Læknablaðið - 01.10.2017, Side 52
452 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Yfirlæknir ber faglega og stjórnunarlega
ábyrgð innan síns sérsviðs. Starfinu fylgir
þátttaka í kennslu nema og heilbrigðisstétta,
þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, þátttaka í
gæðastarfi og teymisvinnu tengt viðkomandi
sérgrein, auk tækifæra til rannsóknarvinnu.
Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og
metnaðarfullum sérfræðilækni í líffærameina-
fræði. Um er að ræða 100% stöðu.
Meinafræðideild sjúkrahússins sinnir ríflega
3000 vefjasýnum á ári, sem er u.þ.b. 10-12%
þeirra vefjasýna sem til falla á Íslandi ár hvert.
Sjúkrahúsið á Akureyri
~ fyrir samfélagið ~
ÖRYGGI - SAMVINNA - FRAMSÆKNI
Yfirlæknir meinafræðideildar
UMSÓKNARFRESTUR:
1. NÓVEMBER 2017
UMSÓKNIR:
SAK.IS/ATVINNA
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Starfið er laust frá 1. desember 2017. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir
Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga í síma 463 0100
eða netfang ses@sak.is.
Nánari upplýsingar um starfið og hæfnikröfur eru á www.sak.is/atvinna.
en hún hefur líka fengið mikla viður-
kenningu og hvatningu. ,,Það er gott að
fá hvatningu. Oft áttar maður sig ekki
sjálfur á mikilvægi þess sem maður gerir
og aðrir þurfa að segja manni það. En
þá er líka mikilvægt að standa undir
væntingunum og halda áfram. Þetta hefur
oft verið mikið álag og þá er gott að geta
hugsað: Þarna úti er fólk sem hefur trú á
mér.
Mitt fræðasvið, lífeindafræðin, hefur
ekki alltaf fengið viðurkenningu sem
skyldi, þó það sé sérlega mikilvægt. Líf-
eindafræðingar eru sérfræðimenntaðir í
líffræði mannsins og nákvæmum mæl-
ingum á gildum líkamans, meðal annars.
Nú hefur aukist mjög að lífeindafræðingar
sæki í meistaranám og þrír hafa lokið
doktorsnámi síðastliðið ár. Mér finnst
mjög gott að geta verið öðrum lífeinda-
fræðingum hvatning til að horfa á sig
sem fræðimenn. Ég get farið til nemenda
minna sem eru í lífeindafræðinámi og
sagt þeim að sú menntun sem þeir eru að
fá sé mjög verðmæt, og þeir geti nýtt hana
eins og þeir vilja, hvort sem þeir vilja fara
út í grunnrannsóknir, þjónusturannsóknir
eða eitthvað annað. Lífeindafræðingar
hafa fengist við alls konar rannsóknir inni
á spítölunum og eru stundum fyrstir til
að sjá einhverjar tilhneigingar, breytingar
og frávik sem tengjast sjúkdómum. Vís-
indin eru að gerast í höndunum á okkur á
hverjum einasta degi. Ég hef mikla trú á
stéttinni og vil taka þátt í að byggja hana
upp, en samtímis vil ég líka sjá miklu
meiri samvinnu milli heilbrigðisstétta
og út fyrir þær. Til dæmis hef ég unnið
talsvert með heilbrigðisverkfræðingum og
séð að við getum skapað margt mikilvægt
saman. Það er gott að þurfa ekki að vita
allt sjálfur og fá aðstoð annars fagfólks.
Þannig er auðveldara að nýta þekkingu og
skapa virði fyrir samfélagið.“