Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 25

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 25
LÆKNAblaðið 2017/103 425 var mjög svipaður meðal beggja kynja (sjá töflu III) en vert er að hafa í huga að þátttakendur rannsóknarinnar voru 35 ára og eldri við upphaf hennar. Nýgengi mjaðmarbrota í rannsóknarhópnum var borið saman við nokkrar sambærilegar erlendar rannsóknir þar sem eingöngu er stuðst við fyrsta brot í lærleggshálsi (61%, S72,0) eða á lærhnútu- svæði (36%, S72,1). Slíkur samanburður er þó oft erfiður þar sem efniviður og skilgreining brota (fyrsta brot eða öll brot) er oft á tíðum mismunandi. Hinsvegar voru neðan lærhnútubrotin (S72,2) 3,6% og oftar tengd háorku en hinar brotagerðirnar. Mynd 2 sýnir samanburð við Svíþjóð (Málmey),9 Noreg (Norð- ur-Þrændalög),10 England og Wales11 og Bandaríkin (Minnesota).12 Tíðni mjaðmarbrota á Íslandi meðal kvenna var mjög svipuð og í Svíþjóð, Noregi og Minnesota og Skotlandi13 en talsvert hærri en í Englandi og Wales. Hærri tíðni hefur verið birt frá Osló14 en sú rannsókn byggði á annarri skilgreiningu þar sem seinni brot eru talin með. Meðal karla var mjaðmarbrotatíðnin svipuð í þessum rannsóknum nema nokkru hærri meðal sænskra karla en sú rann- sókn byggði á tveggja ára tímabili þar sem Hjartaverndarrann- sóknin byggir á 26 ára tímabili, sem ætti að minnka mismun milli ára. Brotatíðni karla í Englandi og Wales var nokkru lægri eins og meðal kvenna þarlendis. Mjaðmarbrotatíðnin virðist þó greinilega lægri meðal Suður- Evrópuþjóða samkvæmt birtum niðurstöðum.15 Við slíkan saman- burð er þó einnig vert að hafa í huga það tímabil sem rannsóknin náði yfir. Hjartaverndarrannsóknin bendir til að tíðni mjaðmar- brota meðal íslenskra kvenna í aldurshópi 70-85 ára hafi náð há- marki um síðustu aldamót en hafi síðan farið lækkandi allt til ársins 2008. Tíðni slíkra brota meðal íslenskra karla virðist hins- vegar hafa náð hámarki upp úr aldamótum og haldist óbreytt til ársins 2008, sjá mynd 3. Þannig hefur kynjahlutfallið lækkað úr 2,6 niður í 1,7. Svipuð- um breytingum í tíðni mjaðmarbrota hefur verið lýst í Svíþjóð.16,17 Í Danmörku virðist tíðnin hinsvegar hafa lækkað hjá báðum kynj- um frá aldamótum.17,18 Skýringar á þessu kunna að vera marg- víslegar.17,18 Hinsvegar hefur samtímis verið lýst hækkandi tíðni mjaðmarbrota í Austurlöndum.19 Það er því vissulega mikilvægt að halda áfram rannsóknum á brotatíðni hérlendis og leita skýringa á breytingum á tíðni. Mjaðmarbrot eru vissulega alvarlegasta beinþynningarbrotið. Dánarlíkur þessa hóps á fyrsta ári eftir mjaðmarbrot (og aðgerð) eru verulega auknar. Þetta hefur meðal annars verið kannað á Ís- landi.20 Ólifuð ár (life expectancy) þessa hóps hafa hinsvegar minna verið könnuð. Í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar 2002-2006 var hópnum, (5764 karlar og konur, 66-96 ára) fylgt eftir í 7,2 ár (mið- gildi) og öll mjaðmarbrot skráð, þar af alls 446 fyrstu brot, svo og öll dauðsföll. Út frá þessu hefur lifun í brotahópnum verið borin saman við óbrotna hópinn. Lifun mjaðmarbrotahópsins reyndist verulega skemmri, og mismunandi eftir aldri við brot. Ef brotið varð um 75 ára aldurinn var lifun 6 árum skemmri að meðaltali meðal brotinna karla og tæplega 5 árum skemmri meðal brotinna kvenna í samanburði við óbrotna hópinn. Þetta jafngildir fækkun ólifaðra ára um nær helming meðal karla (6/12 ár) og um þriðjung meðal kvenna (5/14,5 ár) samanborið við óbrotna hópinn. Tölurn- ar eru svipaðar og lýst hefur verið í rannsókn frá Danmörku.21 Á eftirfylgnitímabilinu hlutu 13% brotahópsins annað mjaðmar- brot hinum megin sem er vissulega hátt áhættuhlutfall en svipað og lýst hefur verið í norskri rannsókn.22 Mjaðmarbrotahópurinn þarfnast því sérstakrar meðferðar og eftirlits, ekki aðeins fyrsta árið eftir brot (óbirtar niðurstöður Hjartaverndar, byggt á „illness death model and expected remaining years “). R A N N S Ó K N Mynd 2. Samanburður á nýgengi mjaðmarbrota eftir aldri og kyni frá Reykjavík, Mál- mey, Minnesota, Englandi og Wales og Norður-Þrændalögum (eingöngu konur).1 N ýg en gi /1 00 0/ ár N ýg en gi /1 00 0/ ár Konur Karlar Mynd 3. Samanburður á nýgengi fyrsta mjaðmarbrots í Hjartaverndarhópnum 70-85 ára eftir fimm fjögurra ára tímabilum, 1989-2008. Konur efri lína, karlar neðri lína. Ósamfellda línan endurspeglar aldursstaðlað meðalnýgengi á tímabilinu.1 N ýg en gi /1 00 .0 00 /á r Mjaðmarbrot

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.