Læknablaðið - 01.10.2017, Qupperneq 51
LÆKNAblaðið 2017/103 451
rannsóknum og uppgötvunum á fram-
færi? ,,Já, þegar við vorum að byrja vissi
ég ekkert hvert ég átti að snúa mér. Það er
mjög mikil gróska í nýsköpun á Íslandi af
öllu tagi, en umgjörðin hentar samt ekki
beint akademískum sprotum sem byggja
oft á margra ára rannsóknum. Við erum
með mjög mikið af öflugu fagfólki hér
og Ísland á svo mikið inni en það vantar
líka vettvang fyrir samskipti og um-
ræðu. Ég hef tekið skref í þá átt að stofna
,,líftækniklasa“ og fengið liðstyrk frá
Nýsköpunarmiðstöð, Háskóla Íslands og
Samtökum iðnaðarins. Hugmyndin er að
skapa samtal milli mismunandi rannsókn-
arhópa, líftæknifyrirtækja og lyfjafyrir-
tækja. Skiptast á þekkingu og jafnvel snúa
bökum saman í hagnýtingu rannsókna
og markaðssetningu á nýjungum. Þetta
er líka hugsað sem vettvangur fyrir vís-
indamenn í grunnrannsóknum til að fá að
vita hvort áhugi sé á að vinna áfram með
einstakar hugmyndir og verkefni og finna
samstarfsaðila til að koma þeim lengra.
Það er líka verið að athuga með húsnæði
þar sem sprotafyrirtæki á sviði lyfja- og
lífvísinda gætu leigt rannsóknaraðstöðu
en það á eftir að útfæra nánar, enda er
verk efnið á byrjunarstigi.“
Sandra Mjöll hefur verið í báðum hlut-
verkunum, sem rannsakandi og fulltrúi
einkafyrirtækis, og hún segir að það sé
vissulega nokkurt álag og togstreita þar á
milli. ,,En mér finnst hvort tveggja mjög
skemmtilegt. Ég held áfram í rannsókn-
um en stofnun fyrirtækisins gerði okkur
kleift að fá fleira fólk í lið með okkur og
það eru fleiri möguleikar á að sækja fé til
rannsóknanna. Við erum meðal annars
styrkt af Tækniþróunarsjóði. Mér datt
aldrei í hug að við myndum ná svona
góðum árangri á svo skömmum tíma.“
Sá hugsunarháttur að vísindamenn eigi
ekki að koma nálægt fyrirtækjarekstri er
óðum á undanhaldi og margir samgleðjast
velgengi Söndru Mjallar, Ólafs og Platome
líftækni.
Lífeindafræðin er mikilvægt fræðasvið
,,Við vorum tvö í teyminu í byrjun 2016
og nú erum við átta. Við erum komin í
samstarf við aðila út um allan heim og
þannig getum við gert miklu meira en við
hefðum burði til hér innanlands. Við eig-
um svo mikið af nýjum og spennandi hug-
myndum. Nú eru fjórir nemar að vinna
mastersverkefni hjá okkur, mjög áhuga-
verð verkefni sem þeir sinna af krafti og
sannfæringu.
Hugmyndir koma fram með ýmsum
hætti. Stundum rekum við okkur á eitt-
hvað sem þyrfti að vera öðruvísi í okkar
vinnuumhverfi. Þá er því fylgt eftir og
reynt að leysa þau vandamál. Það sem
byrjar sem rökrétt næsta skref hefur
stundum reynst vera ný hugmynd. Fólk
hefur líka í seinni tíð leitað eftir samstarfi
við okkur ef það sér skyldleika í sínum
verkefnum og okkar. Oft er gott að vera í
samstarfi við aðra, sækja saman um styrki
og hafa tök á að ráða fleira fólk til starfa.
Það skiptir þó mestu máli að vita hvert við
erum að stefna og hvað við ætlum að fá út
úr því sem við erum að gera.
Undanfarin ár hafa verið erilsöm hjá
Söndru Mjöll, rannsóknir, fyrirtæki,
fjölskylda, háskólakennsla, doktorsnám,
„Ég hef mikla trú á stéttinni og vil taka þátt í að
byggja hana upp, en samtímis vil ég líka sjá miklu
meiri samvinnu milli heilbrigðisstétta og út fyrir
þær,“ segir Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch doktor í
líf- og læknavísindum.