Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 24
424 LÆKNAblaðið 2017/103
brot og mjaðmarbrot (nærendi lærleggs). Alls urðu þessi brot
7695 eða 53% allra brota, þar af voru konur 76,5% og karlar 23,5%.
88,3% þessara brota féllu undir lágorkubrot. Mynd 1 sýnir meðal
heildarnýgengi þessara fjögurra brota hjá báðum kynjum. Þessum
brotastöðum er það sameiginlegt að innihalda verulegt magn af
frauðbeini sem hefur hraðari umsetningu en skelbein sem meira
er af annarsstaðar í útlimabeinum. Áður birtar niðurstöður okkar
um öll beinbrot meðal karla sýndu hátt hlutfall háorkubrota.8
Mynd 1. sýnir verulegan kynjamun eftir brotagerðum. Þannig
eru framhandleggsbrot nærri fimmfalt algengari meðal kvenna
en karla og vex tíðnin mjög snögglega samfara breytingaskeiði
kvenna. Meðal karla er aukningin með aldri á framhandleggs-
brotum mun hægari. Hryggsúlubrot reyndust mun oftar háorku-
brot meðal karla en kvenna, einkum yngri karla, og fjölgar eftir
65 ára aldurinn. Mjaðmarbrotum fjölgar hinsvegar fyrst verulega
eftir sjötugt. Flest mjaðmarbrot meðal beggja kynja voru við fall á
jafnsléttu.
Jafnframt var árlegur heildarfjöldi hvers brots áætlaður útfrá
nýgengi brota og mannfjöldatölum á Íslandi 2008 (35 ára og eldri)
við lok eftirfylgnitímans. Einnig var fjöldi lágorkubrota metinn.
Tafla II sýnir áætlaðan fjölda þessara fjögurra brota á árinu 2008
fyrir allt Ísland reiknaður útfrá brotagagnagrunni Hjartaverndar.
Mjaðmargrindarbrot mætti einnig telja til alvarlegra beinþynn-
ingarbrota en þau urðu alls um 90 talsins á árinu 2008. Þessi brot
hafa hátt kynjahlutfall, eða fjórar konur brotna fyrir hvern karl.
Athyglisvert er að aldur við fyrsta meiriháttar beinþynningarbrot
R A N N S Ó K N
Tafla II. Áætlaður fjöldi meiriháttar beinþynningarbrota á Íslandi árið 2008,
framhandleggsbrot, upphandleggsbrot, hryggsúlubrot og mjaðmarbrot, 35 ára
og eldri.
Konur Karlar Samtals
Heildarfjöldi 1156 (76,7%) 351 (23,3%) 1507
Lágorkubrot 1051 (79,0%) 280 (21,0%) 1331
Tafla III Meðalaldur við fyrsta meiriháttar beinþynningarbrot eftir kynjum og
staðalfrávik (ár).
Beinbrot Konur Karlar
Framhandleggur 66.9 (9.7) 67.7 (10.6)
Upphandleggur nærendi 69.9 (10) 69 (10.8)
Hryggur 71.6 (9.8) 71.1 (11.1)
Mjöðm 76.9 (9.3) 77.7 (9.2)
Tafla I. Heildarfjöldi beinbrota og brotinna einstaklinga í hópnum á 26,5 ára
eftirfylgnitíma.
Fjöldi
einstaklinga
Brotnir
einstaklingar
Fjöldi
beinbrota
Lágorkubrot
Konur 9756 4526 (46,4%) 10251 89,4%
Karlar 9116 2403 (26,4%) 4201 72,8%
Mynd 1.
Árlegt meðal
nýgengi fjögurra
meiriháttar
beinþynningar-
brota í Hjarta-
verndarhópnum
hjá einstakling-
um 35 ára og
eldri.