Læknablaðið - 01.10.2017, Side 46
446 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Á fyrri hluta þessa árs aflaði fyrirtækið
Manifesto gagna og vann úr þeim út-
tekt og tillögur að úrbótum í stjórnun
og skipulagi hjá Læknafélagi Íslands.
Niðurstöðurnar voru kynntar á aðal-
fundi Læknafélags Íslands í apríl og eru
þær byggðar á markmiðum núverandi
laga. Kristján Vigfússon, kennari og
ráðgjafi í stefnumótun, segir í viðtali við
Læknablaðið að meginniðurstöður hafi
leitt í ljós óskir um meiri samstöðu og
einfaldara skipulag.
Viðtöl voru tekin við um 60 lækna, for-
menn allra aðildarfélaga innan LÍ, fyrrum
formenn og helstu aðila sem hafa sinnt
félags- og starfskjaramálum lækna, meðal
annars í samninganefndum. Greiningin
fól í sér mat á núverandi stöðu og á mik-
ilvægustu þáttum í starfsemi félagsins
sem hugsanlega mætti breyta til að bæta
skipulag og stjórnun.
„Fyrst og fremst var mikill vilji meðal
félagsmanna LÍ til að jafna valdahlutföll
í félaginu. Læknarnir voru sammála
um mikilvægi samstöðu og eflingar
stéttarinnar og því ætti skipulag félags-
ins að taka mið af þeim markmiðum,“
segir Kristján, en hugsunin með breyttu
skipulagi skyldi einnig verða á þá leið
að hún yrði skiljanleg öllum, bæði innan
félagsins og gagnvart ríkisvaldi og öðrum
hagsmunaaðilum. „Breytingar eiga að
samræmast tilgangi og hlutverki félags-
ins, stuðla að betri nýtingu á fjármunum,
landsbyggðinni verði sinnt betur og sam-
starf skrifstofu og stjórnar Læknafélags
Íslands og aðildarfélaga verði auðveldara.“
Einnig hafi komið upp umræða um betri
nýtingu á húsnæði LÍ í Hlíðasmára. Að-
ildarfélögin gætu til dæmis verið þar með
aðstöðu fyrir starfsmenn og fundaaðstöðu.
Fækkun aðildarfélaga
og þverfagleg samvinna
Flestir voru sammála um að félagið skyldi
áfram að sinna fag- og starfskjarahlutan-
um með sambærilegum hætti og gert er
í dag. „Það væri til dæmis hægt að vinna
að því á skýrari hátt á skrifstofu LÍ hver
myndi sinna hverju og þess vegna þurfti
að einfalda skipulagið. Helsta breytingin
sem lögð er til er sú að Læknafélag Íslands
yrði áfram æðsta stofnun lækna og áfram
yrði boðið uppá einstaklingsaðild að fé-
laginu en aðildarfélögum sem nú skiptast
í svæðisbundin félög og í sumum tilfellum
sérgreinafélög yrði fækkað mjög mikið eða
í 4 félög. Eftir breytingu yrði til aðildafélag
almennra lækna, aðildarfélag stofulækna,
aðildarfélag heimilislækna og loks aðildar-
félag sjúkrahúslækna. Með þessu væri
verið að jafna betur styrk og tekjur hvers
félags en í dag eru sum aðildarfélaögin
bara með örfáa meðlimi og litla sem enga
„Samhugur um nýtt
og einfaldara skipulag“
– segir Kristján Vigfússon ráðgjafi í stefnumótun
Viðamiklar breytingatillögur liggja fyrir aðalfundi LÍ
■ ■ ■ Olga Björt Þórðardóttir