Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Síða 2
Hvenær verður Secret Solstice
haldin?
Hún byrjar á fimmtudagskvöldið klukkan sex og
klárast á sunnudagskvöldið.
Hverju má fólk búast við af hátíðinni?
Það munu 140 mismunandi listamenn koma fram,
þeir koma fram á fjórum sviðum, það eru þrjú útisvið
og svo breytist Laugardalshöll í 7.000 manna næt-
urklúbb á nóttunni. Svo verða víkingasýningar reglu-
lega yfir daginn, það verður barnasvæði og bmx-
hjólasýning.
Hvaða atriðum má fólk alls ekki missa af?
Ég myndi segja að fólk mætti alls ekki missa af
George Clinton og the Parliment Funkadelics. George
Clinton er konungur fönksins, og einn áhrifamesti tón-
listarmaður síðustu aldar. Svo myndi ég segja Slayer.
Ég er líka vandræðalega spenntur fyrir Bonnie Tyler.
Svo finnst mér fólk vera merkilega lítið að tala um
Clean Bandid. Þeir eru risastórir, þeir eru með lög
sem eru búin að fá milljarð áhorfa á youtube. Þeir eru
geggaðir.
Hvar er hægt að kaupa miða?
Þeir eru seldir á secretsolstice.is, við munum selja miða
þangað til að hátíðin hefst, við erum ekki með eins marga
miða og í fyrra þannig að við reiknum með að það seljst
upp.
Hvers vegna ætti fólk að fara á Secret
Solstice?
Þetta er flottasta hátíð sem fer fram á Íslandi á hverju
ári. Þetta er fjölskylduhátíð, það er hellingur um að vera
fyrir börnin og það er bara gaman að vera á svæðinu.
Það er líka spáð sól næstu helgi. Þetta er festival sem er
á skala við alþjóðlegar hátíðir, fólkið sem heldur þetta
gerir ekkert annað en að halda hátíðir í Bretlandi. Þannig
að þetta er sett upp eins og flottustu hátíðirnar í Bret-
landi. Við erum líka með rosalega mikið af flottri íslenskri
tónlist, þannig þetta er eitthvað sem fólk ætti alls ekki að
missa af.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flottasta
hátíð
á Íslandi
JÓN BJARNI STEINSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.6. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Gustað hefur um Donna á Útistöðum eftir að hann kom nýr inn í bekk-inn fyrir hálfu öðru ári. Hann þykir helst til ódæll og sérlundaður oggengur ekkert alltof vel að aðlagast og eignast vini. Emmi litli á
Ökrum var þó allur af vilja gerður, ruddi hinum krökkunum til hliðar fyrsta
skóladaginn til þess að fá mynd af sér með nýja stráknum. Donna fannst það
smart, enda með krónískan egókláða, og heimsótti Emma í kjölfarið. Það
gekk stórslysalaust fyrir sig, nema hvað Donna þótti Emmi vera með helst til
gamalli stelpu, auk þess sem hann er óvanur öllu þessu kossaflensi. „Er hann
ekki örugglega fyrir stelpur?“ hugsaði hann með sér. „Svo heilsar hann mér
með handabandi í tíma og ótíma og ætlar aldrei að sleppa.“
Eigi að síður langaði Donna að kynnast Emma betur sem varð til þess að
hann bauð honum heim á hvíta fallega bóndabýlið á Útistöðum. Sýndi honum
gullin sín og hljóp með honum um engi. „Pant vera Lone Ranger,“ hrópaði
Donni. „Þú mátt vera Tontó.“
Enda þótt þeir láti ekki á því bera öfunda hinir krakkarnir í bekknum
Emma á Ökrum. Donni er ekki bara stærri og útiteknari en hin börnin, hann
er líka svolítið hættulegur. Enginn veit hverju hann tekur upp á næst. Þetta
skynja stelpurnar, Agga á Merkigili og Tedda á Mælifelli. Þær vita að feður
þeirra mega ekki heyra minnst á
gaur eins og Donna og hvaða stúlka
vill ekki ögra föður sínum – innst
inni? Vandinn er bara sá að Donni
lítur ekki við þeim frekar en þær
væru krækiber, eins og skáldið orð-
aði það forðum. Hann er veikari fyr-
ir yngri stelpum. Og útlenskum.
Sem er skrýtið, þar sem hann er al-
mennt á varðbergi gagnvart útlend-
ingum.
Og aumingja strákurinn á næsta
bæ, Tinni á Trúðum. Hann á einfald-
lega ekki breik. Donni gerir sér
grein fyrir því að hann er sætur og
móðins og getur fyrir vikið ekki leyft
honum að komast upp með moðreyk.
„Tinni, þú ert ódrengur og lufsa,“
sagði hann við aumingja nágrannann í norðri í vitna viðurvist um daginn.
Það er þó hátíð hjá því sem Donni hefur hótað stráknum á bænum fyrir
sunnan lækinn, Rikka pena. „Rikki er vondur strákur sem er alltaf að stelast
yfir á okkar jarðeign. Þess vegna verð ég að reisa girðingu. Úr gaddavír. Og
Rikki þarf að borga fyrir hana.“ Aumingja Rikki. Hann er staurblankur.
Já, Donni á Útistöðum bindur ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir. Það
sást best í vikunni, þegar hann eignaðist loksins vin; strák sem er ekki einu
sinni í skólanum, Yngsta-Kimma á Uppsölum. Hann býr þar einn eftir að fað-
ir hans, Yngri-Kimmi á Uppsölum, og afi, Kimmi á Uppsölum hurfu yfir móð-
una miklu. Hermt er að hann sé jafnvel kynlegri í háttum en Donni og fari
ekki vel með búfé sitt. Geymi það nótt sem nýtan dag í svartamyrkri.
Guð einn veit hvað þeir kumpánar eiga eftir að bralla saman.
AFP
Donni á Útistöðum
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Enda þótt þeir látiekki á því bera öfundahinir krakkarnir í bekkn-um Emma á Ökrum.
Donni er ekki bara stærri
og útiteknari en hin börn-
in, hann er líka svolítið
hættulegur.
Atli Snær Jóhannsson
Þetta fer 1-1, ég held að annað hvort
Gylfi eða Jóhann Berg skori.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig fer
leikurinn
gegn
Argentínu?
Einar Haraldsson
Ég segi 1-1, annað hvort Raggi eða
Kári skora fyrsta markið.
Aðalheiður Frantzdóttir
Það fer 0-0, það mun hellingur ger-
ast í leiknum en ekkert mark.
Elsa Hauksdóttir
Ísland vinnur 2-1.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Skapti Hallgrímsson
Jón Bjarni er einn af skipuleggjendum Secret Sol-
stice sem fer fram næstu helgi. Hann er einnig með-
al skipuleggjenda Víkingahátíðarinnar í Hafnarfirði.