Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.2017, Side 60

Læknablaðið - 01.10.2017, Side 60
460 LÆKNAblaðið 2017/103 Stjórn Öldungadeildar Kristófer Þorleifsson formaður, Jóhannes M. Gunnarsson ritari, Guðmundur Viggósson gjaldkeri. Kristrún Benediktsdóttir, Margrét Georgsdóttir. Öldungaráð Bergþóra Ragnarsdóttir, Hörður Alfreðsson, Magnús B. Einarson, Reynir Þorsteinsson, Snorri Ingimarsson, Þórarinn E. Sveinsson. Umsjón síðu Páll Ásmundsson Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li Ö L D U N G A D E I L D Landspítalinn 1930. (Arkitekt: Guðjón Samúelsson.) Ljósm. Magnús Ólafsson. Landakotsspítalinn; elsti hluti spítalans frá 1902. Ljósm. ókunnur. Bjarnaborgarspítalinn. Ljósm. ókunnur. Sjúkrahús Neskaupstaðar 1957. (Arkitektar: Arne Hoff- -Møller og Þórir Baldvinsson.) Ljósm. ókunnur. Gudmanns Minde 1910. Ljósm. Hallgrímur Einarsson.Gamli spítalinn á Akureyri nýbyggður 1898. (Minjasafnið á Akureyri.) Fjórðungssjúkrahús Akureyrar 1953. (Arkitekt: Guðjón Samúelsson.) Ljósm. Gunnlaugur P. Kristinsson. Svipmyndir úr sögu gamalla spítala Nýir spítalar taka við af gömlum. Með ár- unum verða nýju spít- alarnir gamlir, gömlu spítalarnir enn eldri, en nýrri spítalar taka við af hinum nýju. Tökum eina hringferð um landið. Elsti hluti Sjúkrahúss Akureyrar á Eyrarlandstúninu var tekinn í notkun 1953. Spítalinn í Eyrarlandsbrekkunni var þó hinn gamli spítali, reistur 1898 eftir teikningum Guð- mundar Hannessonar læknis, endurreistur sem skíðaskáli í Hlíðarfjalli 1956. Gudmanns Minde (sem enn stendur; Aðalstræti 14) er hins vegar elsti spítali Akureyrar en hann var starfræktur 1873-1899. Sjúkrahúsið í Neskaupstað var vígt 1957 en ári síðar var ákveðið að sjúkrahúsið skyldi verða fjórðungssjúkrahús. Eftir að nýbygging sjúkrahússins var tekin í notkun 1982 varð byggingin frá 1957 gamli hluti spítalans. Hins vegar var Bjarnaborgarspítalinn, fyrsti spítali Norð- firðinga, kallaður „Gamli-Spítalinn“ en hann tók til starfa 1926. Landakotsspítalinn var tekinn í notkun árið 1902. Nýrri vesturálmu var bætt við 1935 en eftir að nýjasti hluti spítalans var byggður varð vesturálman gamli spítalinn en elsti spítalinn var rifinn. Því skal einnig haldið til haga að gamla kaþ- ólska kapellan var eins konar fyrirrennari spítalans, fyrsti spítali St. Jósefssystra í Landakoti. Hinn glæsilegi nýi Landspítali (hét upphaflega Landsspítalinn) á Grænu- borgartúninu var vígður 1930. Hann var seinna kallaður gamli spítalinn eftir að nýbyggingar Landspítalans voru reistar. Jón Sigurðsson svæfingalæknir Akureyri Neskaupstaður Reykjavík

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.