsund í 70/100 þús- und, eða um 43%, fram til ársins 2040 (mynd 8). Þessi aukning stafar fyrst og fremst af aukinni offitu og sykursýki ásamt öldrun þjóðarinnar. Í þriðja lagi: ef við göngum út frá því að raunhæfum markmiðum verði náð með bætingu helstu áhættuþátta fram til ársins 2040, þá mun verða lækkun í dánartíðni vegna kransæða- sjúkdóma úr 49/100 þúsund í 33/100 þúsund, eða um 33% frá því sem var árið 2010 (mynd 8). Niðurstöður þessara síðustu mælinga á þróun áhættuþátta styðja við þá framtíðarspá sem fram kemur í grein Rósu Bjarkar frá 2011.2 Allt bendir til þess að áframhaldandi aukning í offitu og sykursýki muni leiða til aukningar á dauðsföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma á komandi áratugum. Hér þarf að spyrna við fótum. Með markvissum lýðgrunduð- um inngripum má bæta verulega stöðu helstu áhættuþátta og þannig draga úr sjúkdómsbyrði í framtíðinni.51 Verði ekkert að hafst er ljóst að dauðsföllum vegna kransæðasjúkdóma mun fjölga verulega á komandi árum með fyrirsjáanlegum afleiðingum á stöðu langvinnra sjúkdóma, svo sem hjartabilunar. Fyrirsjáanleg afleiðing þessarar þróunar ásamt vaxandi öldrun þjóðarinnar er að hjartabiluðum á eftir að fjölga umtalsvert meðal aldraðra Ís- lendinga á komandi árum. Reiknað er með að hjartabiluðum í hópi 70 ára og eldri eigi eftir að fjölga 2,3-falt fram til 2040 og þrefald- ast fyrir 2060.52 Þá eru ótalin þau áhrif sem þessi þróun hefur á heilsutengd lífsgæði og versnandi félagslega stöðu aldraðra sem lifa síðustu æviárin við skerta færni og minnkað sjálfstæði, sem má að miklu leyti rekja til afleiðinga hjarta- og æðasjúkdóma og annarra langvinnra sjúkdóma sem koma hefði mátt í veg fyrir með fyrirbyggjandi aðgerðum. Öldrun þjóðarinnar Hér á undan hefur verið fjallað um svokölluð ótímabær dauðsföll af völdum kransæðasjúkdóma. Með því er átt við dauðsföll fyrir 75 ára aldur. Öldrunarrannsókn Hjartaverndar á Íslendingum 67 ára og eldri hefur sýnt að tveir þriðju aldraðra sem fá hjartaáföll lifa það af en allt að 40% þeirra þróa með sér hjartabilun á næstu árum (óbirt gögn Hjartaverndar). Sú þróun að hjartaáföllum fækk- ar í yngri aldurshópunum leiðir til þess að þau verða að meðaltali síðar á lífsleiðinni en var fyrir nokkrum áratugum. Bætt lifun eftir hjartaáfallið þýðir að sífellt stækkandi hópur aldraðra lifir síðustu áratugi ævinnar með langvinnar afleiðingar hjartaáfalla, svo sem hjartabilun og hjartsláttartruflanir. Aldraðir verða sífellt hærra hlutfall þjóðarinnar. Þetta undirstrikar því mikilvægi þess að tefja eða koma í veg fyrir slík áföll meðal aldraðra í framtíðinni. Forvarnir kransæðasjúkdóma á komandi áratugum Af framansögðu er ljóst að forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma muni taka nokkrum breytingum á komandi áratugum. Til þess að draga úr sjúkdómsbyrði aldraðra vegna kransæðasjúkdóma og auka á heilbrigði öldrunar er því mikilvægt að greina æðasjúkdóminn fyrr og hefja meðferð þegar það á við. Ein leið til þess er að skima miðaldra og eldri einstaklinga með nýjum aðferðum sem taka bæði til hefðbundinna og nýrra áhættuþátta og næmum aðferðum við greiningu æðakölkunar. Ómskoðanir af hálsslagæðum hafa þann kost að vera ódýrar og hættulausar í framkvæmd en hafa jafnframt sterkt forspárgildi um æðakölkunarsjúkdóm í kransæð- um.53 Með þessari rannsókn má bæta hefðbundið áhættumat með áhættureiknivél og finna þá einstaklinga sem eru einkennalausir og teljast með lága áhættu samkvæmt hefðbundnu mati. Annar veigamikill þáttur í forvörnum næstu áratuga verður að draga úr offitu og sykursýki af hennar völdum. Við erum langt frá því að ná lýðheilsumarkmiðum í neyslu grænmetis og ávaxta og þurfum að bæta okkur verulega þar.54 Sömuleiðis er óhófleg sykurneysla Íslendinga mikið áhyggju- efni sem verður að bregðast við með lýðgrunduðum inngripum. Þannig eru helstu áhersluatriði í forvörnum hjarta- og æðasjúk- dóma að nokkru leyti önnur en þau hafa verið á undanförnum ára- tugum. Til þess að ná árangri í forvarnaraðgerðum er nauðsynlegt Mynd 8. Þróun dauðsfalla vegna kransæðasjúkdóma reiknað út frá þremur mismunandi forsendum. Í fyrsta lagi: ef þróun síðustu þriggja áratuga heldur áfram óbreytt mun draga verulega úr fækkun dauðsfalla sem skýrist af öldrun þjóðarinn- ar. Í öðru lagi: ef gert er ráð fyrir að þróun áhættuþáttanna haldi áfram með sama hætti og síðustu 5 árin (2006-2010) þá mun dauðsföllum vegna kransæðasjúkdóma fjölga á ný, fyrst og fremst vegna aukningar í offitu og sykursýki ásamt öldrun þjóðar- innar. Í þriðja lagi: ef við göngum út frá því að raunhæfum markmiðum verði náð með bætingu helstu áhættuþátta fram til ársins 2040, þá mun verða lækkun í dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma. Y F I R L I T S G R E I N

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.