Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 32

Læknablaðið - 01.10.2017, Page 32
fyrir upplýsingar um útstreymisbrot í 442 (78,0%) tilvikum og út frá þeim upplýsingum töldust 214 einstaklingar hafa HFrEF og 228 HFpEF. Þeir 125 einstaklingar sem ekki höfðu gengist undir hjartaómskoðun töldust hafa hjartabilun án frekari skilgreiningar. Nánari útlistun á þeim hjartabilunartilvikum sem áttu sér stað á eftirfylgnitíma má sjá í töflu I. Fjöldi karla sem greindist með hjartabilun var 303 (53,4%) en fjöldi kvenna 264 (46,6%). Marktækt fleiri karlar greindust með HFrEF (p<0,001) en marktækt fleiri konur greindust með HFpEF (p=0,001). Meðalaldur hópsins sem greindist með hjartabilun á eftirfylgnitíma var marktækt hærri við upphaf Öldrunarrannsóknarinnar (80,1 ± 5,9 ár) en meðala- ldur þeirra sem ekki greindust með hjartabilun á eftirfylgnitíma (76,7 ± 5,8) (p<0,001). Algengi hjartabilunar Við upphaf eftirfylgnitíma höfðu 207 af 5706 þátttakendum ein- hvern tímann greinst með hjartabilun og var ævialgengi hjarta- bilunar metið út frá þeim hópi. Af þessum 207 einstaklingum voru 118 (57,0%) karlar og 89 (43,0%) konur. Meðalaldur þessa hóps við upphaf Öldrunarrannsóknarinnar (80,2 ± 6,1 ár) var marktækt hærri en meðalaldur þeirra sem ekki höfðu greinst með hjarta- bilun fyrir upphaf eftirfylgnitíma (76,9 ± 5,8 ár) (p<0,001). Algengi hjartabilunar mældist 3,6% í heildina og var marktækt hærra hjá körlum (4,9%) en konum (2,7%) (p<0,001). Algengið var einnig kannað með tilliti til skiptingar í aldurshópa og innan aldurshópa með tilliti til kynjaskiptingar en niðurstöðurnar má sjá á mynd 2. Í heildina jókst algengi hjartabilunar eftir því sem aldur einstak- linganna hækkaði auk þess sem algengið mældist hærra hjá körl- um en konum innan hvers aldurshóps. 432 LÆKNAblaðið 2017/103 R A N N S Ó K N Mynd 4. Súlurit sem sýnir muninn á nýgengi HFrEF, skipt niður eftir aldri við komu í Öldrunarrannsókn og kyni ásamt 95% öryggisbili. Mynd 5. Súlurit sem sýnir muninn á nýgengi HFpEF, skipt niður eftir aldri við komu í Öldr- unarrannsókn og kyni ásamt 95% öryggisbili.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.