Læknablaðið - 01.10.2017, Side 50
450 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, lífeinda-
fræðingur og doktor í líf- og læknavís-
indum, hefur vakið athygli og unnið til
viðurkenninga að undanförnu. Nú sein-
ast vann hún til aðalverðlauna heims-
samtaka uppfinninga- og nýsköpunar-
kvenna, The Global Women Inventors
and Innovation Network, sem Frumkvöð-
ull ársins. Sandra hlaut einnig verðlaun-
in ,,Ungur og efnilegur vísindamaður
ársins“ á sviði lífvísinda fyrr á árinu.
Verðlaunin koma til vegna rann-
sókna hennar á útrunnum blóðflögum
og hvernig nýta megi þær til að rækta
mesenkímal- stofnfrumur úr beinmerg.
Blóðflögurnar fær hún hjá Blóðbankanum
eftir að þær renna út og vinnur svo úr
þeim blóðflögulausn sem kemur í staðinn
fyrir kálfasermi í frumuræktun. Þótt hún
sé ung að árum hefur hún verið brautryðj-
andi á þessu sviði ásamt dr. Ólafi E. Sig-
urjónssyni, yfirmanni stofnfrumuvinnslu
og grunnrannsókna í Blóðbankanum
og prófessor við Háskólann í Reykjavík.
Saman stofnuðu þau nýsköpunarfyrir-
tækið Platome líftækni og er Sandra Mjöll
framkvæmdastjóri þess frá 2016. Það var
valið sprotafyrirtæki ársins 2017 hjá Við-
skiptablaðinu. Sandra er einnig aðjúnkt við
læknadeild Háskóla Íslands síðan 2014
þar sem hún kennir erfðafræði. Sandra
Mjöll varði doktorsritgerð sína: Notkun
útrunninna blóðflaga til fjölgunar á mes-
enkímal stofnfrumum, við Háskóla Íslands
þann 15. september síðastliðinn. Innan við
sólarhring síðar settist hún niður og svar-
aði nokkrum spurningum Læknablaðsins
um rannsóknir sínar, fyrirtækið og fram-
tíðina.
Fyrst til að nýta útrunnar blóðflögur
Í æsku bjóst Sandra Mjöll ekki við að
heillast af vísindum og verða frumkvöð-
ull. Hún sá sig frekar sem píanista og
bókmenntakonu, en röð atvika leiddi
hana í nám í lífeindafræði og þannig hófst
ævintýrið. ,,Þegar ég hafði lokið BS-gráðu
í lífeindafræði fékk ég sumarverkefni í
Blóðbankanum hjá Óla. Þetta ,,sumar-
verkefni“ hefur nú staðið í sex ár.“ Hún
bætti við sig diplómu til starfsréttinda og
fór í doktorsnám. Útfrá doktorsverkefn-
inu spannst svo fyrirtækið. ,,Frá því við
fórum að byggja upp rannsóknirnar og
síðan fyrirtækið, hefur eitt leitt af öðru.
Þörf er á að finna betri frumunæringu
en kálfasermi fyrir ræktun mesenkímal-
stofnfruma, sem notaðar eru meðal annars
í vefjalækningum. Óli fékk þá hugmynd
að fara að skoða blóðflögur og við fórum
í kjölfarið að skoða útrunnar blóðflögur í
Blóðbankanum sérstaklega og spyrja: Er
þetta eitthvað sem er hægt að nota? Við
fórum því að endurnýta blóðflögur sem
annars yrði fargað en ef við hefðum verið
að nota ferskar blóðflögur, hefðum við ver-
ið í samkeppni við Blóðbankann um blóð-
gjafa. Okkur leist ekki vel á það. Þetta varð
svo til þess að við vorum fyrsti hópurinn
í heiminum til að sýna fram á gagnsemi
þess að nota útrunnar blóðflögur, sem
annars hefði verið hent, til rækunar á
mesenkímal-stofnfrumum. Nú eru flestir
aðrir á þessu sviðið farnir að gera það líka,
þannig að okkar rannsóknir hafa breytt
þessari fræðigrein.
Skapa samtal og skiptast á þekkingu
Þegar við sáum að hægt var að breyta
okkar vinnu í vöru var næsta spurningin:
Eigum við að fylgja því eftir sjálf eða láta
einhvern annan um það? Við ákváðum að
prófa að gera þetta sjálf.“ Þannig atvik-
aðist það að hún gerðist frumkvöðull og
framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækis.
,,Það var ekki eins og ég segði við sjálfa
mig einn góðan veðurdag: ,,ég ætla að
verða frumkvöðull!“. Ég held að fólk lendi
bara oftast í því. Það er að fylgja ástríðu,
hugmynd eða einhverju sem það trúir
á, eins og í okkar tilfelli. Við hugsuðum:
Það getur ekki verið svo mikið mál að
stofna fyrirtæki.“ Hún getur ekki varist
hlátri. ,,Augljóslega gerðum við okkur ekki
fyllilega grein fyrir hvað felst í fyrirtækja-
rekstri. Ég skráði mig á námskeið sem
heitir Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Það er ætlað konum sem vilja hefja
eigin rekstur.Þá var dóttir mín aðeins eins
mánaðar gömul en hún er nú þriggja ára.
Námskeiðið var mjög gagnlegt og ég þurfti
að læra hratt hvað fólst í því að stofna
fyrirtæki.“ Það reyndist farsælt spor og
opnaði leið sem Söndru Mjöll var mjög að
skapi. ,,Ég get fylgt mínum grunnrann-
sóknum eftir og hagnýtt þær. Þar liggur
mín ástríða“.
Væri athugandi að byggja upp sterkari
ramma fyrir vísindamenn til að koma
Frumkvöðull með
ástríðu fyrir vísindum
■ ■ ■ Anna Ólafsdóttir Björnsson